Würth völlurinn
miðvikudagur 17. maí 2023  kl. 19:15
Lengjudeild kvenna
Aðstæður: Átta gráður og fínt
Dómari: Ásmundur Hrafn Magnússon
Áhorfendur: 223
Maður leiksins: Eva Rut Ásþórsdóttir (Fylkir)
Fylkir 3 - 0 Grindavík
1-0 Sara Dögg Ásþórsdóttir ('12)
2-0 Eva Rut Ásþórsdóttir ('70)
3-0 Guðrún Karítas Sigurðardóttir ('88)
Byrjunarlið:
1. Tinna Brá Magnúsdóttir (m)
2. Signý Lára Bjarnadóttir
3. Mist Funadóttir
6. Sara Dögg Ásþórsdóttir ('80)
7. Tinna Harðardóttir ('61)
9. Guðrún Karítas Sigurðardóttir
11. Viktoría Diljá Halldórsdóttir
16. Eva Rut Ásþórsdóttir (f) ('89)
18. Erna Sólveig Sverrisdóttir ('61)
20. Sunneva Helgadóttir
23. Helga Guðrún Kristinsdóttir ('80)

Varamenn:
12. Rebekka Rut Harðardóttir (m)
8. Marija Radojicic ('80)
13. Kolfinna Baldursdóttir
17. Birna Kristín Eiríksdóttir
19. Tijana Krstic ('61)
31. Birta Margrét Gestsdóttir ('89)
77. Bergdís Fanney Einarsdóttir ('61)

Liðstjórn:
Tinna Björk Birgisdóttir
Michael John Kingdon
Halldór Steinsson
Helga Valtýsdóttir Thors
Gunnar Magnús Jónsson (Þ)
Bjarni Þórður Halldórsson
Sonný Lára Þráinsdóttir

Gul spjöld:
Helga Guðrún Kristinsdóttir ('52)

Rauð spjöld:
@gummi_aa Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
90. mín Leik lokið!
Fylkir vinnur sannfærandi sigur á Grindavík og er með sjö stig eftir þrjá leiki. Grindavík er með fjögur stig.

Viðtöl og skýrsla koma inn á síðuna á eftir.
Eyða Breyta
90. mín
Skemmtileg tilraun
Arianna með skemmtilega tilraun af 25-30 metrunum. Boltinn lengi í loftinu og fer af stönginni. Arianna er búin að vera líflegust hjá Grindavík í leiknum.
Eyða Breyta
90. mín
Við erum komin fram í uppbótartíma.
Eyða Breyta
90. mín Gult spjald: Viktoría Sól Sævarsdóttir (Grindavík)

Eyða Breyta
90. mín
Smá pirringur í Grindvíkingum hérna, kannski skiljanlega.
Eyða Breyta
89. mín
Guðrún Karítas skoraði þriðja markið

Eyða Breyta
89. mín Birta Margrét Gestsdóttir (Fylkir) Eva Rut Ásþórsdóttir (Fylkir)

Eyða Breyta
88. mín MARK! Guðrún Karítas Sigurðardóttir (Fylkir)
MARK!!!!!
Guðrún Karítas verðskuldaði þetta mark!!!

Búin að vera mjög góð í leiknum og skorar hér gott mark. Hún pakkar Dominique saman og vinnur boltann af henni - ekki í fyrsta sinn í leiknum - og skorar í annarri tilraun eftir að Heiðdís hafði varið fyrst frá henni.

Fylkir að pakka Grindavík saman hérna.
Eyða Breyta
85. mín
Dauðafæri!!!
Eva Rut með geggjaðan bolta upp í svæðið á Helgu sem á geggjaða fyrirgjöf á Bergdísi en hún setur boltann fram hjá úr algjöru dauðafæri.
Eyða Breyta
83. mín
Eva Rut nálægt því að þræða Mariju í gegn en Heiðdís er vel á verði í marki Grindavíkur og kemur út á móti boltanum.
Eyða Breyta
80. mín Helga Valtýsdóttir Thors (Fylkir) Sara Dögg Ásþórsdóttir (Fylkir)

Eyða Breyta
80. mín Marija Radojicic (Fylkir) Helga Guðrún Kristinsdóttir (Fylkir)

Eyða Breyta
77. mín
Mist Funa með skemmtilegan bolta fyrir markið sem Guðrún Karítas rétt missir af.
Eyða Breyta
75. mín
Grindavík hefur átt litla kafla í þessum leik en heilt yfir hefur þetta verið nokkuð þægilegur dagur á skrifstofunni hjá Fylki.
Eyða Breyta
71. mín
Systurnar núna báðar búnar að skora


Eyða Breyta
70. mín MARK! Eva Rut Ásþórsdóttir (Fylkir)
MARK!!!!!
Fylkiskonur tvöfalda forystu sína hér á heimavelli!!!

Hættulegur bolti fyrir markið sem skapar usla. Heiðdís missir af honum og Eva Rut skorar af miklu harðfylgi.

Þetta lá í loftinu og er klárlega hægt að segja að þetta sé verðskuldað.
Eyða Breyta
69. mín Kara Petra Aradóttir (Grindavík) Jada Lenise Colbert (Grindavík)

Eyða Breyta
69. mín
Fylkir er að hóta öðru marki.
Eyða Breyta
68. mín
Hættulegt!
Guðrún Karítas gerir frábærlega og vinnur boltann af Dominique í öftustu línu. Hún rennir honum svo á Söru Dögg sem gerir ekki nægilega vel en sóknir heldur áfram. Bergdís á að lokum skot sem fer rétt fram hjá.
Eyða Breyta
67. mín
Guðrún Karítas gerir mjög vel í samspili við Bergdísi. Sú síðarnefnda er komin í ágætis skotstöðu en tilraun hennar fer beint í varnarmann Grindavíkur. Hornspyrna sem Fylkir fær en ekkert verður úr henni.
Eyða Breyta
66. mín
Dauðafæri!!!
Guðrún Karítas sleppur ein í gegn og er í algjöru dauðafæri til að tvöfalda forystu Fylkis en vel varið hjá Heiðdísi í markinu.
Eyða Breyta
65. mín
Fljóðljósin komin á í Árbænum.
Eyða Breyta
64. mín
Þetta er búið að vera vægast sagt rólegt hér í seinni hálfleiknum. Grindvíkingar þurfa að bæta í ef þær ætla sér að fá eitthvað úr þessum leik.
Eyða Breyta
61. mín Bergdís Fanney Einarsdóttir (Fylkir) Erna Sólveig Sverrisdóttir (Fylkir)

Eyða Breyta
61. mín Tijana Krstic (Fylkir) Tinna Harðardóttir (Fylkir)

Eyða Breyta
58. mín
Það eru 223 áhorfendur í Árbænum í kvöld.
Eyða Breyta
58. mín
Þarna átti Mist Funa að fá gult spjald fyrir brot en Ásmundur sleppir henni. Hann hefur verið svolítið sparsamur á gulu spjöldin, dómari leiksins.
Eyða Breyta
57. mín
Ekki nema þrír leikmenn inn á vellinum þessa stundina sem eru með eiginnafnið 'Tinna'.
Eyða Breyta
56. mín
Tinna Brá grípur svo boltann í seinni hornspyrnunni.
Eyða Breyta
56. mín
Hættulegt!
Góð hornspyrna frá Tinnu Hrönn og Arianna nær skalla að marki en Fylkiskonur bjarga í aðra hornspyrnu.
Eyða Breyta
55. mín Tinna Hrönn Einarsdóttir (Grindavík) Sigríður Emma F. Jónsdóttir (Grindavík)

Eyða Breyta
52. mín Gult spjald: Helga Guðrún Kristinsdóttir (Fylkir)

Eyða Breyta
51. mín
Ragnheiður smá sein í tæklingu og Eva Rut, fyrirliði Fylkis, er ósátt við hana. Ýtir aðeins við henni en leikurinn heldur svo bara áfram.
Eyða Breyta
50. mín
Viktoría Sól reynir skot af 20 metrunum en nær engum krafti í það.
Eyða Breyta
48. mín
Grindavík á aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika. Mjög góður bolti frá Unu en Tinna kemur boltanum frá. Svo á Dominique skot af löngu færi sem Tinna Brá í marki Fylkis á í engum vandræðum með að verja, og grípa.
Eyða Breyta
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn
Nær Fylkir að landa sigri eða kemur Grindavík til baka?
Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur í Árbænum. Fylkir leiðir með einu marki gegn engu. Heilt yfir sanngjarnt en Grindavík var aðeins að sækja í sig veðrið undir lok fyrri hálfleiks. Spurning hvort þær nái að byggja ofan á það fyrir seinni hálfleikinn.
Eyða Breyta
45. mín
Besta færi Grindvíkinga!
Gestirnir aðeins að sækja í sig veðrið þessar síðustu mínútur. Voru rétt í þessu að fá sitt besta færi eftir gott spil. Viktoría Sól, sem var að koma inn á, í góðri skotstöðu inn á teignum en setur boltann rétt fram hjá markinu. Þarna hefði hún átt að gera betur.
Eyða Breyta
43. mín
Sigríður Emma í fínni stöðu inn á teignum en hittir boltann ekki nægilega vel. Yfir markið.
Eyða Breyta
41. mín
Spurning hvort þetta séu meiðsli eða eitthvað. Mér sýndist ekki héðan frá. Ansi áhugavert.
Eyða Breyta
40. mín Ragnheiður Tinna Hjaltalín (Grindavík) Júlía Rán Bjarnadóttir (Grindavík)

Eyða Breyta
40. mín Viktoría Sól Sævarsdóttir (Grindavík) Jasmine Aiyana Colbert (Grindavík)

Eyða Breyta
38. mín
Grindavík er að undirbúa tvöfalda skiptingu sýnist mér.
Eyða Breyta
37. mín
Ansi rólegt þessar síðustu mínútur. Grindavík er að reyna að færa sig fram völlinn en þær eru ekki að ná að skapa sér neitt.
Eyða Breyta
32. mín
Katrín Lilja gerir næstum því hræðileg mistök í öftustu línu en nær að bjarga sér fyrir horn.
Eyða Breyta
31. mín
Júlía Rán með skot að marki eftir hornspyrnu en það var aldrei líklegt. Yfir markið fer boltinn.
Eyða Breyta
26. mín
Gestirnir frá Grindavík verið ansi klaufalegar í sínu uppspili og það hefur lítið gengið upp hjá þeim.
Eyða Breyta
26. mín
Sara Dögg með góðan sprett og á hættulegan bolta fyrir en Mist kemur honum frá.
Eyða Breyta
21. mín
Tinna gerir frábærlega og Viktoría Diljá er komin í mjög álitlega stöðu. Hún reynir skot að marki en hittir boltann engan veginn.
Eyða Breyta
18. mín
Gott færi!!
Guðrún Karítas þræðir Helgu Guðrúnu í gegn og hún kemst í fínt færi, en setur boltann í hliðarnetið. Kannski svolítið þröngur skotvinkill en hættulegt var það.
Eyða Breyta
15. mín
Tinna Brá, sem er einn efnilegasti markvörður landsins, handsamar boltann auðveldlega og kemur honum strax í leik.
Eyða Breyta
14. mín
Grindavík í hættulegri sókn strax eftir markið og nælir í hornspyrnu.
Eyða Breyta
13. mín
Sara Dögg skoraði fyrir Fylki

Eyða Breyta
12. mín MARK! Sara Dögg Ásþórsdóttir (Fylkir)
MARK!!!!!
Heimakonur taka forystuna og það er U19 landsliðskonan Sara Dögg sem brýtur ísinn í þessum leik.

Náði að brjóta sér leið í gegnum vörn Grindavíkur og klárar vel fram hjá Heiðdísi í markinu.

Hvernig svarar Grindavík þessu?
Eyða Breyta
9. mín
Það kom ekkert upp úr þessari hornspyrnu.
Eyða Breyta
8. mín
Hættulegt!
Guðrún Karítas í besta færi leiksins hingað til en Heiðdís Emma gerir mjög vel í að loka á hana. Fylkir fær hornspyrnu.
Eyða Breyta
7. mín
Grindavík er að spila 4-2-3-1
Heiðdís Emma

Mist - Dominique - Katrín Lilja - Júlía Rán

Una Rós - Sigríður Emma

Ása Björg - Arianna - Jada

Jasmine
Eyða Breyta
5. mín
Fylkir er að spila 4-3-3
Tinna Brá

Viktoría Diljá - Sunneva - Eva Rut - Mist

Signý Lára - Sara Dögg - Erna Sólveig

Helga Guðrún - Guðrún Karítas - Tinna
Eyða Breyta
4. mín
Arianna í fínu skallafæri á teignum en hittir boltann ekki nægilega vel. Fram hjá markinu fer boltinn.
Eyða Breyta
1. mín
Fylkir í afar góðri sókn eftir 25 sekúndur en Grindvíkingar ná að koma boltanum frá ögurstundu.
Eyða Breyta
1. mín Leikur hafinn
Við erum farin af stað hér í Árbænum!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Liðin mætt út á völlinn og leikurinn fer senn að hefjast.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Það eru fínar aðstæður hér í kvöld. Gervigrasið lítur ágætlega út og það eru átta gráður. Smá kuldi, alvöru íslenskt sumarveður.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Liðin á fullu í upphitun, Frikki Dór í hljóðkerfinu og það styttist í leikinn.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár
Byrjunarliðin fyrir þennan leik eru klár. Það eru tvær breytingar á Fylkisliðinu frá 0-6 sigrinum gegn KR á dögunum. Sara Dögg Ásþórsdóttir og Guðrún Karítas Sigurðardóttir koma inn í liðið fyrir Tijana Krstic og Birtu Margréti Gestsdóttur.

Grindvíkingar gera enga einustu breytingu frá sigrinum gegn FHL. Það verður áhugavert að fylgjast með Colbert-tvíburunum framarlega á vellinum hjá gestunum en þær eru spennandi leikmenn.


Jasmine Colbert.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Leikir liðanna í fyrra
Þessi tvö lið mættust tvisvar í fyrra. Á þessum velli var niðurstaðan 2-1 sigur Fylkis þar sem Tijana Krstic skoraði sigurmarkið á 81. mínútu leiksins. Fyrri leikurinn í Grindavík endaði með markalausu jafntefli. Við viljum auðvitað ekki markalaust jafntefli í kvöld.


Tijana Krstic.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Hin hliðin
Leikmenn úr báðum liðum fóru í hina hliðina fyrir tímabilið. Hægt er að skoða þær fréttir með því að smella á tenglana hér fyrir neðan.

Hin hliðin - Sunneva Helgadóttir (Fylkir)

Hin hliðin - Ása Björg Einarsdóttir (Grindavík)


Sunneva Helgadóttir.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Grindavík spáð áttunda sæti
Grindavík var fyrir tímabilið spáð áttunda sæti Lengjudeildarinnar. Grindavík var í fallbaráttu í dágóðan tíma í fyrra en náði að enda mótið vel og bjarga sér örugglega. Liðið endaði að lokum í sjöunda sæti, 12 stigum frá fallsvæðinu. Liðinu er spáð svipuðu róli í ár en það verður svo sannarlega fróðlegt að fylgjast með því hvernig sumarið þróast hjá liðinu.


Eyða Breyta
Fyrir leik
Fylki spáð fjórða sæti
Fylki var fyrir tímabilið spáð fjórða sæti deildarinnar. Fylkir féll úr Bestu deildinni 2021 en þær náðu ekki að fara beint aftur upp. Liðið endaði í sjötta sæti Lengjudeildarinnar í fyrra en það er klárlega ætlunin að gera betur en það í Árbænum í sumar.


Eyða Breyta
Fyrir leik
Bæði lið með fjögur stig
Fyrir leikinn eru bæði lið með fjögur stig eftir tvo leiki. Fylkir gerði 2-2 jafntefli gegn Aftureldingu í fyrsta heimaleik sínum á tímabilinu og vann svo 0-6 sigur gegn KR í annarri umferð. Grindavík gerði 2-2 jafntefli við Fram og vann svo flottan sigur á FHL á heimavelli.


Úr leik Fylkis og Aftureldingar.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Það eru fjórir leikir á dagskrá í Lengjudeild kvenna í kvöld. Umferðin klárast svo á morgun með leik FHL og HK í Fjarðabyggðarhöllinni.

Lengjudeild kvenna
19:15 Fylkir-Grindavík (Würth völlurinn)
19:15 KR-Afturelding (KR-völlur)
19:15 Fram-Víkingur R. (Framvöllur)
19:15 Grótta-Augnablik (Vivaldivöllurinn)
Eyða Breyta
Fyrir leik
Verið velkomin
Góða kvöldið kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Fylkis og Grindavíkur í Lengjudeild kvenna. Flautað verður til leiks í Árbænum klukkan 19:15.


Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Heiðdís Emma Sigurðardóttir (m)
5. Mist Smáradóttir
8. Katrín Lilja Ármannsdóttir
10. Una Rós Unnarsdóttir (f)
11. Arianna Lynn Veland
18. Ása Björg Einarsdóttir
22. Sigríður Emma F. Jónsdóttir ('55)
23. Júlía Rán Bjarnadóttir ('40)
26. Dominiqe Evangeline Bond-Flasza
29. Jada Lenise Colbert ('69)
30. Jasmine Aiyana Colbert ('40)

Varamenn:
2. Bríet Rose Raysdóttir
3. Júlía Björk Jóhannesdóttir
7. Kara Petra Aradóttir ('69)
9. Þuríður Ásta Guðmundsdóttir
15. Tinna Hrönn Einarsdóttir ('55)
16. Viktoría Sól Sævarsdóttir ('40)
19. Ragnheiður Tinna Hjaltalín ('40)

Liðstjórn:
Anton Ingi Rúnarsson (Þ)
Alexander Birgir Björnsson
Signý Ósk Ólafsdóttir
Chante Sherese Sandiford
Momolaoluwa Adesanm
Hilmir Kristjánsson

Gul spjöld:
Viktoría Sól Sævarsdóttir ('90)

Rauð spjöld: