Hásteinsvöllur
mánudagur 08. maí 2023  kl. 18:00
Besta-deild karla
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Maður leiksins: Guy Smit (ÍBV)
ÍBV 0 - 1 Víkingur R.
0-1 Nikolaj Hansen ('95)
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
12. Guy Smit (m)
0. Eiður Aron Sigurbjörnsson
3. Felix Örn Friðriksson
9. Sverrir Páll Hjaltested
10. Filip Valencic ('69)
13. Dwayne Atkinson
16. Tómas Bent Magnússon
17. Oliver Heiðarsson ('69)
25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
26. Richard King
42. Elvis Bwomono

Varamenn:
1. Jón Kristinn Elíasson (m)
4. Nökkvi Már Nökkvason
7. Guðjón Ernir Hrafnkelsson ('69)
11. Sigurður Grétar Benónýsson
18. Eyþór Daði Kjartansson
19. Breki Ómarsson
22. Hermann Þór Ragnarsson ('69)

Liðstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Elías J Friðriksson
Mikkel Vandal Hasling
Elías Árni Jónsson
Nikolay Emilov Grekov

Gul spjöld:
Tómas Bent Magnússon ('45)
Dwayne Atkinson ('64)

Rauð spjöld:
@fotboltinet Tryggvi Guðmundsson
95. mín Leik lokið!
Daninn knái klárar leikinn í lok leiks!
Eyða Breyta
95. mín MARK! Nikolaj Hansen (Víkingur R.), Stoðsending: Logi Tómasson
Flautumark!
Loks mark í blálokin eftir enn eina hornspyrnu Víkinga!!! Hansen snéri baki í markið þegar hann fékk boltann, tók góðan snúning í teignum og kláraði!
Eyða Breyta
93. mín
Víkingar herja að marki ÍBV í lokin
Eyða Breyta
90. mín
5 mínútum bætt við
Eyða Breyta
85. mín Gult spjald: Logi Tómasson (Víkingur R.)

Eyða Breyta
84. mín Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.) Davíð Örn Atlason (Víkingur R.)

Eyða Breyta
84. mín
Guðjón Ernir með hörkuskot sem Ingvar ver en missir hann næstum inn í gegnum klofið!
Eyða Breyta
82. mín
Nikolaj fær tvö tækifæri en Eyjamenn kom í veg fyrir mark
Eyða Breyta
79. mín
Arnór skorar fyrir Víkinga en rangstæður.
Eyða Breyta
76. mín Gult spjald: Gunnar Vatnhamar (Víkingur R.)
Brot á miðjum velli.
Eyða Breyta
73. mín Danijel Dejan Djuric (Víkingur R.) Halldór Smári Sigurðsson (Víkingur R.)

Eyða Breyta
73. mín Arnór Borg Guðjohnsen (Víkingur R.) Erlingur Agnarsson (Víkingur R.)

Eyða Breyta
73. mín Helgi Guðjónsson (Víkingur R.) Birnir Snær Ingason (Víkingur R.)

Eyða Breyta
71. mín
Birnir einn í gegn eftir mistök Eyjamanna en Smith ver.
Eyða Breyta
69. mín Hermann Þór Ragnarsson (ÍBV) Oliver Heiðarsson (ÍBV)
tvöföld skipting Eyjamanna
Eyða Breyta
69. mín Guðjón Ernir Hrafnkelsson (ÍBV) Filip Valencic (ÍBV)
tvöföld skipting Eyjamanna
Eyða Breyta
67. mín
Ekkert verður úr tveimur hornspyrnum Víknga.
Eyða Breyta
66. mín
Nikolaj í dauðafæri sem Guy Smit ver vel í horn.
Eyða Breyta
64. mín Gult spjald: Dwayne Atkinson (ÍBV)
Aðeins of seinn í einvígið.
Eyða Breyta
62. mín
Pilip Valencic með ágætis skot rétt yfir
Eyða Breyta
59. mín
Eins og áður tvær hornspyrnur í röð. Nú Víkingar. Ekkert verður úr þó.
Eyða Breyta
58. mín
Birnir Snær með fínt skot sem Eyjamenn koma í horn
Eyða Breyta
52. mín
Mikið mijumoð í byrjun, Matthias Vilhjálmsson fær aukaspyrnu á hættulegum stað. Pablo tók spyrnuna og Guy varði vel. Í kjðlfar smá barningur í teignum og Víkangar fá horn sem Eyjamenn koma frá marki.
Eyða Breyta
46. mín
Nokkrar myndir úr fyrri hálfleik









Eyða Breyta
46. mín Leikur hafinn
Þá hefst seinni hálfleikur og Eyjamenn byrja með boltann
Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
Eyjamenn byrjuðu betur en Víkingar komu sér vel inn í leikinn og Logi fékk algert dauðafæri sem hann nýtti ekki. Fáum vonadi mark í seinni hálfleik.
Eyða Breyta
45. mín Gult spjald: Tómas Bent Magnússon (ÍBV)
Brot á miðjum velli og í kjölfarið flautar Helgi Mikael fyrri hálfleik af. Frekar auðveldur hálfleikur að dæma fyrir hann.
Eyða Breyta
44. mín
Pablo með skot fyrir utan teik en framhjá.
Eyða Breyta
35. mín
Guy Smit heldur um nárann og þarf aðstoð sjúkraþjálara. Heldur þó afram leik.
Eyða Breyta
33. mín
Erlingur með sendingu fyrir marki og Birnir á gott skot sem Guy varði vel.

Eyða Breyta
32. mín
Víkingar herða tökin og setja mikla presu á ÍBV. Fengu horn sem ekkert varð úr.
Eyða Breyta
29. mín
Logi komst einn í gegn eftir frábæra sendingu Ekroth en skýtur framhjá. Dauðafæri!
Eyða Breyta
27. mín
Víkingar fá hornspyrnu eftir fína sókn
Eyða Breyta
26. mín
Guy Smit slær hornspyrnuna frá
Eyða Breyta
20. mín
Birnir með gott skot af fjær sem Guy ver í horn sem ekkert varð úr. Víkingar að hressast.
Eyða Breyta
16. mín
Oliver með góða sendingu frá hægri sem Dwayne skallar af fj´r beint á Ingvvar
Eyða Breyta
15. mín
Stíf pressa hjá Eyjmönnum fyrstu 15 mínúturnar og Víkingar ekki enn komist í vítaeig þeirra

Eyða Breyta
10. mín
Tvær hornspyrnur í röð aftur hjá Eyjamönnum, Su seinni hættulegri þar sem Ingvar gerði vel og sló boltann út.
Eyða Breyta
8. mín
Góð pressa hjá Eyjamönnum í upphafi leiks
Eyða Breyta
7. mín
Tvær hornspyrnur í röð hjá Eyjamönnum sem ekkert verður úr
Eyða Breyta
3. mín
Óliver kemur upp hægri kantinn og gefur fyrir og sendingin endar í þverslá
Eyða Breyta
1. mín Leikur hafinn
Víkngar byrja með boltann og spila gegn vindi
Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarlið ÍBV
ÍBV tapaði gegn Fram í síðustu umferð. Hermann Hreiðarsson gerir þrjár breytingar á sínu liði. Halldór Jón Sigurður Þórðarson tekur út leikbann þar sem hann fékk að líta rauða spjaldið í síðasta leik. Hermann Þór Ragnarsson og Guðjón Ernir Hrafnkelsson taka sér sæti á bekknum. Jamaíkumennirnir tveir; Richard King og Dwayne Atkinson koma báðir inn í byrjunarliðið og spila sinn fyrsta leik fyrir félagið. Filip Valencic kemur einnig inn í liðið. Bjarki Björn Gunnarsson er ekki á bekknum þar sem hann er lánsmaður frá Víkingi.
Eyða Breyta
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Aðstæður a Hasteinsvelli eru nokkuð fínar. Léttur úði og smá austanátt. Höfum sé það verra hér.



Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarlið Víkings
Víkingur vann 4-1 sigur á Keflavík í síðustu umferð. Arnar Gunnlaugsson gerir þrjár breytingar á sínu liði. Reynsluboltarnir Matthías Vilhjálmsson, Halldór Smári og Davíð Örn koma allir inn í liðið og þeir Karl Friðleifur Gunnarsson, Viktor Örlygur Andrason og Helgi Guðjónsson taka sér sæti á bekknum. Ein breyting er þá á leikmannahópnum, Arnór Borg Guðjohnsen snýr aftur á bekkinn í stað Sölva Stefánssonar.
Halldór Smári
Eyða Breyta
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Textalýsingar kvöldsins
20:15 Fylkir - Breiðablik
19:15 FH - Keflavík
19:15 Fram - Stjarnan
18:00 ÍBV- Víkingur
Eyða Breyta
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Spáin
Ásta Eir Árnadóttir spáir í leiki umferðarinnar.

ÍBV 2 - 2 Víkingur
Víkingar líta fáranlega vel út en þetta verður ströggl fyrir þá. Ég spái 2-2 jafntefli. Eyjamenn jafna í lokin. Drama.


Eyða Breyta
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Viðureignir síðasta árs
Þegar liðin mættust á Hásteinsvelli á síðustu leiktíð, 15. júní 2022, fóru Víkingar með þægilegan 0-3 sigur af hólmi. Oliver Ekroth, Erlingur Agnarsson og Ari Sigurpálsson skoruðu mörkin.

Í síðari leiknum í Fossvoginum 4. september komst ÍBV í 0-2 eftir stundarfjórðung með mörkum Andra Rúnars Bjarnasonar og Arnars Breka Gunnarssonar. Víkingar minnkuðu muninn með marki Loga Tómassonar en þá fékk Jón Kristinn Elíasson markvörður ÍBV að líta rauða spjaldið á 40. mínútu. Halldór Smári Sigurðarson jafnaði metin á 95. mínútu og lokastaðan 2 - 2.
Eyða Breyta
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Gestirnir hér í Vestmannaeyjum í dag eru Víkingar sem hafa farið með himinskautum í Bestu-deildinni í sumar. Þeir hafa unnið alla fimm leiki sína og eru því með fullt hús stiga á toppi deildarinnar. Þeir hafa skorað 12 mörk og aðeins fengið á sig eitt, sem kom í síðasta leik gegn Keflavík sem þeir þó unnu 4-1.

ÍBV tapaði 1 - 3 gegn Fram í Úlfarsárdalnum í síðasta leik og eru í 7. sæti með 6 stig fyrir leikinn í kvöld.
Eyða Breyta
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymið
Helgi Mikael Jónasson dæmir leikinn í dag. Hann er með þá Berg Daða Ágústsson og Svein Inga Sigurjónsson Waage sér til aðstoðar á línunum. Arnar Ingi Ingvarsson er svo skiltadómari í dag.

KSÍ sendir Skúla Frey Brynjólfsson til að hafa eftirlit með umgjörð og störfum dómara að þessu sinni.
Helgi Mikael Jónasson dómari leiksins í dag.
Eyða Breyta
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.

Hér hefst klukkan 18:00 viðureign ÍBV og Víkings í Bestu-deild karla.

Textalýsingar kvöldsins:
20:15 Fylkir - Breiðablik
19:15 FH - Keflavík
19:15 Fram - Stjarnan
18:00 ÍBV- Víkingur
Eyða Breyta
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
3. Logi Tómasson
4. Oliver Ekroth
6. Gunnar Vatnhamar
7. Erlingur Agnarsson ('73)
10. Pablo Punyed
12. Halldór Smári Sigurðsson ('73)
18. Birnir Snær Ingason ('73)
23. Nikolaj Hansen (f)
24. Davíð Örn Atlason ('84)
27. Matthías Vilhjálmsson

Varamenn:
16. Þórður Ingason (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
8. Viktor Örlygur Andrason
9. Helgi Guðjónsson ('73)
15. Arnór Borg Guðjohnsen ('73)
19. Danijel Dejan Djuric ('73)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson ('84)

Liðstjórn:
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Sölvi Ottesen
Guðjón Örn Ingólfsson
Rúnar Pálmarsson
Aron Baldvin Þórðarson

Gul spjöld:
Gunnar Vatnhamar ('76)
Logi Tómasson ('85)

Rauð spjöld: