Fotbolti.net
18.09.26 - 13:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gatorade bikar Fótbolti.net

Haukar taldir líklegri á Laugardalsvelli

Fulltrúar liðanna með Fótbolta.net bikarinn í gær.

Fulltrúar liðanna með Fótbolta.net bikarinn í gær.

Canon

Mynd: KSÍ - Óskar Örn Guðbrandsson

Klukkan 19:00 á Laugardalsvelli mætast Selfoss og Haukar í uppgjöri toppliðanna í 2. deild. Þau mætast í úrslitaleik Gatorade-bikars Fótbolta.net.

Haukar unnu 2. deild í sumar og Selfoss endaði í 2. sæti deildarinnar. Haukar slógu út Kormák/Hvöt í undanúrslitunum með sigri á útivelli í vítaspyrnukeppni. Selfoss vann á sama tíma öruggan sigur á 4. deildar liði Álftaness.
Upphitanir stuðningsmanna Selfoss og Hauka
TENGT EFNI

Upphitanir stuðningsmanna Selfoss og Hauka

Veðbankinn Epicbet telur meiri líkur á sigri Hauka í kvöld. Stuðullinn á því að Haukar vinni eftir 90 mínútur er 2,22, stuðullinn á jafntefli er 3,94 og stuðullinn á sigri Selfoss á 90 mínútum er 2,89.

Miklar líkur eru taldar á því að bæði lið skori í leiknum og er búist við 3-4 marka leik.

Selfoss vann keppnina 2024 og Víkingur Ólafsvík vann keppnina í fyrra.
Haukar taldir líklegri á Laugardalsvelli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.