Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Leiknir R.
2
1
Leiknir F.
Sævar Atli Magnússon '16 1-0
Sævar Atli Magnússon '18 2-0
2-1 Arkadiusz Jan Grzelak '78 , víti
12.09.2020  -  14:00
Domusnovavöllurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Suðaustan gjóla, 10 stigi hiti og skýjað. Aðstæður bara fínar.
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Maður leiksins: Sævar Atli Magnússon
Byrjunarlið:
12. Guy Smit (m)
Sólon Breki Leifsson ('65)
4. Bjarki Aðalsteinsson (f)
5. Daði Bærings Halldórsson (f)
6. Ernir Bjarnason
7. Máni Austmann Hilmarsson ('65)
8. Árni Elvar Árnason ('65)
10. Sævar Atli Magnússon (f) ('80)
10. Daníel Finns Matthíasson
17. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
23. Dagur Austmann

Varamenn:
1. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Ósvald Jarl Traustason
11. Brynjar Hlöðversson ('65)
15. Birgir Baldvinsson
23. Arnór Ingi Kristinsson
27. Dylan Chiazor ('65)
29. Vuk Oskar Dimitrijevic ('65)

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Valur Gunnarsson
Gísli Friðrik Hauksson
Diljá Guðmundardóttir
Hlynur Helgi Arngrímsson
Manuel Nikulás Barriga
Ágúst Leó Björnsson

Gul spjöld:
Daði Bærings Halldórsson ('63)
Daníel Finns Matthíasson ('68)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leiknir R hefur hér sigur á nöfnum sínum frá Fáskrúðsfirði. Geta þó verið ósáttir við færanýtinguna í dag.
92. mín
Gestirnir vilja hendi hér en Gunnar Oddur er ekki á sama máli. Verulega ósáttir á bekk gestanna.
90. mín
Klukkan slær 90.

3-4 mín bætt við geri ég ráð fyrir.
89. mín
Danni Finns með skot í vegginn og afturfyrir. Leiknir R á horn.
87. mín
Það er lítið að gerast í þessu. Svokölluð næstum því mótment.

Hér fá heimamenn aukaspyrnu á stórhættulegum stað.
85. mín
Inn:Ólafur Bernharð Hallgrímsson (Leiknir F.) Út:Guðmundur Arnar Hjálmarsson (Leiknir F.)
83. mín
Þetta verða áhugaverðar lokamínútur. Verður heimamönnum refsað fyrir að fara illa með dauðafæri?
81. mín
Inn:Blazo Lalevic (Leiknir F.) Út:Marteinn Már Sverrisson (Leiknir F.)
80. mín
Inn:Ágúst Leó Björnsson (Leiknir R.) Út:Sævar Atli Magnússon (Leiknir R.)
Tveggja marka maður í dag fyrirliðinn.
79. mín
Vuk í dauðafæri eftir undirbúning Sævars en fær boltann í höndina og framhjá.

Gunnar dæmir að sjálfsögðu aukaspyrnu.
78. mín Mark úr víti!
Arkadiusz Jan Grzelak (Leiknir F.)
Setur boltann öruggt niður í hornið.
78. mín
Vítaspyrna dæmd

Gestirnir fá vítaspyrnu.
75. mín
Vuk með skot himinhátt úr aukaspyrnunni.
74. mín Gult spjald: Guðmundur Arnar Hjálmarsson (Leiknir F.)
Goddur orðin spjaldaglaður.
73. mín
Ákveðin lágdeyða yfir þessu. Heimamenn þó mun betri og líklegri.
72. mín Gult spjald: Unnar Ari Hansson (Leiknir F.)
Togar Vuk niður.
69. mín Gult spjald: Chechu Meneses (Leiknir F.)
Fer í groddaralega tæklingu á Sævar og uppsker gult spjald.
68. mín Gult spjald: Daníel Finns Matthíasson (Leiknir R.)
65. mín
Siggi hendir í þrefalda skiptingu. Eflaust með hugan við næstu leiki og að menn séu ferskir.
65. mín
Inn:Vuk Oskar Dimitrijevic (Leiknir R.) Út:Sólon Breki Leifsson (Leiknir R.)
65. mín
Inn:Dylan Chiazor (Leiknir R.) Út:Árni Elvar Árnason (Leiknir R.)
65. mín
Inn:Brynjar Hlöðversson (Leiknir R.) Út:Máni Austmann Hilmarsson (Leiknir R.)
63. mín Gult spjald: Daði Bærings Halldórsson (Leiknir R.)
Uppsafnað
62. mín
Brynjar Hlöðversson er að mæta inná fyrir heimamenn. Frábærar fréttir fyrir þá að hann sé að fara af stað á ný.
61. mín
Bjarki Aðalsteins skallar boltann í net gestanna en flaggið á loft og það telur ekki.
59. mín Gult spjald: Arkadiusz Jan Grzelak (Leiknir F.)
Tekur Sævar niður í skyndisókn. Rétt
58. mín
Jesus Suarez Guerrero með skot af löngu færi en laaaaangt framhjá.
56. mín
Sævar með prýðilegt skot úr teignum en rétt yfir fer boltinn.
54. mín Gult spjald: Ásgeir Páll Magnússon (Leiknir F.)
Mjög ódýrt spjald. Mögulega uppsafnað.
53. mín
Hornspyrnan svífur yfir pakkann og endar í innkasti.
52. mín
Heimamenn fá hornspyrnu.
50. mín
Stöngin

Máni Austmann með skot í stönginga eftir sendingu frá Sævari.

Var í frábærri stöðu 7-8 metrum frá marki.

Dauðafærin halda áfram að fara forgörðum hjá heimamönnum.
48. mín
Fer rólega af stað hér í síðari hálfleik.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn

Gestirnir byrja með boltann hér í síðari hálfleik og þurfa að bæta í ætli þeir sér eitthvað út úr þessum leik.
45. mín
Inn:Danny El-Hage (Leiknir F.) Út:Bergsteinn Magnússon (Leiknir F.)
Gestirnir skipta um markmann í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Flautað til hálfleiks hér á Domusnova. Heimamenn leiða 2-0 og erfitt að halda öðru fram en að það sé sanngjarnt.
45. mín
Sólon í dauðafæri!!!!!!


En Arkadiusz bjargar á línu.

Staðan gæti verið 5-0 hér auðveldlega.
42. mín
Arkadiusz fer niður í baráttu við Árna Elvar og kveinkar sér. Tiltölulega fljótur á fætur og er í lagi.
41. mín
Sævar í gegn vinstra megin í teignum og í dauðafæri. Bergsteinn ver en flaggið fer á loft.
39. mín
Sólon gerir vel í að vinna sig í góða stöðu úti vinstra megin en á slakt skot/fyrirgjöf úr þröngri stöðu sem skilar engu.
37. mín
David Hidalgo með skot að marki en yfir fer boltinn. Þetta er þó í áttina hjá gestunum.
36. mín
Dagur Austmann með skot af talsverðu færi eftir undirbúning Sævars en boltinn framhjá markinu.
35. mín
Gestinir sækja hratt en fyrirgjöf Kfiah fer beint ú í hendur Guy.
31. mín
ÚFF.

Boltinn örfáum sentimetrum frá því að fara í vinkillinn en Bergsteinn andar léttar þegar boltinn fer framhjá markinu.
31. mín
Heimamenn fá aukaspyrnu á hættulegum stað. Danni Finns líklegur.
25. mín
Kfiah fer illa með góða stöðu fyrir gestina. Eigingjarn og tekur skotið vel fyrir utan teig þegar David er að mæta aleinn í hlaupið úti til hægri.
24. mín
Máni Austmann í dauðafæri en hittir boltann ekki af markteig eftir undirbúning Sólons.

Heimamenn gætu auðveldlega verið búnir að skora fleiri.
23. mín
Gestinir fá horn.
18. mín MARK!
Sævar Atli Magnússon (Leiknir R.)
Stoðsending: Máni Austmann Hilmarsson
Mark!

Heimamenn nýta sér hversu hátt gestirnir setja liðið og komast trekk í trekk afturfyrir vörn gestanna.

Máni Austmann geysist upp hægra megin og leggur boltann inn í teiginn þar sem Sævar mætir og klárar auðveldlega í markið af stuttu færi.
17. mín
Skyndisókn heimamanna 3 á 3 en Sólon passar ekki línunna og flaggið fer á loft.
16. mín MARK!
Sævar Atli Magnússon (Leiknir R.)
Mark!

Klaufagangur í vörn gestanna og Sævar sleppur einn gegn Bergsteini. Bergsteinn ver skot hans út til vinstri í teignum og Sævar eltir uppi boltann og setur hann í netið af varnarmanni úr þröngu færi.
14. mín
Gestirnir komast í fína stöðu við teig Leiknis R. Kfiah kemst inn á teiginn hægra meginn og er í frábæru færi en Guy ver vel.
12. mín
Gestirnir frá Fáskrúðsfirði setja liðið hátt upp á völlinn og freista þess að setja pressu á heimamenn. Jákvætt leikskipulag þar sem gæti þó komið í bakið á þeim.
7. mín
Danni Finns með sturlaða sendingu upp í vinstra hornið á Sævar en Bergsteinn mætir langt út úr markinu og setur boltann í innkast.
6. mín
Heimamenn talsvert öflugri hér í byrjun. Freista þess oft að setja boltann afturfyrir vörn gestanna fyrir fljóta framherja sína að elta.
3. mín
Sólon Breki!!!

Rangstöðutaktík gestanna klikkar illilega og Sólon sleppur einn í gegn, Bergsteinn mætir vel á móti og Sólon setur boltann beint í hann. Svona færi verður að nýta.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað hér á Domusnovavellinum. Það eru heimamenn sem hefja leik hér.
Fyrir leik
Liðin eru að ganga til vallar og þetta fer að bresta á. Vonumst líkt og alltaf eftir góðum og skemmtilegum leik.
Fyrir leik
Það er fámennt en góðmennt í stúkunni hér á móti mér. Ennþá þó um 10 mínútur í leik og fólk að tínast inn.
Fyrir leik
Vuk Óskar Dimitrijevic er á varamannabekk Leiknismanna í dag.

Siggi Höskulds eflaust að hugsa um að halda mönnum ferskum og rúlla á liðinu.
Fyrir leik
Fyrri Viðureignir

Liðin hafa leikið alls 7 leiki sín á milli samkvæmt opinberum gagnagrunni KSÍ.

Leiknir R. hefur sigrað 4 sinnum, 2 leikjum hefur lokið með jafntefli og Leiknir F. sigrað einu sinni.

Markatalan er 16-5 Reykjavíkurliðinu í hag.
Fyrir leik
Leiknir R.

Heimamenn úr Breiðholtinu eiga í annari en þó ekki síður mikilvægari baráttu um að komast upp í Pepsi Max að ári. Stöðugleiki hefur þó verið ákveðið vandamál hjá Leikni sem hefur tapað 3 af síðustu 5 leikjum sínum. Sigrar gegn Keflavík og ÍBV sýna þó að liðið á sínum degi er eitt besta lið deildarinnar.

3.sætið er hlutskipti Leiknis R fyrir leiki dagsins og gætu þeir með hagstæðum úrslitum í öðrum leikjum verið í 2.sæti að þeim loknum. Vert er þó að taka fram að Keflavík sem situr í 2.sæti þessa stundina 1 stigi á undan Leikni á leik til góða á önnur lið deildarinnar eftir að leik liðsins gegn Grindavík var frestað á dögunum.
Fyrir leik
Leiknir F.

Gestirnir frá Fáskrúðsfirði eiga í harðri baráttu um að forðast fall þetta sumarið. Sitja í 11.sæti deildarinnar fyrir leiki dagsins með 11 stig líkt og Þróttur en lakari markatala setur þá í fallsætið.

Gengi gestanna hefur ekki verið neitt sérstakt upp á síðkastið en 4 töp og 1 jafntefli í síðustu 5 leikjum kann yfirleitt ekki góðri lukku að stýra. Margt er þó spunnið í Fráskrúðsfirðinga sem munu eflaust mæta dýrvitlausir til leiks. Liðin sem þeir eru í baráttu við Magni og Þróttur mætast innbyrðis í dag og því ljóst að þeir mega illa við því að misstíga sig hér á Domusnovavellinum.
Fyrir leik
Góðan dag kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu Fótbolta.net frá leik Leiknis R og Leiknis F.
Nafnaslagur af bestu gerð framundan milli liða sem eiga í baráttu á sitthvorum enda töflunar.
Byrjunarlið:
1. Bergsteinn Magnússon (m) ('45)
2. Guðmundur Arnar Hjálmarsson ('85)
4. Chechu Meneses
7. Arkadiusz Jan Grzelak (f)
8. Jesus Suarez Guerrero
10. Marteinn Már Sverrisson ('81)
11. Sæþór Ívan Viðarsson
14. Kifah Moussa Mourad
16. Unnar Ari Hansson
18. David Fernandez Hidalgo
22. Ásgeir Páll Magnússon

Varamenn:
3. Blazo Lalevic ('81)
6. Jón Bragi Magnússon
23. Ólafur Bernharð Hallgrímsson ('85)

Liðsstjórn:
Brynjar Skúlason (Þ)
Amir Mehica
Jens Ingvarsson
Magnús Björn Ásgrímsson
Danny El-Hage

Gul spjöld:
Ásgeir Páll Magnússon ('54)
Arkadiusz Jan Grzelak ('59)
Chechu Meneses ('69)
Unnar Ari Hansson ('72)
Guðmundur Arnar Hjálmarsson ('74)

Rauð spjöld: