Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Breiðablik
3
0
ZNK Osijek
Hildur Antonsdóttir '9 1-0
Taylor Marie Ziemer '10 2-0
Agla María Albertsdóttir '48 3-0
09.09.2021  -  17:00
Kópavogsvöllur
Meistaradeild kvenna
Aðstæður: Frábærar aðstæður - logn og sólin aðeins að láta sjá sig
Dómari: Abigail Marriott (ENG)
Áhorfendur: 871
Maður leiksins: Agla María Albertsdóttir
Byrjunarlið:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
5. Hafrún Rakel Halldórsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir
8. Taylor Marie Ziemer
13. Ásta Eir Árnadóttir (f)
16. Tiffany Janea Mc Carty
17. Karitas Tómasdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
21. Hildur Antonsdóttir ('86)
27. Selma Sól Magnúsdóttir
28. Birta Georgsdóttir ('84)

Varamenn:
15. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir ('84)
23. Vigdís Edda Friðriksdóttir ('86)

Liðsstjórn:
Vilhjálmur Kári Haraldsson (Þ)
Birna Kristjánsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
STÓRKOSTLEGUR ÁRANGUR BLIKA!

BREIÐABLIK ER KOMIÐ Í RIÐLAKEPPNI MEISTARADEILDAR EVRÓPU

Takk fyrir mig, minni á viðtöl sem koma inn við fyrsta tækifæri!
95. mín
Gestirnir komast í góða sókn og Balic tekur skotið en Telma ver vel - hún hefur verið frábær í þessum leik!
95. mín
871 á vellinum!
93. mín
Stuðningsmenn Blika standa allir upp og klappa fyrir liðinu - geggjaður árangur
92. mín
Lítið að gerast Blikar halda bara boltanum og eru að sigla þessu heim
90. mín
Uppbótartími er að minnsta kosti fimm mínútur
89. mín
Blikar fá hornspyrnu. Gestirnir hreinsa
88. mín
Vigdís Lilja reynir hér skot eftir gott samspil Blike en boltinn fer framhjá markinu
87. mín
Mig langar að hrósa Blikum fyrir góða umgjörð á leiknum í kvöld - allt í toppmálum. Líka stór plús að vel var hugsað um blaðamennina
86. mín
Inn:Vigdís Edda Friðriksdóttir (Breiðablik) Út:Hildur Antonsdóttir (Breiðablik)
Blikar gera hér sína aðra skiptingu. Hildur frábær í dag
85. mín
Agla komst hér ein í gegn eftir góða stungu en skotið hennar fór rétt framhjá
84. mín
Inn:Vigdís Lilja Kristjánsdóttir (Breiðablik) Út:Birta Georgsdóttir (Breiðablik)
Vigdís kemur hér inn fyrir Birtu. Mjög efnileg og gaman að hún fái mínútur hér í kvöld
81. mín
Osijek fær hornspyrnu.
Og annað horn
80. mín
Rólegt yfir þessu þessa stundina sem er bara fínt fyrir Blika.
75. mín
Vá þarna munaði litlu, Agla gerir vel og tekur skot en það er rétt framhjá markinu
72. mín
Inn:Lorena Balic (ZNK Osijek) Út:Maja Joscak (ZNK Osijek)
Balic var nokkuð spræk í síðasta leik. Vonandi tekur hún ekki upp á því aftur
72. mín
Inn:Iva Culek (ZNK Osijek) Út:Maria Kunstek (ZNK Osijek)
70. mín
Flottur bolti frá Öglu beint á hausinn á Tiffany en hún skallar framhjá. Hún hefur farið illa með færi sín í leiknum
68. mín
Inn:Martina Salek (ZNK Osijek) Út:Merjema Medic (ZNK Osijek)
Medic eitthvað meidd
66. mín
Aftur fá Blikar hornspyrnu
65. mín
Blikar fá hornspyrnu. Gestirnir hreinsa strax og önnur hornspyrna niðurstaðan. Aftur hreinsa gestirnir.
60. mín
Hvernig í ósköpunum skoruðu Blikar ekki þarna. Birta Georgs með frábæran sprett upp völlinn og góðan bolta fyrir á Tiffany sem þarf rétt að pota honum yfir línuna en hún skýtur framhjá
60. mín Gult spjald: Maja Joscak (ZNK Osijek)
59. mín
"Og við elskum ykkur allar og við trúum að Blikar fari áfram í Champa league" ómar hér um völlinn. Stuðningsmannasveit Blika verið flott í kvöld
58. mín
Frábært spil hjá Blikum sem endar með skoti hjá Hildi Antons en það er hátt yfir
57. mín
Inn:Barbara Zivkovic (ZNK Osijek) Út:Anela Lubina (ZNK Osijek)
57. mín
Inn:Mateja Andrlic (ZNK Osijek) Út:Ivana Bojcic (ZNK Osijek)
Fyrsta skipting leiksins
55. mín Gult spjald: Maria Kunstek (ZNK Osijek)
Fyrir brot á Hildi Antons
48. mín MARK!
Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Tiffany Janea Mc Carty
JÁJÁJÁ!! ALVÖRU BYRJUN Á SEINNI!
Tiffany kom með góða stungusendingu á Öglu sem tók frekar laust skot sem Belaj missir klaufalega inn.

Er ekki oft talað um þetta mikilvæga þriðja mark?
46. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið aftur af stað - nú sækja Blikar í átt að Fífunni góðu.

KOMA SVO!!
45. mín
Hálfleikur
Þá hefur Marriott flautað til hálfleiks þar sem Blikar leiða verðskuldað með tveimur mörkum.
Flottur hálfleikur hjá þeim og hafa heilt yfir verið betra liðið. Osijek aðeins meira farnar að ógna síðustu mínútur hálfleiksins svo nú fær Vilhjálmur tíma með stelpunum til að skipuleggja liðið og vonandi mæta þær grimmar og tilbúnar í seinni hálfleik. Það er mikið undir!
45. mín
+1

Lojna tók aukaspyrnunna og hún skaut rétt framhjá markinu
45. mín
Osijek fær aukaspyrnu á hættulegum stað
44. mín
Það er aðeins farið að liggja á Blikum svona undir lok seinni hálfleiks. Koma svo - Halda út stelpur
41. mín
ÚFF þarna munaði litlu. Flott sókn hjá Osijek sem endaði með skoti frá Medic sem fór rétt framhjá markinu með viðkomu í Karítas. Hélt að þessi væri inni.
38. mín
AGLA MEÐ ÞRUMUSKOT Í SLÁ!
Þessi hefði aðlveg mátt enda inni í markinu segi ég nú bara
37. mín
TELMA MEÐ ALVÖRU VÖRSLU!
Klúður hjá Selmu sem sendir boltann til baka beint á Lojna sem er komin ein í gegn en Telma kemur út og ver! Þarna munaði litlu
33. mín
Fín sókn hjá blikum, Tiffany fékk boltann hægri megin og sótti inn að teig en sendingin kom fyrir aftan Birtu og Belaj náði að handsama knöttinn
31. mín
Kovacevic sólaði hér Blika upp úr skónum en Hafrún náði að pota í boltann að lokum og Telma kom vel út á móti og sparkaði boltanum í burtu
28. mín
Blikar fá aukaspyrnu á fínum stað, rétt fyrir utan vítateig hægra megin.

Varnarmenn Osiejek hreinsa í horn sem Taylor tekur - spyrnan er góð en varnarmenn gestanna ná að skalla í burtu
22. mín
Mér sýnist vera flott mæting á völlinn og stuðningsmannasveit Blika er mætt og hvetur stelpurnar vel áfram. Gaman að sjá
18. mín
Það er aðeins rólegra yfir þessu núna eftir rosalegar upphafsmínútur
11. mín Gult spjald: Merjema Medic (ZNK Osijek)
Fyrir brotið á Telmu
11. mín
Medic að komast ein í gegn en Telma gerir frábærlega og kemur út og nær boltanum á undan. Medic fer harkalega í Telmu og fær gult spjald að launum
10. mín MARK!
Taylor Marie Ziemer (Breiðablik)
HVAÐ ER Í GANGI! ÓTRÚLEG BYRJUN HJÁ BLIKUM!
Taylor fær boltann í D-boganum og hún einfaldlega hamrar knettinum í netið og Belaj í markinu horfir á. Frábært mark
9. mín
Hildur fagnar fyrsta markinu!

9. mín MARK!
Hildur Antonsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Agla María Albertsdóttir
JESSSSSSSSSS!!!
ALGJÖRLEGA FRÁBÆRT.
Hildur fékk sendingu í gegn frá Öglu og var komin ein á móti markmanni og hún kláraði fagmannlega í hægra hornið.
8. mín
Osijek fær hér hornspyrnu. Ágætis spyrna en Blikar hreinsa
5. mín
Blikar fá hornspyrnu. Taylor tók spyrnuna sem fór yfir allan pakkann. Boltinn barst svo aftur inn í teig og Hildur Antons var í baráttunni en boltinn fór yfir markið. Markspyrna
3. mín
Ágætis tilraun hjá Blikum, Agla með flottan bolta út á hægri kantinn á Birtu en hún missir boltann aðeins of langt frá sér og Belaj í markinu tekur þennan
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað - ÉG ER AÐ YFIRPEPPAST.

Osijek byrja með boltann. Blikar sækja í átt að Sporthúsinu.
Fyrir leik
Fyrir leik
Liðin ganga nú frá búningsklefum og stilla sér upp - þetta er alveg að hefjast
Fyrir leik
Það styttist í stórleikinn. Aðeins 10 mínútur í leik og fólk streymir að
Fyrir leik
Byrjunarlið króatíska liðsins er óbreytt frá fyrri leiknum.

Í þeim leik kom Selma Sól Magnúsdóttir Breiðabliki yfir á 24. mínútu en Merjema Medic jafnaði leikinn á 31. mínútu og þar við sat.
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Byrjunarliðið hefur verið tilkynnt:

Byrjunarliðin hafa verið opinberuð og er ein breyting á liði Breiðabliks frá fyrri leiknum. Heiðdís Lillýardóttir er ekki í leikmannahópi Breiðablik og inn í liðið fyrir hana kemur Birta Georgsdóttir.

Miðað við vef UEFA fer Karitas Tómasdóttir í miðvörðinn við hlið Krístínar Dísar, Selma Sól Magnúsdóttir fer niður á miðjuna og Birta spilar úti hægra megin með þær Öglu Maríu Albertsdóttur úti vinstra megin og Tiffany Mccarthy fyrir miðju í þriggja manna sóknarlínu.
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Það er enskt dómarateymi á leiknum. Abigail Marriott dæmir leikinn og henni til aðstoðar eru þær Lisa Rashid og Melissa Burgin.

Helen Conley er svo fjórði dómari.
Marriott
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Það er ekki bara heiðurinn að komast í riðlakeppnina undir heldur er líka fínn peningur fyrir fyrir að komast áfram.

Á vefsíðu Aftonbladet segir að félög fái 400 þúsund evrur fyrir að komast í riðlakeppnina eða tæpar 60 milljónir íslenskra króna.
Fyrir leik
Selma Sól skoraði mark Blika í Króatíu.


Fyrir leik
Leið Blika í þennan úrslitaleik um sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar:
-Breiðablik vann KÍ Klakksvík í fyrsta leik 7-0 og svo Gintra frá Litháen 8-1 í næsta leik.

Breiðablik og Osijek mættust í síðustu viku í Króatíu og lauk leiknum með 1-1 jafntefli liðanna þar sem Blikar voru sterkari aðilinn.
Fyrir leik
Þetta er sannkallaður STÓRLEIKUR fyrir Breiðablik en með sigri tryggir liðið sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.

Komist Breiðablik áfram fá þær heila SEX leiki í viðbót í Meistaradeildinni þetta árið. Um er að ræða fjögurra liða riðla og verður spilað heima og úti frá október og fram í desember.

Þetta er nýtt fyrirkomulag í kvennaboltanum og því ótrúlega spennandi tækifæri fyrir Blikastelpur!
Fyrir leik
Góðan og blessaðan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik Breiðablik og Osijek í Meistaradeild kvenna.
Byrjunarlið:
1. Maja Belaj (m)
3. Mateja Bulut
4. Ivana Bojcic ('57)
5. Nela Andric
7. Kristina Nevrkla
8. Maja Joscak ('72)
10. Izabela Lojna (f)
11. Merjema Medic ('68)
14. Maria Kunstek ('72)
18. Klara Kovacevic
20. Anela Lubina ('57)

Varamenn:
12. Katarina Mendes (m)
6. Iva Culek ('72)
9. Lorena Balic ('72)
13. Mateja Andrlic ('57)
15. Helena Stimac
16. Martina Salek ('68)
17. Klara Barisic
21. Barbara Zivkovic ('57)

Liðsstjórn:
Igor Budisa (Þ)

Gul spjöld:
Merjema Medic ('11)
Maria Kunstek ('55)
Maja Joscak ('60)

Rauð spjöld: