Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 31. júlí 2014 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Samuel Jimenez farinn frá Víkingi Ólafsvík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vinstri bakvörðurinn Samuel Jimenez Hernandez hefur leikið sinn síðasta leik með Víkingi Ólafsvík.

Samuel lék sinn síðasta leik með Ólafsvíkingum gegn ÍA í gærkvöldi.

Þessi 26 ára gamli Spánverji kom til Ólafsvíkinga fyrir ári síðan og spilaði tíu leiki í Pepsi-deildinni í fyrra.

Í sumar hefur hann síðan áfram verið fastamaður í vörn Víkings.

,,Í dag kveð ég frábært lið sem ég vonast til að snúa aftur til einn daginn," sagði Samuel á Twitter í gær.



Athugasemdir
banner
banner