Fyrir leik
Fjölskylduskemmtun, tónlist og veisla!
Hægt er að sjá stórskemmtilega dagskrá fyrir leikinn hér fyrir neðan.
Fyrir leik
Gestirnir í Keflavík
Tímabilið hjá Keflavík hefur verið afar sveiflukennt. Liðið situr í 7. sæti með 21 stig. Fall er þó útilokað þar sem Völsungur og Tindastóll munu leika í 2. deild á næsta tímabili. Þær sigruðu FHL 3-1 í síðustu umferð.


Fyrir leik
Heimakonur í KR
KR hafa átt mjög gott tímabil og geta komið sér upp í Bestu í dag. Þær eru mjög góðar sóknarlega og unnu til dæmis 11-0 útisigur á Tindastól í síðustu umferð. Þær sigruðu einnig Hauka í 16. umferð sem var gríðarlega mikilvægur sigur í baráttunni um að komast upp.


Fyrir leik
Sæti í Bestu í boði!
Með sigri í dag fara KR upp í Bestu deild kvenna en þar voru þær síðast árið 2022. Eins og stendur eru þær í 2. sæti með 32 stig en Haukar í 3. sæti með 30 stig.


Fyrir leik
Dómarateymið
Jakob Léo Bjarnason er með flautuna í dag. Honum til halds og trausts eru Ingibjörg Garðarsdóttir Briem og Adam Smári Ottesen Guðlaugsson.


Fyrir leik
Lokadagur Lengjudeildar kvenna!
Heil og sæl lesendur góðir og verið velkomin í beina textalýsingu frá Meistaravöllum. Í dag tekur KR á móti Keflavík í lokaumferð Lengjudeildar kvenna. Leikurinn hefst á slaginu 14:00.




