Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
Fylkir
1
6
Valur
0-1 Adam Ægir Pálsson '19
0-2 Andri Rúnar Bjarnason '21
Unnar Steinn Ingvarsson '41 , sjálfsmark 0-3
0-4 Aron Jóhannsson '45
Benedikt Daríus Garðarsson '48 1-4
1-5 Sigurður Egill Lárusson '58
1-6 Hlynur Freyr Karlsson '81
03.05.2023  -  20:15
Würth völlurinn
Besta-deild karla
Aðstæður: Skýjað, smá gola og hiti um 8 gráður
Dómari: Pétur Guðmundsson
Maður leiksins: Sigurður Egill Lárusson (Valur)
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
2. Ásgeir Eyþórsson ('14)
4. Arnór Gauti Jónsson
10. Benedikt Daríus Garðarsson
11. Þórður Gunnar Hafþórsson ('77)
17. Birkir Eyþórsson
18. Nikulás Val Gunnarsson ('62)
24. Elís Rafn Björnsson ('45)
27. Arnór Breki Ásþórsson
77. Óskar Borgþórsson
80. Ólafur Karl Finsen ('62)

Varamenn:
12. Jón Ívan Rivine (m)
3. Unnar Steinn Ingvarsson ('14)
6. Frosti Brynjólfsson ('77)
8. Ragnar Bragi Sveinsson ('45)
9. Pétur Bjarnason ('62)
16. Emil Ásmundsson ('62)
25. Þóroddur Víkingsson

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Óðinn Svansson
Ólafur Ingvar Guðfinnsson
Halldór Steinsson
Olgeir Sigurgeirsson
Smári Hrafnsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sannfærandi sigur Valsmanna. Pétur Guðmundsson flautar til leiksloka.

Viðtöl og skýrsla væntanleg.

Takk fyrir mig í kvöld.
90. mín
Klukkan slær 90 á Wurthvellinum og uppbótartíminn er að lágmarki tvær mínútur.
87. mín
Benedikt Daríus fær boltann við vítateigslínuna og á skot en Schram ver.
86. mín
Óskar Borgþórsson!! Tekur aukaspyrnuna og boltinn smellur í stönginni.
85. mín Gult spjald: Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
Benedikt var á leiðinni í átt að teig Vals og Tryggvi Hrafn brýtur klaufalega á sér þegar Benedikt var að koma sér í góða stöðu.
81. mín MARK!
Hlynur Freyr Karlsson (Valur)
Stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson
Tryggvi Hrafn tekur hornspyrnu frá hægri og finnur pönnuna á Hlyni sem stangar boltann í netið.
77. mín
Inn:Frosti Brynjólfsson (Fylkir) Út:Þórður Gunnar Hafþórsson (Fylkir)
76. mín Gult spjald: Lúkas Logi Heimisson (Valur)
75. mín
Inn:Þorsteinn Emil Jónsson (Valur) Út:Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur)
73. mín
Kristinn Freyr sendir Guðmund Andra í gegn sem á skot en Óli ver í hornspyrnu.
68. mín
Emil Ásmunds með skot fyrir utan teig en boltinn framhjá.
66. mín
Tryggvi Hrafn! Fær boltann út til vinstri og á lúmska tilraun að marki Fylkis en Ólafur slær boltann í hornspyrnu.
63. mín
Emil Ásmundsson! Fær boltann fyrir utan teig og hittir hann vel og boltinn fer í stöngina.
62. mín
Inn:Emil Ásmundsson (Fylkir) Út:Ólafur Karl Finsen (Fylkir)
62. mín
Inn:Pétur Bjarnason (Fylkir) Út:Nikulás Val Gunnarsson (Fylkir)
61. mín
Frederik Schram með vörslu Þórður Gunnar lyftir boltanum fyrir á Óskar Borgþórs sem var aleinn inn á teignum og nær skoti en Schram með rosalega markvörslu.
59. mín
Inn:Guðmundur Andri Tryggvason (Valur) Út:Adam Ægir Pálsson (Valur)
58. mín MARK!
Sigurður Egill Lárusson (Valur)
Stoðsending: Birkir Már Sævarsson
Birkir Már fær boltann út á hægri og á sendingu á fjær og Sigurður Egill mætir á ferðinni og setur boltann í jörðina og boltinn skoppar yfir Óla í markinu.
51. mín Gult spjald: Orri Hrafn Kjartansson (Valur)
Valar tapar boltanum klaufalega á miðjum velli og Orri brýtur á Benedikt Daríus.
48. mín MARK!
Benedikt Daríus Garðarsson (Fylkir)
Birkir Heimis fær boltann aftast og missir boltann í fætur Benedikts sem keyrir í átt að marki og setur Schram á rassinn og leggur boltann í netið.
46. mín
Síðari hálfleikurinn er farinn af stað.
45. mín
Inn:Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur) Út:Andri Rúnar Bjarnason (Valur)
45. mín
Inn:Orri Hrafn Kjartansson (Valur) Út:Aron Jóhannsson (Valur)
45. mín
Inn:Ragnar Bragi Sveinsson (Fylkir) Út:Elís Rafn Björnsson (Fylkir)
45. mín
Inn:Haukur Páll Sigurðsson (Valur) Út:Elfar Freyr Helgason (Valur)
45. mín
Hálfleikur
Pétur Guðmundsson flautar til hálfleiks.

Valsmenn gjörsamlega að valta yfir heimamenn í Fylki.
45. mín MARK!
Aron Jóhannsson (Valur)
Stoðsending: Sigurður Egill Lárusson
Game over Adam Ægir fær boltann fyrir utan teig og á huggulegan bolta í hlaup inn á teig Fylkismanna á Sigurður Egil sem setur hann út í teiginn á Aron Jó sem neglir boltanum upp í samskeytin nær.

Alvöru mark!
45. mín
Klukkan slær 45 hér á Wurth og einni mínútu bætt við.
41. mín SJÁLFSMARK!
Unnar Steinn Ingvarsson (Fylkir)
ÚFFFF.

Adam Ægir fær boltann og færir boltann yfir á Lúkas Loga sem setur boltann inn á teiginn og Unnar Steinn ætlar að hreinsa í hornspyrnu en neglir boltananum bara í sitt eigið net.

Þetta var vont fyrir Unnar og Fylkismenn.
40. mín
Óskar Borgþórsson fær boltann fær boltann fyrir utan og tekur létt skæri áður en hann reynir að lauma boltanum í nær en Schram vel á verði og ver.
37. mín
Benedikt Daríus við það að sleppa í gegn en Hlynur gerir vel og eltir hann upp eftir að hafa tapað boltanum klaufalega.
34. mín
Þórður Gunnar með rosalegan sprett! Fær boltann við miðjuna og keyrir af stað og er á leiðinni inn á teiginn þegar Sigurður Egill brýtur á honum á vítateigslínunni.

Arnór Breki setur boltann yfir vegginn og Schram með góða vörslu.
31. mín
Kiddi Freyr fær boltann og tíar hann upp fyrir Adam Ægi sem setur boltann hátt yfir.
28. mín
Kristinn Freyr fær boltann og á huggulega skiptingu yfir á Birki Má sem finnur Andra Rúnar sem nær ekki að koma skoti á markið.
26. mín
Algjör einstefna hjá Valsmönnum.

Sigurður Egill með góðan bolta fyrir á Andra Rúnar sem nær skoti en Elís Rafn setur fótinn út og nær að koma í veg fyrir þriðja mark Vslsmanna.
21. mín MARK!
Andri Rúnar Bjarnason (Valur)
Stoðsending: Adam Ægir Pálsson
MAAARK Ekki ósvipað og fyrra markið hjá Valsmönnum!

Adam Ægir fær boltann út til hægri og á langa sendingu fyrir inn að vítapunkti þar sem Andri Rúnar er mættur og setur hann í netið!

Þessi sending hjá Adami Ægi var algjört augnakonfekt.
19. mín MARK!
Adam Ægir Pálsson (Valur)
Stoðsending: Sigurður Egill Lárusson
MAAAAAAARK Sigurður Egill fær boltann út til vinstri og á góðan bolta fyrir á Adam Ægi sem tekur hann í fyrsta með vinstri fæti og boltinn í netið.

Þetta var snyrtilegt hjá AP
17. mín
Adam Ægir fær boltann og tapar boltanum klaufalega og Ólafur Karl kemur sér í gott færi en Valsmenn ná að verjast vel.
14. mín
Inn:Unnar Steinn Ingvarsson (Fylkir) Út:Ásgeir Eyþórsson (Fylkir)
11. mín
Ásgeir Eyþórs liggur Ásgeir óheppinn og virðist fara aftan í læri og biðpur um skiptingu.
10. mín
Birkir Már tekur frábært hlaup upp hægri vænginn og fær boltann frá Aroni Jó og Birkir á fyrirgjöf á Andra Rúnar sem nær ekki að stýra boltanum á markið.
9. mín
Aron Jó reynir fyrirgjöf en boltinn af Nikulási sýndist mér og í hornspyrnu.

Adam Ægir tekur spyrnuna og Andri Rúnar nær skalla en boltinn framhjá.
7. mín
Lúkas Logi! Fær boltann við teig Fylkis og reynir skot sem fer í varnarmann og fær boltann aftur og fær aðra tilraun en skotið hans framhjá markinu.
6. mín
VÁÁÁ Nikulás Val fær boltann á miðjunni og flengir boltanum út á Þórð Gunnar sem fær boltann við teiginn og nær skoti góðu skoti á markið sem Schram ver í horn.
4. mín
Óskar Borgþórs á góða fyrirgjöf inn á teig Vals sem Valsmenn skalla í burtu.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað! Ólafur Karl Finsen sparkar þessu af stað.

Góða skemmtun!
Fyrir leik
Pétur Guðmundsson leiðir liðin inn á völlinn Besta stefið er komið á og allt að verða til reiðu.

Áhorfendur mættu vera fleiri hér á Wurth svo ég hvet ykkur kæru lesendur til að skella ykkur á völlinn!
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Fylkis gerir eina breytingu á sínu liði frá tapinu gegn. Óskar Borgþórsson kemur inn í liðið fyrir Orra Svein Stefánsson sem er utan hóps í dag.

Arnar Grétarsson þjálfari Vals gerir tvær breytingar á sínu liði frá sigrinum gegn Stjörnunni í síðustu umferð. Elfar Freyr Helgason byrjar sinn fyrsta leik á tímabilinu þá byrjar Lúkas Logi Heimisson einnig. Guðmundur Andri Tryggvason og Orri Hrafn Kjartansson fá sér sæti á tréverkinu.


Fyrir leik
Prettyboitjokko spáir í 5. umferð Bestu Spámaður umferðarinnar er Patrik Atlason, sem flestir þekkja sem tónlistarmanninn prettyboitjokko eftir að samnefnt lag var gefið út fyrr á árinu.

Fylkir 0 - 3 Valur
Jújú, Valur er með AP sem er jú PBT og CEO of prettyboitjokko inc, þannig þetta er 3-0.





AP, PBT og CEO of prettyboitjokko inc
Fyrir leik
Valur Valsmenn sitja fyrir leik kvöldsins í öðru sæti deildarinnar með 9.stig aðeins þremur stigum á eftir toppliði Víkings og hefur liðið verið að ná í úrslit í síðustu leikjum þrátt fyrir að sérfræðingar hafa gagnrýnt liðið fyrir ekki nógu góða spilamennsku.

Valur fékk Stjörnuna í heimsókn í síðustu umferð og unnu 3-2 með dramatísku sigurmarki frá Birki Heimissyni alveg undir lok leiks.



Hetjan á Origovellinum í síðustu umferð.
Fyrir leik
Fylkir Fylkir situr fyrir leik kvöldsins í tíunda sæti deildarinnar með þrjú stig en liðið er búið að skora fimm mörk í sumar og fengið á sig sjö.

Fylkismenn fóru í Kórinn í síðustu umferð og mættu HK í nýliðaslag sem endaði með 1-0 sigri HK.


Fyrir leik
Verið Velkomin! Góða kvöldið lesendur góðir og verið velkomin í beina textalýsingu frá Würth vellinum þar sem Fylkir tekur á móti Val í 5.umferð Bestu deildar karla.


Byrjunarlið:
1. Frederik Schram (m)
2. Birkir Már Sævarsson
3. Hlynur Freyr Karlsson
4. Elfar Freyr Helgason ('45)
5. Birkir Heimisson
7. Aron Jóhannsson ('45)
10. Kristinn Freyr Sigurðsson ('75)
11. Sigurður Egill Lárusson
17. Lúkas Logi Heimisson
24. Adam Ægir Pálsson ('59)
99. Andri Rúnar Bjarnason ('45)

Varamenn:
25. Sveinn Sigurður Jóhannesson (m)
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson ('45)
14. Guðmundur Andri Tryggvason ('59)
18. Þorsteinn Emil Jónsson ('75)
19. Orri Hrafn Kjartansson ('45)
33. Hilmar Starri Hilmarsson

Liðsstjórn:
Arnar Grétarsson (Þ)
Haukur Páll Sigurðsson
Kjartan Sturluson
Halldór Eyþórsson
Einar Óli Þorvarðarson
Jóhann Emil Elíasson
Sigurður Heiðar Höskuldsson

Gul spjöld:
Orri Hrafn Kjartansson ('51)
Lúkas Logi Heimisson ('76)
Tryggvi Hrafn Haraldsson ('85)

Rauð spjöld: