Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
Þór/KA
0
1
FH
0-1 Madison Santana Gonzalez '85
14.07.2020  -  18:00
Þórsvöllur
Pepsi-Max deild kvenna
Aðstæður: 14°C, smá gola og rigning.
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: 203
Maður leiksins: Taylor Victoria Sekyra (FH)
Byrjunarlið:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
3. Madeline Rose Gotta
4. Berglind Baldursdóttir ('74)
11. Arna Sif Ásgrímsdóttir (f)
14. Margrét Árnadóttir
16. Jakobína Hjörvarsdóttir
16. Gabriela Guillen Alvarez
17. María Catharina Ólafsd. Gros
22. Hulda Ósk Jónsdóttir
22. Hulda Karen Ingvarsdóttir
25. Heiða Ragney Viðarsdóttir

Varamenn:
1. Lauren Amie Allen (m)
2. Rut Matthíasdóttir
8. Lára Einarsdóttir
9. Karen María Sigurgeirsdóttir ('74)
18. Rakel Sjöfn Stefánsdóttir
19. Agnes Birta Stefánsdóttir
24. Hulda Björg Hannesdóttir

Liðsstjórn:
Andri Hjörvar Albertsson (Þ)
Perry John James Mclachlan (Þ)
Bojana Besic
Saga Líf Sigurðardóttir
Ingibjörg Gyða Júlíusdóttir
Anna Catharina Gros
Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir

Gul spjöld:
Jakobína Hjörvarsdóttir ('25)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Arna Sif nær að komast í boltann en ekkert varð úr þessari hornspyrnu. Siggi flautar eftir það til leiksloka. FH fær sín fyrstu þrjú stig í sumar.
93. mín
Hulda Ósk með skot í varnarmann. Horn.
91. mín
Þór/KA fær innkast hátt uppi á vellinum.
87. mín
FH fær horn. Ekki góð spyrna.
85. mín MARK!
Madison Santana Gonzalez (FH)
ÚFF Harpa.

Fær sendingu til baka og fær á sig pressu, missir boltann þegar hún ætlar að sóla sig út úr pressunni og Madison rennir boltanum í autt markið.
84. mín
Inn:Elísa Lana Sigurjónsdóttir (FH) Út:Birta Georgsdóttir (FH)
84. mín
Karen María með afleitt skot.
83. mín
Helena með sendingu á Andreu inn á teignum sem reynir að finna Sísí en sending eða móttaka ekki sérstök og Þór/KA fær boltann.
81. mín
Ansi rólegt yfir þessu.
77. mín
Inn:Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir (FH) Út:Valgerður Ósk Valsdóttir (FH)
76. mín
Helena með skot vel yfir mark Þór/KA.
74. mín
Inn:Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA) Út:Berglind Baldursdóttir (Þór/KA)
73. mín
Þór/KA í brasi varnarlega. Harpa kemur út en missir af fyrirgjöf en sóknarmenn FH eru svo stignir út í næstu fyrirgjöf og boltanum komið í burtu.
73. mín
Helena með álitlegan sprett en er stöðvuð. FH aðeins að vakna.
71. mín
Inn:Rannveig Bjarnadóttir (FH) Út:Eva Núra Abrahamsdóttir (FH)
71. mín
Andrea Mist gerir vel og vinnur boltann af Maddy.
70. mín
Hulda Ósk á skot sem Telma ver og heldur í annarri tilraun. Fín tilraun.
70. mín
Hulda Ósk með sendingu út á Maríu sem á fyrirgjöf sem hreinsuð er í burtu.
69. mín
Flottur varnarleikur hjá Jakó.
68. mín
Jakobína fær boltann aftur og sendir inn í á Örnu sem á skalla í átt að marki. Hún kallar eftir hendi-víti en ekkert dæmt og FH hreinsar.
67. mín
Jakobína tekur þessa spyrnu.
66. mín
Berglind tók hornið, ætlar að taka meðfram jörðinni og Helena hreinsar í annað horn.
66. mín
Þór/KA fær horn.
64. mín
Andrea Mist special. Tilraun af löngu færi en talsvert framhjá.
63. mín
Þetta var séns fyrir Þór/KA!!

Maddy vann boltann en sendingin aðeins of framarlega fyrir Huldu Ósk og sóknin rennur svo út í sandinn.

Seinni hálfleikur verið eign Þór/KA.
62. mín
Gabby með bolta inn á Margréti sem tekur við boltanum inn á teignum og lætur vaða. Telma ver.
61. mín
María með fyrirgjöf en Hulda Ósk nær ekki að taka boltann með sér, útspark.
59. mín
Hulda Ósk með frábæran sprett og kemur sér framhjá tveimur varnarmönnum, á skot sem fer í Sísí og boltinn berst á Maríu.

María á skot með vinstri sem Telma ver og FH nær að hreinsa.
58. mín
Hulda Ósk á sprettinum en Valgerður með frábæra tæklingu.
55. mín
María Catharina verður fyrir einhverju hnjaski og leikurinn er stöðvaður. María harkar þetta af sér.
52. mín
Jakobína með hornspyrnu og fær boltann aftur. Á svo fyrirgjöf beint afturfyrir.
52. mín
Andrea með vonda sendingu til baka og boltinn endaði afturfyrir, horn fyrir Þór/KA.
51. mín
Madeline með skot yfir mark FH.
50. mín
Hulda Ósk með góðan sprett úti hægra megin, á frábæra fyrirgöf á Maddy sem skallar að marki en Telma með frábæra vörslu.

Jakobína tekur svo horn sem Margrét skallar að marki en lítil hætta.
49. mín
Andrea Mist með skot á Hörpu.
48. mín
Berglind með fyrirgjöf beint í hendurnar á Telmu.
48. mín
FH skallar í burtu.
47. mín
Valgerður hreinsar afturfyrir. Þór/KA fær horn.
46. mín
Áhugavert atvik í fyrri hálfleik þegar Andri Hjörvar, þjálfari Þór/KA var beðinn um að fara í bleikt vesti til þess að aðstoðardómari 2 myndi ekki ruglast á honum á leikmönnum. Andri er dökkklæddur.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn Þór/KA byrjar með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Fékk þær upplýsingar beint í æð að móðir Andreu Pálsdótur heldur ekki með henni í þessum leik.
45. mín
Hálfleikur
Hægt er að horfa á leikinn í beinni útsendingu á Youtube hér
45. mín
Hálfleikur
Svona heldur bragðdaufur fyrri hálfleikur en FH verið betra liðið og þá sérstaklega þegar leið á hálfleikinn.
43. mín
Jakobína aftur í brasi með innkastið en ekkert dæmt í þetta skiptið.
42. mín
Eva með skot fyrir utan teig en aldrei hætta. Harpa heldur þessum bolta.
41. mín
FH fær aðra hornspyrnu.
40. mín
Birta aftur að vinna horn.
38. mín
Birta með fyrirgjöf sem Jakobína kemst fyrir. Horn.

Ekkert kom upp úr því.
34. mín
Hætta eftir hornið. Boltinn dettur dauður niður í teignum og mér sýnist það vera annað hvort Taylor eða Birta sem á skot rétt framhjá.
34. mín
Innkastið tekið á Birtu sem keyrir inn á teiginn og á frábært skot sem er á leið í netið. Harpa með stórkoslega vörslu í horn.
33. mín
Birta með sendingu í Jakobínu og í innkast.
32. mín
Hulda Ósk með lagleg tilþrif og á sendingu á Berglindi sem á skot framhjá fjærstönginni.
31. mín
Tilkynnt rétt í þessu að 203 áhorfendur væru mættir á leikinn.
30. mín
Birta með fyrirgjöf en Þór/KA kemur boltanum í burtu. FH að eiga góðan kafla núna.
29. mín
FH fær horn.

Alls ekki góð spyrna hjá Andreu.
28. mín
Birta með sendingu inn á Andreu en Gabby komst fyrir, þetta var áliltlegt.
27. mín
Vitlaust innkast hjá Þór/KA og FH fær þá innkastið.
26. mín
Heiða Ragney með skot framhjá. Fyrirgjöf kom frá vinstri og María fékk hann inn á teignum úti hægra megin. Boltinn lengst upp í loftið og svo átti Heiða skot framhjá.

Stuðningsmenn Þór/KA lifna aðeins við í stúkunni.
25. mín Gult spjald: Jakobína Hjörvarsdóttir (Þór/KA)
Braut af sér þegar FH ætlaði í sókn.
24. mín
María með fyrirgjöf sem FHingar ná að snerta og það veldur því að Margrét nær ekki til boltans.
23. mín
Skemmtilegur moli sem ég fékk sendan. Hlynur Svan Eiríksson og Guðni Eiríksson eru bræður. Annar þeirra í banni og hinn kom inn í staðinn.
22. mín
María Catharina með fyrirgjöf í varnarmann og beint í hendur Telmu.
20. mín
Maddy með sendingu á Huldu Ósk sem reynir Huldu Ósk special að komast framhjá nokkrum varnarmönnum og það tókst næstum.
17. mín
Snörp sókn hjá Þór/KA sem endar með fyrirgjöf frá Gabby en beint í hendurnar á Telmu.
16. mín
Hulda Ósk fær aukaspyrnu við miðlínu. Eva Núra braut af sér.
13. mín
Fínn sprettur hjá Birtu frá hægri vængnum. Á svo laust skot með vinstri sem Harpa er ekki í vandræðum með. Eva Núra hafði áður átt flottar tæklingar á miðjunni, gaman að renna sér á blautum velli.
11. mín
Hættuleg fyrirgjöf frá Maríu en þarna vantaði bara greddu á að ná til boltans hjá Þór/KA.
10. mín
Brot dæmt á Þór/KA inn í teignum. Spyrnan var fín frá Jakobínu.
9. mín
María vinnur horn fyrir Þór/KA. Heiða hafði gert mjög vel og unnið boltann af Sísí fimmtán sekúndum áður.
9. mín
María með fyrirgjöf beint afturfyrir.
7. mín
Gabby með fyrirgjöf sem Hulda Ósk kemur áfram og á Jakó sem á fyrirgjöf beint í hendurnar á Telmu.
5. mín
María Catharina með skot framhjá.
4. mín
Lið FH

Telma
Valgerður - Taylor - Ingibjörg - Hrafnhildur
Sísí-Eva
Andrea
Birta - Helena - Madison
3. mín
Lið Þór/KA

Harpa
Gabby - Hulda K - Arna - Jakobína
Heiða
Berglind- Madeline
María - Margrét - Hulda Ósk
2. mín
Bæði lið stilla upp í 4-3-3.
1. mín
Birta með fyrirgjöf en Arna Sif kemst fyrir.
1. mín
Leikur hafinn
FH byrjar og leikur í átt að Glerá.
Fyrir leik
FH hefur einungis skorað eitt mark í deildinni og fengið á sig tíu. Þór/KA er með markatöluna 8:7. Hrafnhildur skoraði eina mark FH til þessa.
Fyrir leik
Liðin ganga út á völl. Þór/KA leikur í svörtu og FH í hvítum treyjum og svörtum stuttbuxum.
Fyrir leik
Sjö mínútur í leik og það er smá úði/rigning.
Fyrir leik
Fyrir leik
Guðni Eiríksson, þjálfari FH, fékk að líta rautt spjald í deildarleiknum gegn Þrótti á dögunum vegna mótmæla og er því í leikbanni í kvöld. Hlynur Svan Eiríksson stýrir liðinu ásamt Árna Frey Guðnasyni. Hlynur bjó á Akureyri um árabil og spilaði með Þór.
Fyrir leik
Bæði lið komust áfram í 8-liða úrslit bikarsins

FH hefndi fyrir tap gegn Þrótti R. í deildinni með 0-1 útisigri í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins síðasta föstudag. Andrea Mist Pálsdóttir skoraði mark FH en hún er uppalin hjá Þór/KA og gekk í raðir FH í vetur. Andrea er í byrjunarliðinu í kvöld og mætir því sínum fyrrum liðsfélögum.

Þór/KA sigraði Keflavík, 1-0, á laugardaginn. Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir skoraði eina mark leiksins snemma í fyrri hálfleik.
Fyrir leik
Aðstæður á Þórsvelli eru fínar fyrir knattspyrnuiðkun. Það hefur rignt síðustu 100 mínútur eða svo og völlurinn þokkalega vökvaður þess vegna. Nú hálftíma fyrir leik eru 14°C og smá gola.
Fyrir leik
Staðan í deildinni:
Þór/KA er í 5. sæti eftir þrjá spilaða leiki með sex stig. FH er í 9. sæti án stiga eftir fjóra leiki.

Síðustu leikir:
FH tapaði gegn Þrótti í síðustu umferð, 1:2, á heimavelli. Sá leikur var hluti af 5. umferð en leik FH í 4. umferð var frestað vegna veirunnar.
Þór/KA lék síðast í 3. umferð og tapaði þá 6:0 gegn Val á útivelli. Liðið átti að mæta Fylki og Breiðabliki í næstu leikjum en þau lið voru í sóttkví og þess vegna á Þór/KA tvo leiki til góða á meðan FH á einn. Einungis tvö lið í deildinni hafa lokið fimm leikjum.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár:

Tvær breytingar á liði Þór/KA frá síðasta deildarleik (gegn Val 24. júní). Inn í liðið koma þær Madeline Rose Gotta og Jakobína Hjörvarsdóttir fyrir þær Huldu Björg og Karen Maríu.

Tvær breytingar eru líka á liði FH. Þær Ingibjörg Rún Óladóttir og Valgerður Ósk Valsdóttir koma inn í liðið fyrir þær Úlfu Dís og Rannveigu Bjarnadóttur sem eru á bekknum.
Fyrir leik
Góðan daginn! Hér mun fara fram textalýsing á leik Þór/KA og FH í Pepsi-Max deild kvenna.
Byrjunarlið:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
Sigríður Lára Garðarsdóttir
2. Hrafnhildur Hauksdóttir
4. Ingibjörg Rún Óladóttir
8. Valgerður Ósk Valsdóttir ('77)
17. Madison Santana Gonzalez
19. Helena Ósk Hálfdánardóttir
20. Eva Núra Abrahamsdóttir ('71)
24. Taylor Victoria Sekyra
26. Andrea Mist Pálsdóttir
28. Birta Georgsdóttir ('84)

Varamenn:
25. Aníta Dögg Guðmundsdóttir (m)
6. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('77)
9. Rannveig Bjarnadóttir ('71)
15. Birta Stefánsdóttir
17. Elísa Lana Sigurjónsdóttir ('84)
22. Lovísa María Hermannsdóttir
23. Andrea Marý Sigurjónsdóttir

Liðsstjórn:
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Melkorka Katrín Fl Pétursdóttir
Snædís Logadóttir
Árni Freyr Guðnason
Elín Rós Jónasdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld: