Bayern setur meiri kraft í viðræður við Musiala - Newcastle fylgist með Sane - Barcelona vill Kimmich
Besta-deild karla
Fylkir
LL 0
6
Víkingur R.
Besta-deild karla
Valur
LL 4
1
KR
Leiknir R.
3
1
Grótta
Omar Sowe '47 1-0
Omar Sowe '64 2-0
2-1 Rasmus Christiansen '69
Omar Sowe '78 3-1
30.07.2024  -  19:15
Domusnovavöllurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Sveinn Arnarsson
Maður leiksins: Omar Sowe
Byrjunarlið:
1. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
5. Daði Bærings Halldórsson (f)
6. Andi Hoti
7. Róbert Quental Árnason
8. Sindri Björnsson
9. Róbert Hauksson ('79)
20. Hjalti Sigurðsson
22. Þorsteinn Emil Jónsson ('86)
23. Arnór Ingi Kristinsson
44. Aron Einarsson
67. Omar Sowe ('89)

Varamenn:
12. Bjarki Arnaldarson (m)
11. Gísli Alexander Ágústsson
17. Stefan Bilic ('89)
18. Marko Zivkovic ('86)
19. Bogdan Bogdanovic
43. Kári Steinn Hlífarsson ('79)
80. Karan Gurung

Liðsstjórn:
Garðar Gunnar Ásgeirsson
Nemanja Pjevic

Gul spjöld:
Róbert Hauksson ('68)
Hjalti Sigurðsson ('90)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Risasigur Leiknis! Viðtöl og skýrsla birtast á síðunni innan skamms.

Þangað til næst, takk fyrir mig!
90. mín
Viktor þarf aðhlynningu Tómas Orri ætlar að pota boltanum í netið en Viktor var mættur og náði boltanum. Tómas fer þá óvart í hausinn á Viktori sem þarf aðhlynningu og vonandi getur hann haldið hér leik áfram.
90. mín Gult spjald: Hjalti Sigurðsson (Leiknir R.)
89. mín
Inn:Stefan Bilic (Leiknir R.) Út:Omar Sowe (Leiknir R.)
86. mín
Inn:Marko Zivkovic (Leiknir R.) Út:Þorsteinn Emil Jónsson (Leiknir R.)
85. mín Gult spjald: Arnar Þór Helgason (Grótta)
85. mín
DAUÐAFÆRI! Omar Sowe kemst einn í gegn á móti Rafal en tekur skotið hátt hátt yfir markið!
84. mín
Leiknisliðið hefur spilað afar vel í dag og eiga þennan sigur verðskuldað miðað við frammistöðuna í dag.
83. mín
Grótta í færi Gabríel Hrannar kemur með glæsilega sendingu inn á teiginn sem Pétur Thódór skallar rétt framhjá.
79. mín
Inn:Hilmar Andrew McShane (Grótta) Út:Tareq Shihab (Grótta)
79. mín
Inn:Kári Steinn Hlífarsson (Leiknir R.) Út:Róbert Hauksson (Leiknir R.)
78. mín MARK!
Omar Sowe (Leiknir R.)
ÞRENNA! Omar Sowe með ekkert smá stórt mark fyrir Leikni!

Skot fyrir utan teig Gróttu sem fer beint á Rafal í markinu og inn. Skelfileg mistök hjá Rafal!

Risamark hins vegar fyrir Leiknismenn!
76. mín
Gróttumenn vaknaðir! Tómas Orri kemur með bolta inn á teiginn sem fer á Pétur Theódór en skotið hans fer beint á Viktor í markinu.
74. mín Gult spjald: Tómas Orri Róbertsson (Grótta)
Fyrir tuð
74. mín Gult spjald: Tareq Shihab (Grótta)
72. mín
Inn:Arnar Daníel Aðalsteinsson (Grótta) Út:Aron Bjarki Jósepsson (Grótta)
Chris breytir
69. mín MARK!
Rasmus Christiansen (Grótta)
Stoðsending: Kristófer Orri Pétursson
Við erum komin með leik! Kristófer gerir ótrúlega vel að vinna boltann við hornfánan. Hann kemur svo með fyrirgjöf sem fer beint á ennið á Rasmus og þaðan í netið. Boltinn var mjög lengi á leiðinni í netið og sveif eiginlega bara yfir Viktor í markinu.

Þetta er orðinn leikur en litli seinni hálfleikurinn!
68. mín Gult spjald: Róbert Hauksson (Leiknir R.)
Fyrsti leikmaður Leiknis til að fara í bókina.
66. mín
Aron Einars tekur spyrnuna inn á teiginn sem Rafal kýlir frá.

Leiknismenn halda áfram að sækja.
65. mín
Leiknir að fá horn!
64. mín MARK!
Omar Sowe (Leiknir R.)
Stoðsending: Róbert Quental Árnason
Breiðhyltingar tvöfalda forystuna! Frábær sókn hjá Leikni sem endar með marki!

Róbert Quental kemur með góða sendingu í gegn á Omar sem er þá kominn einn í gegn. Hann klárar svo frábærlega framhjá Rafal í markinu.

Þetta er bara verðskuldað!
62. mín
Gróttumenn bægja hættunni frá.
62. mín
Leiknir að fá horn!
62. mín
Tareq kemur með bolta inn á teiginn eftir aukaspyrnu á miðjum vellinum. Aron Bjarki nær til boltans og skallar rétt framhjá. Líklega hættulegasta færi Gróttu til þessa.
59. mín Gult spjald: Aron Bjarki Jósepsson (Grótta)
Fyrsta gula spjald leiksins.
58. mín
Leiknir í afbragðsfæri! Viktor, markmaður Leiknis, kemur með langan bolta upp völlinn og skyndilega er Omar Sowe kominn einn í gegn. Hann fer framhjá Rafal en skotið fór framhjá.

Enn eitt dauðafæri Omars í leiknum.
54. mín
Gróttumenn slakir Ég bara verð að segja það að Gróttumenn hafa verið mjög slakir til að byrja með. Alls ekki góðir í fyrri hálfleik og eru að byrja seinni hálfleikinn eins.
48. mín
Aron Einars tekur hornið stutt og fær hann aftur. Eftir það kemur hann með afleidda sendingu sem Róbert Quental nær að halda inn á vellinum.

Hann kemur svo með fyrirgjöf sem fer beint í hendurnar á Rafal.
47. mín
Leiknir að fá horn!
47. mín MARK!
Omar Sowe (Leiknir R.)
Stoðsending: Arnór Ingi Kristinsson
Leiknismenn taka forystuna!!! Já þeir voru ekki lengi að þessu!

Omar Sowe fær boltann inni í teignum frá Arnóri og tekur skotið sem fer í varnarmann og í netið.

Frábær byrjun hjá Breiðhyltingum!
47. mín
Chris Brazell gerir þrefalda breytingu á liðinu sínu í hálfleik
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

46. mín
Sá seinni er hafinn!
46. mín
Inn:Kristófer Melsted (Grótta) Út:Ísak Daði Ívarsson (Grótta)
46. mín
Inn:Patrik Orri Pétursson (Grótta) Út:Grímur Ingi Jakobsson (Grótta)
46. mín
Inn:Arnar Daníel Aðalsteinsson (Grótta) Út:Axel Sigurðarson (Grótta)
45. mín
Hálfleikur
Sveinn, góður dómari leiksins, flautar til hálfleiks.

Leiknir verið mikið betri til þessa að mínu mati.

Tökum okkur korter og mætum svo til baka að vörmu spori!
44. mín
Gróttan liggur niðri Grótta hefur legið í lá blokk allan fyrri hálfleikinn. Maður er óvanur að sjá Gróttuliðið spila svona en þeir hafa ekki byrjað seinni hálfleikinn vel.
42. mín
Róbert Quental tekur spyrnuna en Gabríel Hrannar skallar frá.
42. mín
Leiknir að fá horn! Aftur kemst Omar einn í gegn en skotið fer í varnarmann og aftur fyrir.
40. mín
Róbert Quental tekur spyrnuna á Omar sem tekur skotið í fyrsta hátt yfir.
40. mín
Leiknir að fá horn! Skot Omars fer í vegginn og í horn.
39. mín
Aukaspyrna á stórhættulegum stað fyrir Leikni! Það er Omar Sowe sem ætlar að taka spyrnuna sýnist mér.
36. mín
Róbert Quental spyrnuna sem fer yfir allan pakkann og í markspyrnu.
36. mín
Leiknir að fá horn!
33. mín
Leiknismenn sækja og sækja Leiknir mikið betri fyrsta hálftímann. Mikið sjálfstraustsleysi fyrir framan markið greinilega.
30. mín
Omar óheppinn Omar Sowe kemst einn í gegn en fyrsta móttakan sveik hann.

Þetta er í annað sinn í leiknum sem það gerist.
25. mín
Róbert Q að tekur hornið inn á teiginn sem Arnar Þór skallar frá.

Aron Einars fær þá boltann fyrir utan teiginn sem fer útaf.
24. mín
Leiknir að fá horn!
24. mín
Borðtennis Ekkert dauðafæri komið í þennan leik til þessa þannig séð. Bæði lið þó eru að reyna að skemmta okkur með góðum fótbolta og hlaupum inn fyrir.

Smá borðtennis í þessu.
18. mín
Svona sé ég þetta Leiknir (4-2-3-1)
Viktor
Arnór - Andi - Daði (F) - Hjalti
Aron - Sindri
Róbert Q - Þorsteinn - Robbi H
Omar

Grótta (4-1-4-1)
Rafal
Tareq - Arnar - Rasmus - Gabríel
Aron
Axel - Grímur - Kristófer - Ísak
Pétur
15. mín
Markspyrna Fannst Leiknir átt að fá horn þarna upp úr horninu en dómarinn dæmir markspyrnu.
14. mín
Leiknismenn að fá horn! Sindri Björns með góðan bolta í gegn á Omar Sowe sem kemur með krefjandi skot á Rafal en hann ver í horn.
13. mín
Leiknismenn byrja leikinn mikið betur Gróttumenn í allskonar veseni þessar upphafsmínútur. Leiknismenn þurfa að fara að skjóta oftar á markið!
10. mín
Kristófer Orri tekur spyrnuna inn á teiginn sem Viktor kýlir frá.

Núna sækja Leiknsmenn!
9. mín
Grótta að fá aukaspyrnu Út við hliðarlínu. Vænleg staða til að flengja boltanum fyrir.
8. mín
Aron Einars tekur spyrnuna sem Arnar Þór skallar út í innkast.
8. mín
Leiknismenn að fá horn!
2. mín
Færi! Róbert Hauks kemst í mjög gott færi í upphafi leiks en skotið fer rétt framhjá.

Fínasta byrjun hjá Leikni!
1. mín
Leikur hafinn
Það eru Leiknismenn sem hefja hér leik í kvöld og sækja í átt að löngu vitleysunni.

Leiknismenn leika í fjólubláum treyjum, svörtum stuttbuxum og svörtum sokkum.

Gestirnir leika í hvítum treyjum, hvítum stuttbuxum og hvítum sokkum.
Fyrir leik
Döpur mæting Þá ganga liðin til vallar. Það eru toppaðstæður fyrir fótboltaspil. Það eru þó sárafáir mættir á völlinn. Mjög slök mæting miðað við stærð leiksins fyrir liðin.
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna Í fyrri leik liðanna á tímabilinu vann Grótta afar dramatískan 4-3 sigur. Arnar Daníel skoraði sigurmarkið á 92. mínútu eftir að Omar Sowe hafði jafnað í 3-3 af punktinum á 88. mínútu.

Svona er tölfræðin úr þessum viðureignum:
Leikir liðanna: 15
Leiknissigrar: 7
Jafntefli: 3
Gróttusigrar: 5
Markatalan: 32-29 Leikni í vil

Mynd: Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Þriðja liðið Dómari leiksins í kvöld er hann Sveinn Arnarsson en honum til halds og trausts verða þeir Daníel Ingi Þórisson og Guðni Freyr Ingvason. Eftirlitsmaður KSÍ er Viðar Helgason.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Leiknismenn kaldir Leiknismenn eru komnir í fallsætið á ný eftir tap gegn ÍR-ingum í seinasta leik. Leiknismenn hafa núna tapað alls fjórum leikjum í röð en liðið er ekki búið að spila vel upp á síðkastið. Leikurinn í kvöld er risaleikur fyrir sumar Leiknis sem voru í Bestu deildinni árið 2022 og eru líklegir að falla niður í 2. deild í ár.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Langþráður sigur Gróttu Eftir marga tapleiki í röð og slæmar frammistöður sóttu Gróttumenn í mikilvæg og kærkomin þrjú stig á dögunum gegn Grindavík. Leikurinn fór 3-1 en mörk Gróttu skoruðu þeir Kristófer Orri, Pétur Theódór og Gabríel Hrannar. Með sigrinum fóru Gróttumenn upp úr fallsæti og senda Leiknismenn í fallsætið þar sem þeir töpuðu í sömu umferð gegn ÍR.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Stærsti leikur sumarsins fyrir liðin Heilir og sælir ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Leiknis og Gróttu. Þetta er ekkert smá stór leikur en þetta er án efa stærsti leikur liðanna í sumar til þessa.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Byrjunarlið:
1. Rafal Stefán Daníelsson (m)
2. Arnar Þór Helgason
8. Tareq Shihab ('79)
10. Kristófer Orri Pétursson (f)
11. Axel Sigurðarson ('46)
12. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
18. Aron Bjarki Jósepsson ('72)
19. Ísak Daði Ívarsson ('46)
28. Rasmus Christiansen
29. Grímur Ingi Jakobsson ('46)
77. Pétur Theódór Árnason

Varamenn:
4. Arnar Daníel Aðalsteinsson ('46) ('72)
5. Patrik Orri Pétursson ('46)
16. Kristján Oddur Bergm. Haagensen
17. Tómas Orri Róbertsson
21. Hilmar Andrew McShane ('79)
22. Kristófer Melsted ('46)
32. Theodór Henriksen

Liðsstjórn:
Chris Brazell (Þ)

Gul spjöld:
Aron Bjarki Jósepsson ('59)
Tareq Shihab ('74)
Tómas Orri Róbertsson ('74)
Arnar Þór Helgason ('85)

Rauð spjöld: