Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 30. desember 2017 22:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Myndband: Sjáðu öll 39 deildarmörk Harry Kane á árinu
Mynd: Getty Images
Enski landsliðsframherjinn Harry Kane hefur heldur betur verið duglegur við að skora á árinu.

Þann 26. desember þegar Tottenham mætti Southampton skoraði hann þrennu og það í öðrum deildarleiknum í röð, hann hefur alls skorað 39 deildarmörk á árinu.

Með fyrsta markinu sem hann skoraði gegn Southampton bætti hann 22. ára gamalt met Alan Shearer, en hann skoraði 36 mörk árið 1995.

Á Twitter síðu Tottenham var birt myndband með öllum 39 deildarmörkum kappans á árinu og það smá sjá hér að neðan.




Athugasemdir
banner
banner