Man City horfir til Gyökeres - Xavi vill taka Raphinha með sér - Man Utd gæti lánað Antony
Í BEINNI
Sambandsdeildin
Víkingur R.
LL 3
1
Cercle Brugge
Víkingur R.
3
1
Cercle Brugge
0-1 Kazeem Olaigbe '16
Ari Sigurpálsson '17 1-1
Danijel Dejan Djuric '45 , misnotað víti 1-1
Danijel Dejan Djuric '76 2-1
Gunnar Vatnhamar '84 3-1
24.10.2024  -  14:30
Kópavogsvöllur
Sambandsdeildin
Aðstæður: Skýjað, 4 gráður og smá gola
Dómari: Vitalijs Spasjonnikovs (Lettland)
Áhorfendur: 1200
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
6. Gunnar Vatnhamar
7. Erlingur Agnarsson ('89)
8. Viktor Örlygur Andrason
11. Gísli Gottskálk Þórðarson
12. Halldór Smári Sigurðsson ('60)
17. Ari Sigurpálsson ('74)
19. Danijel Dejan Djuric
20. Tarik Ibrahimagic
21. Aron Elís Þrándarson ('46)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson ('74)

Varamenn:
16. Jochum Magnússon (m)
80. Pálmi Rafn Arinbjörnsson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson ('89)
3. Davíð Helgi Aronsson
5. Jón Guðni Fjóluson ('60)
9. Helgi Guðjónsson ('74)
18. Óskar Örn Hauksson
23. Nikolaj Hansen (f) ('46)
24. Davíð Örn Atlason ('74)
29. Hrannar Ingi Magnússon

Liðsstjórn:
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Hajrudin Cardaklija
Sölvi Ottesen

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sögulegur sigur Víkinga! Víkingar sigra Cercle Brugge 3-1 sanngjarnt!

Fyrsti sigur íslensks liðs í Sambandsdeild Evrópu staðreynd.

Frekari umfjöllun væntanleg.
95. mín
Cercle fær hornspyrnu, en Viktor Örlygur skallar frá.

Víkingar vinna alla skallabolta þessa stundina!
93. mín
Víkingar tefja við hvert tækifæri.
91. mín
Inn:Ono Vanackere (Cercle Brugge) Út:Abu Francis (Cercle Brugge)
90. mín
Sex mínútum bætt við Fullmikið fyrir minn smekk.
89. mín
Inn:Sveinn Gísli Þorkelsson (Víkingur R.) Út:Erlingur Agnarsson (Víkingur R.)
Víkingar þétta raðirnar.
86. mín
Ég sé enga endurkomu hér í kortunum, vil þó ekki jinxa neinu.
84. mín MARK!
Gunnar Vatnhamar (Víkingur R.)
Stoðsending: Gísli Gottskálk Þórðarson
HVAÐ ER AÐ GERAST HÉRNA? Er Gunnar Vatnhamar að innsigla sigur Víkinga?

Gísli með góða fyrirgjöf frá hægri sem Gunnar stangar boltann í netið!

Víkingar leiða 3-1 sanngjarnt!
82. mín
Víkingar fá aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu.
82. mín
Inn:Sebbe Gheerardyns (Cercle Brugge) Út:Dalangunypole Gomis (Cercle Brugge)
78. mín
Markið skoðað í Varsjánni góðu en engin rangstæða dæmd. Stuðningsmenn Víkinga fá þá annað tækifæri til að fagna markinu sem þeir gerðu.
76. mín MARK!
Danijel Dejan Djuric (Víkingur R.)
Stoðsending: Erlingur Agnarsson
KVITTAR FYRIR VÍTAKLÚÐRIÐ! Víkingar keyra upp í skyndisókn. Erlingur Agnars kemur boltanum fyrir markið á Djuric sem klárar frábærlega!

Danijel að kvitta fyrir vítaklúðrið í fyrri hálfleik!

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
75. mín
Felipe Augusto með þrumuskot framhjá marki Víkinga.
74. mín
Inn:Helgi Guðjónsson (Víkingur R.) Út:Ari Sigurpálsson (Víkingur R.)
Markaskorarinn tekinn af velli.
74. mín
Inn:Davíð Örn Atlason (Víkingur R.) Út:Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.)
73. mín
Víkingar fá hornspyrnu, boltinn á nær á Niko Hansen sem kixar boltann framhjá marki gestanna.
72. mín
Liðin mjög jöfn hér í seinni hálfleik, það er ekki að sjá að þetta Cercle Brugge lið hafi endað í 4. sæti í belgísku úrvalsdeildinni í fyrra.
71. mín
Niko Hansen með skalla rétt framhjá marki Cercle Brugge!
70. mín
Gestirnir með hornspyrnu, boltinn berst óvænt á fjærsvæðið á Felipe Augusto sem hittir boltann illa og skot hans fer framhjá.
69. mín
Olaigbe í góðri stöðu í teig Víkinga og tekur skotið en Ingvar ver vel.
60. mín
Inn:Jón Guðni Fjóluson (Víkingur R.) Út:Halldór Smári Sigurðsson (Víkingur R.)
Halldór Smári borinn af velli Halldór Smári neyðist er borinn af velli, leikurinn búinn að vera stopp í um 5 mínútur.

Halldór datt á öxlina og heldur um hana. Líklegt að hann hafi farið úr axlarlið.
59. mín
Inn:Felipe Augusto (Cercle Brugge) Út:Abdoul Kader Ouattara (Cercle Brugge)
Gestirnir gera þrefalda breytingu
59. mín
Inn:Lawrence Agyekum (Cercle Brugge) Út:Bruno Gonçalves (Cercle Brugge)
58. mín
Inn:Thibo Somers (Cercle Brugge) Út:Malamine Efekele (Cercle Brugge)
58. mín
Halldór Smári liggur niðri og þarfnast aðhlynningar.
56. mín Gult spjald: Abu Francis (Cercle Brugge)
Abu Francis fær fyrsta spjald leiksins eftir að hafa stöðvað skyndisókn Víkinga.
52. mín
VÍKINGAR Í DAUÐAFÆRI! Ari með góða sendingu í teiginn á Djuric sem tekur skot af stuttu færi en Delanghe ver vel!

Færin gerast ekki betri en þetta!
46. mín
Inn:Nikolaj Hansen (f) (Víkingur R.) Út:Aron Elís Þrándarson (Víkingur R.)
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað! Víkingar byrja með boltann.

Sólin byrjuð að láta sjá sig og leika Cercle Brugge á móti sól hér í seinni hálfleik. Spurning hvort að það muni hafa áhrif.
45. mín
Hálfleikstölfræði Víkingur - Cercle Brugge

1.35 - XG - 0.57
6 - Skot - 6
3 - Skot á mark - 2
49% - Með bolta - 51%
45. mín
Hálfleikur
Frábær hálfleikur Víkinga Allt jafnt í hálfleik!

Víkingar búnir að vera frábærir í þessum fyrri hálfleik og eru búnir að vera grátlega nálægt því að komast yfir.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
45. mín
+3
Danijel sleppur í gegn en fellur svo við.

Víkingar vilja sjá rauða spjaldið fara á loft en dómari leiksins dæmir ekkert.

VAR skoðun búin og ekkert dæmt.
45. mín
Þremur mínútum bætt við
45. mín Misnotað víti!
Danijel Dejan Djuric (Víkingur R.)
Djuric klúðrar! +1

Tekur hægt tilhlaup og smellir svo boltanum í þverslánna.
Gæti verið dýrt klúður.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
44. mín
VÍKINGAR FÁ VÍTI! Djuric fer á punktinn!
43. mín
DÓMARINN Í SKJÁINN! Gísli Gotti fellur við í teignum eftir hættulega sókn Víkinga. Lítið í þessu við fyrstu sýn.

Dómari leiksins fer þó í skjáinn!

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
40. mín
Víkingar hættulegri þessa stundina Erlingur með hættulega fyrirgjöf sem Víkingar ná ekki til.

39. mín
BJARGAÐ Á LÍNU! Víkingar spila sig frábærlega í gegnum vörn gestanna.

Karl Friðleifur er einn gegn markverði en rennir boltanum til hliðar á Ara sem fer í skotið sem er á leiðinni inn en gestirnir bjarga á síðustu stundu.

Það gerist ekki tæpara en þetta!
36. mín
Víkingar fá hornspyrnu, boltinn kemur á nær á Aron Elís sem tekur skot yfir mark gestanna.
35. mín
Víkingar missa boltann á hættulegum stað Abu Francis tekur skot rétt fyrir utan teig sem fer yfir mark Víkinga.
28. mín
Arnar Gunnlaugs sýnir skemmtilega takta með boltann á hliðarlínunni og þakkar stúkunni svo fyrir góð viðbrögð.
24. mín
Olaigbe með skot af löngu færi sem fer framhjá marki Víkinga.
22. mín
Ari með fyrirgjöf á Erling sem nær ekki að stýra boltanum á markið.
17. mín MARK!
Ari Sigurpálsson (Víkingur R.)
ARI SVARAR!!! Ari æðir upp vinstri kantinn, sker inn á hægri og neglir boltanum í samskeytin fjær, litla markið!

Víkingar svara strax.

Fyrsta mark Víkings í Sambandsdeildinni!

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
16. mín MARK!
Kazeem Olaigbe (Cercle Brugge)
Stoðsending: Kevin Denkey
Gestirnir leiða Djuric tapar boltanum á hættulegum stað, Denkey rennir boltanum á Olaigbe sem er einn við vítateig og klárar vel framhjá Ingvari.
16. mín
Gestirnir fá hornspyrnu sem fer yfir allan pakkann og í innkast. Skelfileg hornspyrna.
15. mín
Denkey með skot á markið sem Ingvar ver vel.
15. mín
Víkingar að byrja leikinn þokkalega, Cercle Brugge hafa ekki náð að opna þá mikið þrátt fyrir að hafa haldið betur í boltann.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
7. mín
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
6. mín
Fyrsta marktilraun Víkinga Víkingar fá hornspyrnu, Viktor Örlygur tekur spyrnuna sem berst til Arons Elís sem nær skemmtilegu hælskoti á markið en Delanghe ver örugglega í marki gestanna.
2. mín
Fyrsta færið Kevin Denkey með skalla rétt framhjá marki Víkinga.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað! Gestirnir byrja með boltann.

Víkingar leika í sínum huggulegu rauð-svörtu Evróputreyjum.
Cercle Brugge leika í hvítu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Styttist í leik! Liðin ganga til vallar, nú styttist í að fyrsti heimaleikur Víkinga í Sambandsdeildinni fari af stað.

Víkingar búnir að ,,rebranda" Kópavogsvöll sem útivöll hamingjunnar.
Fyrir leik
Víkingar þurfa að vara sig á Denkey Cercle Brugge vann 6-2 sigur á St. Gallen í fyrstu umferð Sambandsdeildarinnar. Þrír leikmenn sem byrjuðu þann leik eru í byrjunarliði þeirra hér í dag.

Þar á meðal er Kevin Denkey sem skoraði þrennu og lagði upp tvö mörk í leiknum.

Mynd: Getty Images
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi: Arnar gerir sex breytingar Arnar Gunnlaugsson gerir sex breytingar á byrjunarliði sínu frá dramatískum sigri á ÍA síðustu helgi.

Inn í byrjunarliðið koma þeir Ingvar Jónsson, Ari Sigurpálsson, Danijel Dejan Djuric, Karl Friðleifur Gunnarsson, Gísli Gottskálk Þórðarson og Halldór Smári Sigurðsson.

Úr byrjunarliði Víkinga víkja þeir Pálmi Rafn, Jón Guðni, Nikolaj Hansen, Helgi Guðjóns, Davíð Örn og Valdimar Þór.

Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Íslendingar spilað með Cercle
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Fyrir leik
Lettneskt dómarateymi Dómari leiksins er Vitalijs Spasjonnikovs en hann og allt dómarateymið kemur frá Lettlandi.

Vitalijs dæmdi fyrri viðureign Breiðabliks og Maccabi Tel Aviv í Sambandsdeildinni í fyrra. Leiknum lauk með 3-2 sigri Maccabi Tel Aviv.

Mynd: EPA
Fyrir leik
Tveir risastórir leikir framundan Líkt og eflaust flestir vita eigum við von á úrslitaleik í Bestu deildinni næstkomandi sunnudag. Þar mæta Víkingar erkifjendunum í Breiðablik. Víkingar fá einungis tveggja daga hvíld fyrir úrslitaleikinn.

„Það er okkar að minna menn á að það er svaka leikur á undan. Leikurinn gegn Cercle Brugge verður okkar erfiðasti leikur í sumar."

,,Með fullri virðingu fyrir Blikaleiknum þá verður Cercle Brugge töluvert sterkari andstæðingur. Það verður gríðarlega erfitt verkefni. Við þurfum að einbeita okkur að því fyrst áður en hausinn fyrir Breiðablik," segir Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga.



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Andstæðingarnir án lykilmanna Cercle Brugge vann 6-2 sigur á svissneska liðinu St. Gallen í fyrstu umferð Sambandsdeildarinnar.

Cercle er í brasi í deildinni heima fyrir, liðið er í næstneðsta sæti með níu stig eftir ellefu leiki. Þeir eru án sigurs í síðustu þremur deildarleikjum eftir að hafa endað í 4. sæti deildarinnar í fyrra.

Félagið tilkynnti í gærmorgun hvaða leikmenn færu í ferðina til Íslands. Þar sést að sjö leikmenn sem byrjuðu í sigurleiknum gegn St. Gallen voru skildir eftir heima, bæði vegna meiðsla en einnig eru lykilleikmenn hvíldir.

Þar á meðal er Gary Magnee sem skoraði tvö mörk gegn St. Gallen.

Cercle verður einnig án Warleson sem er aðalmarkvörður liðsins, hann meiddist gegn St. Gallen og hefur verið frá síðan.

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga telur þetta ekki vera vanmat í Belgunum.

„Cercle Brugge er núna i fallsæti, lið sem var í fjórða sæti í belgísku deildinni í fyrra sem bara passar ekki nema útaf einmitt þessu álagi. Ég held kannski að þeir séu að setja deildina aðeins í forgang núna frekar en að vanmeta okkur.“

Fyrir leik
Fyrsti ,,heimaleikur" Víkinga Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli en heimavöllur Víkinga er ekki löglegur í Sambandsdeildinni.

Leikurinn hefst klukkan 14:30 en ástæðan fyrir þessum óhefðbundna leiktíma er að á Kópavogsvelli eru ekki nægilega sterk fljóðljós. Því er nýtt dagsbirtuna og spilað snemma dags.

Ekki var hægt að spila leikinn á Laugardalsvelli vegna
framkvæmda.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Leikdagur! Heilir og sælir lesendur góðir og veriði velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Víkings og Cercle Brugge í Sambandsdeild Evrópu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
21. Maxime Delanghe (m)
4. Dalangunypole Gomis ('82)
7. Malamine Efekele ('58)
9. Kevin Denkey
17. Abu Francis ('91)
18. Senna Miangue
19. Kazeem Olaigbe
27. Nils De Wilde
30. Bruno Gonçalves ('59)
76. Jonas Lietaert
99. Abdoul Kader Ouattara ('59)

Varamenn:
84. Bas Langenbick (m)
95. Tiemen De Bel (m)
6. Lawrence Agyekum ('59)
10. Felipe Augusto ('59)
34. Thibo Somers ('58)
40. Xander Martlé
64. Søren Coens
75. Sebbe Gheerardyns ('82)
78. Ono Vanackere ('91)

Liðsstjórn:
Miron Muslic (Þ)

Gul spjöld:
Abu Francis ('56)

Rauð spjöld: