Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Breiðablik
8
0
ÍBV
Sveindís Jane Jónsdóttir '1 1-0
Agla María Albertsdóttir '18 2-0
Alexandra Jóhannsdóttir '30 3-0
Rakel Hönnudóttir '38 4-0
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir '42 5-0
6-0 Helena Jónsdóttir '43 , sjálfsmark
Sveindís Jane Jónsdóttir '54 7-0
Agla María Albertsdóttir '68 8-0
27.09.2020  -  14:00
Kópavogsvöllur
Pepsi-Max deild kvenna
Aðstæður: Fínt fótboltaveður. Logn og létt rigning.
Dómari: Steinar Berg Sævarsson
Áhorfendur: 177
Maður leiksins: Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Byrjunarlið:
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
Sonný Lára Þráinsdóttir
4. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir ('73)
5. Hafrún Rakel Halldórsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir (f)
8. Heiðdís Lillýardóttir
9. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir ('80)
16. Alexandra Jóhannsdóttir ('65)
17. Sveindís Jane Jónsdóttir ('80)
18. Kristín Dís Árnadóttir
22. Rakel Hönnudóttir

Varamenn:
26. Íris Dögg Gunnarsdóttir (m)
15. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir ('73)
19. Esther Rós Arnarsdóttir ('80)
21. Hildur Antonsdóttir
23. Vigdís Edda Friðriksdóttir ('65)
27. Selma Sól Magnúsdóttir

Liðsstjórn:
Ólafur Pétursson (Þ)
Þorsteinn H Halldórsson (Þ)
Ragna Björg Einarsdóttir
Jóhanna Kristbjörg Einarsdóttir
Særún Jónsdóttir
Aron Már Björnsson
Jófríður Halldórsdóttir

Gul spjöld:
Alexandra Jóhannsdóttir ('61)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
8-0 öruggum sigri Blika lokið. Frábær frammistaða hjá Kópavogsliðinu sem sýnir sig best í því að liðið hefði mögulega getað skorað fleiri en 8 mörk í leiknum. ÍBV þurfa að snúa bökum saman eftir leikinn en Blikastúlkur mæta Val næsta laugardag á Origo-vellinum í því sem mætti kalla úrslitaleik um titilinn.
92. mín
Ragna Björg fær boltann úr hornspyrnunni og á glæsilega sendingu á kollinn á Vigdísi Lilju sem skallar boltann framhjá.
91. mín
Esther Rós er að koma ágætlega inn í þetta, vinnur horn eftir flott hlaup.
90. mín
Uppbótartíminn er að lágmarki þrjár mínútur.
89. mín
Inn:Díana Helga Guðjónsdóttir (ÍBV) Út:Kristjana R. Kristjánsd. Sigurz (ÍBV)
89. mín
Inn:Sunna Einarsdóttir (ÍBV) Út:Fatma Kara (ÍBV)
84. mín
ÍBV NÁ SKOTI Á MARK BLIKA

Þær nýttu sér liðsmuninn á meðan að Vigdís var að fá aðhlynningu utan vallar, áttu sendingu inn á teig og laflaus skalli á markið, en markskot þó.
82. mín
Vigdís Edda liggur hér eftir, lenti í samstuði og ég sá ekki almennilega hvað gerðist.
80. mín
Inn:Esther Rós Arnarsdóttir (Breiðablik) Út:Sveindís Jane Jónsdóttir (Breiðablik)
Það á sem sagt að hvíla landsliðið fyrir leikinn gegn Val á laugardag.
80. mín
Inn:Ragna Björg Einarsdóttir (Breiðablik) Út:Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (Breiðablik)
Það á sem sagt að hvíla landsliðið fyrir leikinn gegn Val á laugardag.
77. mín
Blikar ættu eiginlega að vera að vinna 12-0. Dauðafæri sem Agla María kemst í eftir frábæra fyrirgjöf frá Sveindísi, óheppin að setja boltann framhjá.
76. mín
Agla María með hornspyrnuna á Rakeli en ÍBV bjarga á línu. Annað horn.
73. mín
Inn:Vigdís Lilja Kristjánsdóttir (Breiðablik) Út:Bergþóra Sól Ásmundsdóttir (Breiðablik)
Bergþóra búin að vera ágæt í hægri bakverðinu, Rakel dettur niður í bakvörðinn núna og Vigdís Lilja fer á hægri kantinn. Karólína fer þá inn á miðjuna með Andreu og Vigdísi Eddu.
72. mín
Vigdís Edda nær skoti sem fer af Fötmu og í horn.
68. mín MARK!
Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Rakel Hönnudóttir
Karólína nær fyrirgjöf inn í teig á Rakeli sem tekur fallega við boltanum, sendir á Öglu Maríu sem gerir þetta glæsilega. Agla feikar, fer á vinstri og setur boltann fast í þaknetið.
65. mín
Inn:Vigdís Edda Friðriksdóttir (Breiðablik) Út:Alexandra Jóhannsdóttir (Breiðablik)
Bæði lið gera breytingar. Alexandra spilaði náttúrulega landsleiki um daginn og er mögulega eitthvað þreytt.
65. mín
Inn:Sara Dröfn Rikharðsdóttir (ÍBV) Út:Thelma Sól Óðinsdóttir (ÍBV)
62. mín
Sveindís fyrir opnu marki. Setur boltann framhjá með vinstri.
61. mín Gult spjald: Alexandra Jóhannsdóttir (Breiðablik)
Fer í bakið á Fötmu sem er eitthvað eftir sig eftir þetta.
60. mín
Inn:Margrét Helgadóttir (ÍBV) Út:Íva Brá Guðmundsdóttir (ÍBV)
Þá hefur þessi fjórtán ára gamli leikmaður lokið leik í dag.
59. mín
Agla María með enn eina hornspyrnuna í leiknum, á Rakeli Hönnu sem sendir yfir á hina stöngina þar sem Alexandra skallar boltann yfir markið.
58. mín
Blikar að fá sitt níunda horn í leiknum. Karólína sendir boltann í hlaupaleiðina fyrir Bergþóru sem reynir fyrirgjöf en af varnarmanni ÍBV og aftur fyrir fer boltinn.
56. mín
Agla María í dauðafæri. Sveindís keyrir inn á teig ÍBV, sendir á Öglu sem leggur boltann framhjá eftir að hafa lagt hann fyrir sig.
54. mín MARK!
Sveindís Jane Jónsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
Áttunda hornspyrna Blika í leiknum og það er 7-0.

Agla María tekur gott horn inn á teiginn á Andreu sem skýtur á markið, Auður ver á Sveindísi og í þetta skiptið bregst Sveindísi ekki bogalistin heldur leggur boltann lauflétt í netið með vinstri.
51. mín
Agla María tekur horn inn á teig en skot Blika lélegt og auðvelt fyrir Auði að handsama knöttinn.
48. mín
Agla María köttar af vinstri kantinum inn á teig ÍBV, fer framhjá tveimur leikmönnum ÍBV og nær skotinu á Auði sem ver boltann beint á Sveindísi en frákastið frá Sveindísi er líka varið af Auði en ekkert verður úr horninu. Vel gert hjá Auði!
46. mín
Inn:Berta Sigursteinsdóttir (ÍBV) Út:Selma Björt Sigursveinsdóttir (ÍBV)
ÍBV gera eina breytingu á liðinu í hálfleik.
46. mín
Þá fer leikurinn aftur af stað.
45. mín
Hálfleikur
6-0 í hálfleik. Yfirburðirnir algjörir.
43. mín SJÁLFSMARK!
Helena Jónsdóttir (ÍBV)
Stoðsending: Sveindís Jane Jónsdóttir
Agla María þrumar boltanum inn á teig ÍBV þar sem boltinn skoppar af nokkrum leikmönnum og síðast af Sveindísi áður en Helena sparkar boltanum óvart í netið.
42. mín MARK!
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
Andrea leikur sér fallega með boltann fyrir utan teig ÍBV og nær að setja hann á Karólínu sem sólar tvo leikmenn ÍBV og þrumar boltanum með vinstri í hornið.
38. mín MARK!
Rakel Hönnudóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Agla María Albertsdóttir
Falleg hornspyrna beint inn á markteiginn og Rakel á ekki í neinum vandræðum með að skalla boltann í netið. Nánast eins og leikmenn ÍBV vildu ekki dekka hana, hún var það mikið ein.
32. mín
Andrea reynir þrumufleyg sem fer í fæturnar á Sveindísi og aftur fyrir. Blikar eiga leikinn.
30. mín MARK!
Alexandra Jóhannsdóttir (Breiðablik)
Alexandra gerir þetta frábærlega. Boltinn fellur inn í teig ÍBV þar sem Alexandra vinnur hann í baráttu við Kristjönu. Alexandra snýr svo eiginlega á endalínunni og vippar boltanum yfir Auði og inn í markið.
28. mín
Agla María vinnur aukaspyrnu rétt vinstra megin við teig ÍBV og tekur hana sjálf. Skotið hennar himinhátt yfir mark ÍBV.
26. mín
Agla María með þrumuskalla í markið oooog það er ekki mark. Sveindís fór á 200 kílómetra hraða upp hægri kantinn og sendi fyrir á Öglu sem stangaði boltann í netið en flaggið fór á loft þar sem boltinn hafði farið aftur fyrir.
24. mín
Sveindís og Agla! Markaskorarnir láta boltann fara framhjá sér. Flott sending frá Bergþóru en bæði Sveindís og Agla hitta boltann ekki almennilega.
20. mín
Kristín Dís með sláarskot og það með vinstri! Vinnur boltann og skeiðar upp völlinn áður en hún ákveður að negla á markið með vinstri og boltinn syngur í þverslánni. Út í teig fer boltinn en engin hætta skapast.
18. mín MARK!
Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Alexandra Jóhannsdóttir
Frábær sending frá Alexöndru með vinstri og Agla einhvern veginn "contrar" boltann og hann svífur í netið.
16. mín
Bergþóra reynir að koma Selmu Björt í færi en Selma segir nei takk og sparkar boltanum bara í innkast.
14. mín
Sveindís með flotta sendingu inn í teiginn á Karólínu sem sker boltann inn í teig á Öglu Maríu sem nær ekki til boltans og Auður handsamar hann.
11. mín
Flott sending frá Karólínu inn á teiginn en Alexandra nær ekki til boltans og hann rúllar aftur fyrir.
9. mín
Blikar nánast búnar að vera með boltann allan leikinn síðan að hann hófst en ekki komist í alvöru færi eftir markið.
5. mín
Karólína tekur hornspyrnu hægra megin, sending inn í teig á Alexöndru sem skallar boltann rétt yfir markið. Áðan átti Andrea Rán skot sem fór rétt yfir markið líka.
1. mín MARK!
Sveindís Jane Jónsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Agla María Albertsdóttir
Þetta tók ekki nema eina mínútu. Agla fær boltann eftir hornið og á geggjaða fyrirgjöf á kollinn á Sveindísi sem skorar með skalla.
1. mín
ÍBV liðið sækir í átt að Fífunni en Blikaliðið í átt að Sporthúsinu. Sveindís með fyrsta færið, fer inn á teiginn vinstra megin en fær horn.
1. mín
Leikur hafinn
Selma Björt sparkar leikinn í gang.
Fyrir leik
Þá gengur Blikaliðið inn á völlinn og ÍBV liðið ætti þá að rölta hérna inn fljótlega. Leikurinn fer að hefjast.
Fyrir leik
Spádómsglaðir menn í fjölmiðlaboxinu hafa gefið út spár fyrir leikinn og eru þær svohljóðandi:

Hilmar Jökull, Fótbolti.net: 11-0
Ingvi Þór, Vísir.is: 9-0
Kristófer, MBL: 12-0
Fyrir leik
Blikar byrja með 3 leikmenn sem léku með íslenska landsliðinu á dögunum en þær Sveindís, Alexandra og Karólína Lea byrjuðu allar leikinn gegn Svíum á dögunum. Þá gera Blikastúlkur eina breytingu á byrjunarliðinu frá síðasta deildarleik þegar liðið vann 7-0 sigur gegn Þór/KA fyrir norðan. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir kemur inn í liðið í stað Hildar Þóru.
Fyrir leik
ÍBV er án lykilmanna í dag vegna banna og sóttkvíar en nokkrir leikmenn liðsins voru í landsliðsverkefnum í síðustu viku.
Fyrir leik
Leikur þessara liða átti fyrst að fara fram í gær en Eyjastúlkur komust ekki til meginlandsins vegna veðursins í gær. Þetta er síðasti leikurinn í 15. umferð Pepsi Max deildarinnar.
Fyrir leik
Góðan og gleðilegan dag kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá leik Breiðabliks og ÍBV á Kópavogsvelli í dag.
Byrjunarlið:
1. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (m)
Selma Björt Sigursveinsdóttir ('46)
2. Ragna Sara Magnúsdóttir
3. Júlíana Sveinsdóttir
6. Thelma Sól Óðinsdóttir ('65)
7. Þóra Björg Stefánsdóttir
8. Kristjana R. Kristjánsd. Sigurz ('89)
10. Fatma Kara (f) ('89)
11. Íva Brá Guðmundsdóttir ('60)
23. Hanna Kallmaier
24. Helena Jónsdóttir

Varamenn:
30. Guðný Geirsdóttir (m)
5. Margrét Helgadóttir ('60)
11. Berta Sigursteinsdóttir ('46)
14. Díana Helga Guðjónsdóttir ('89)
22. Sara Dröfn Rikharðsdóttir ('65)
23. Embla Harðardóttir
27. Sunna Einarsdóttir ('89)

Liðsstjórn:
Andri Ólafsson (Þ)
Sigríður Sæland Óðinsdóttir
Jón Ólafur Daníelsson
Sonja Ruiz Martinez
Birkir Hlynsson
Þorsteinn Magnússon

Gul spjöld:

Rauð spjöld: