Fotbolti.net
Viktor Ingi Valgarðsson
2. deild karla
JÁVERK-völlurinn
Selfoss
Selfoss
0 - 0
KFG
KFG
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Fyrir leik
Selfoss
Byrjum að líta á heimaliðið, Selfoss.Stig í dag og Selfoss fer upp í Lengjudeildinna.Eftir að hafa fallið úr Lengjudeildinni í fyrra hefur liðið komið sér í þessa nokkuð ákjósanlegu stöðu hér í dag. Einn leikur og þörf á einu stigi en segja eflaust ekki nei við þremur góðum. Ef markmiðið næst ekki í dag þá þarf að treysta á að Haukar hleypi Kára ekki í þrjú stig, en Kári getur ef Selfoss tapar komist fyrir ofan þá á markatölu með sigri í sínum leik. Við munum því fylgjast vel spennt með hvernig þetta endar allt saman í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Viðar Örn Kjartansson er markahæstur í liði Selfoss og í 2.deild með 21mark í 19leikjum. Frosti Brynjólfsson er næst markahæstur í Selfoss með 8mörk en tvö af þeim komu mjög svo mikilvægum 2-1 sigri gegn Haukum í síðustu umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Dómarateymi leiksins
Twana Khalid Ahmed er á flautunni.
Aðstoðardómarar eru þeir Guðni Freyr Ingvason og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage.
Dómaraeftirlitsmaður er síðan Jón Magnús Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lokadagur í 2.deild!
Selfoss og KFG mætast hér á JÁVERK-vellinum í dag á slaginu 14:00!
Um er að ræða leik í lokaumferðinni sem fer öll fram á sama tíma. Bæði lið fá hér síðasta tækifærið til að klára sitt tímabil með stæl.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.