HK
1
1
ÍA
Arnþór Ari Atlason
'56
1-0
1-1
Tryggvi Hrafn Haraldsson
'89
, víti
22.09.2019 - 14:00
Kórinn
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: Smá gola, ekkert til að hafa áhyggjur af.
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Áhorfendur: 755
Maður leiksins: Birnir Snær Ingason (HK)
Kórinn
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: Smá gola, ekkert til að hafa áhyggjur af.
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Áhorfendur: 755
Maður leiksins: Birnir Snær Ingason (HK)
Byrjunarlið:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
4. Leifur Andri Leifsson (f)
6. Birkir Valur Jónsson (f)
7. Birnir Snær Ingason
8. Arnþór Ari Atlason
10. Ásgeir Marteinsson
14. Hörður Árnason
16. Emil Atlason
('74)
17. Valgeir Valgeirsson
20. Alexander Freyr Sindrason
Varamenn:
1. Sigurður Hrannar Björnsson (m)
5. Guðmundur Þór Júlíusson
11. Ólafur Örn Eyjólfsson
15. Valdimar Einarsson
21. Andri Jónasson
28. Daníel Ingi Egilsson
Liðsstjórn:
Brynjar Björn Gunnarsson (Þ)
Hafsteinn Briem
Bjarni Gunnarsson
Þjóðólfur Gunnarsson
Matthías Ragnarsson
Viktor Bjarki Arnarsson
Alma Rún Kristmannsdóttir
Sandor Matus
Gul spjöld:
Valgeir Valgeirsson ('50)
Rauð spjöld:
93. mín
Ásgeir tók aukaspyrnuna en skaut framhjá.
Ég veit ekki hversu miklu var bætt við!
Ég veit ekki hversu miklu var bætt við!
90. mín
Steinar rennir boltanum út á Arnór sem á fína fyrirgjöf á Viktor sem nýtir ekki dauðafæri!
89. mín
Mark úr víti!
Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA)
Arnar ekki langt frá því að verja en vítið er gott!
88. mín
VÍTI ÍA! Tryggvi með spyrnu inn á teiginn og þar gerist eitthvað sem verðskuldar víti að mati Egils Arnars. Lars Marcus lág eftir svo líklega var brotið á honum.
87. mín
Ásgeir brýtur af sér 7m fyrir utan vítateig HK. Fínn séns fyrir ÍA. Tryggvi tekur spyrnuna snöggt en þarf að taka hana aftur.
85. mín
Árni með einn langan fram og Alexander vinnur skalleinvígi en fer illa út úr því og Egill stöðvar leikinn. Alexander þarf þó enga aðhlynningu.
83. mín
Steinar liggur eftir og ÍA menn kalla eftir einhverju. Egill sá þetta ekki og því lítið hægt að gera í því. Sá þetta ekki heldur sjálfur.
78. mín
Sigurður braut á Birni á miðjum vellinum. Birnir reynir þaðan svo skot sem fer framhjá. Bjartsýni.
75. mín
ÍA komið í 4-4-2 með Sigurð og Viktor fremsta. Arnór Snær kominn í hægri bakvörðinn. Jón Gísli og Sindri á miðjunni.
74. mín
Inn:Sigurður Hrannar Þorsteinsson (ÍA)
Út:Stefán Teitur Þórðarson (ÍA)
Stefán Teitur varð fyrir einhverju hnjaski og er tekinn af velli.
70. mín
Birnir með skemmtilega vippu inn á teig. Emil Atlason er þar og reynir hjólhestaspyrnu og nær snertingu á boltann. Skotið hinsvegar ekki fast og Árni ver þetta auðveldlega, skemmtileg tilþrif.
62. mín
Boltinn berst til Alexanders á miðjum teignum en hann nær ekki að valda boltanum og ÍA snýr vörn í sókn.
62. mín
Birkir leggur boltann til hliðar á Ásgeir sem þrumar boltanum á markið. Árni Snær gerir vel að verja þennan í horn.
60. mín
Gult spjald: Óttar Bjarni Guðmundsson (ÍA)
Missti boltann klaufalega og braut svo af sér í kjölfarið. Valgeir náðu boltanum og var svo tekinn niður. Liggur eftir.
56. mín
MARK!
Arnþór Ari Atlason (HK)
Boltinn berst út á Arnþór sem er fyrir utan miðjan vítateig Skagamanna. Arnþór setur hann þéttingsfast í vinstra markhornið og Árni ræður ekki við skotið.
Birnir átti skot í varnarmann og þaðan barst boltinn á Arnþór.
Birnir átti skot í varnarmann og þaðan barst boltinn á Arnþór.
54. mín
Birnir fer niður í teignum í barátunni við Jón Gísla en ekkert dæmt, held þetta hafi ekki átt að vera víti.
51. mín
Birnir með fast skot sem Árni heldur í annarri tilraun. Viktor svo með skot hinum meginn en framhjá fjærstönginni.
49. mín
HK aftur í talsverðu basli með að hreinsa frá eftir innkast en tekst það á endanum. Hörður Ingi fær boltann utan teigs í kjölfarið og lætur vaða en Arnar ver vel.
46. mín
Inn:Arnór Snær Guðmundsson (ÍA)
Út:Einar Logi Einarsson (ÍA)
ÍA með breytingu í hálfleik.
45. mín
Gult spjald: Hörður Ingi Gunnarsson (ÍA)
Braut einnig á Valgeiri í kjölfarið á brotinu hjá Bjarka.
42. mín
Emil fær gullbolta frá Herði sem hann skallar yfir af stuttu færi. Þetta var tækifæri!
40. mín
Ásgeir með skalla inn á Birni og mér finnst eins og Birnir hafi haldið að hann hafi verið rangstæður. Ekki merkileg skottilraun sem kom upp úr þessu.
35. mín
Boltinn berst út á Birni sem leikur boltanum á Arnþór og hann sendir aftur á Birni sem tekur Zidane snúning og lætur vaða en boltinn í varnarmann, önnur hornspyrna.
Árni grípur þá spyrnu.
Árni grípur þá spyrnu.
26. mín
VÁ. Óttar sendir á Sindra sem sendir boltann inn í teig. Bjarki Steinn tilbúinn að fá boltann en HK kemst á milli. Boltinn fór í stöngina og þaðan hreinsuðu HK í horn. Arnar missti af fyrirgjöfinni svo þetta hefði alltaf orðið mark. Ekkert kom upp úr hornspyrnunni.
24. mín
Steinar nálægt því að ná að snúa inn í teig HK en nær ekki að taka boltann með sér.
21. mín
Ásgeir með flotta hornspyrnu, boltinn berst út á Birni sem á skot í varnarmann. Önnur hornspyrna.
20. mín
Ásgeir með flotta sendingu inn á Valgeir sem nær ekki nægilega góðu skoti því Einar Logi verst vel. Hornspyrna.
19. mín
Alexander liggur eftir inn í teig ÍA eftir aukaspyrnu frá Ásgeir. Boltinn barst á Alexander á fjærstöngina. Hann átti tilraun sem fór beint á Árna og virtist fá í sig snertingu þegar hann skaut. Leikurinn fékk að halda áfram og ÍA fékk skyndisókn sem ekkert varð úr.
17. mín
Einar Logi í smá basli og Ásgeir kemst í boltann við vítateig HK og á skot sem er því miður of laust og beint á Árna. Tækifæri þarna til að nýta sér mistök.
13. mín
Steinar með flottan bolta fyrir og Bjarki Steinn nálægt því að ná til boltans en mér sýndist það vera Leifur sem hreinsaði. HK fær svo í kjölfarið aukaspyrnu á miðjum velli.
9. mín
HK fær aukaspyrnu úti á vinstri kantinum. Alexander vinnur fyrsta bolta en varnarmenn ÍA hreinsa í horn.
8. mín
HK virðist vera í 4-5-1 með Valgeir í holunni fyrir neðan Emil.
ÍA í 5-4-1 með Jón Gísla og Hörð í vængbakvörðunum.
ÍA í 5-4-1 með Jón Gísla og Hörð í vængbakvörðunum.
4. mín
Langt innkast hjá ÍA. HK vinnur fyrsta boltann en ÍA nær öðrum skallanum, Viktor skallar yfir.
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn. HK leikur í hefðbundnum treyjum líkt og ÍA.
ÍA í gulum treyjum og svörtum stuttbuxum og HK í rauðum stuttbuxum og hvítum og rauðum treyjum.
ÍA í gulum treyjum og svörtum stuttbuxum og HK í rauðum stuttbuxum og hvítum og rauðum treyjum.
Fyrir leik
Tveir leikmenn eru fæddir árið 2002 í byrjunarliðunum í dag. Valgeir Valgeirsson hjá HK og Jón Gísli Eyland Gíslason hjá ÍA.
Hjá HK er einn á bekknum fæddur 2002. Það er hann Valdimar Einarsson. Ef hann kemur við sögu verður það fyrsti leikur hans fyrir meistaraflokk HK!
Hjá HK er einn á bekknum fæddur 2002. Það er hann Valdimar Einarsson. Ef hann kemur við sögu verður það fyrsti leikur hans fyrir meistaraflokk HK!
Fyrir leik
Gunnleifur Gunnleifsson var fyrir leikinn í dag jafnleikjahár og Hörður Árnason fyrir HK í efstu deild. Hörður er í byrjunarliðinu í dag og verður leikjahæsti leikmaður HK í efstu deild. Leikurinn í dag er hans 40.
Þakka Víði Sig fyrir þessa staðreynd.
Þakka Víði Sig fyrir þessa staðreynd.
Fyrir leik
Lið fólksins klárt 🔴⚪ï¸ðŸ”´
— HK (@HK_Kopavogur) September 22, 2019
30 mÃn à leik, ekki láta þig vanta!#liðfólksins #pepsimaxdeildin #fotboltinet pic.twitter.com/Qo2jBLyKDP
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn.
Brynjar Björn, þjálfari HK, gerir þrjá breytingar á sínu liði frá jafnteflinu fyrir norðan. Alexander Freyr, Birnir Snær og Emil Atlason byrja. Atli Arnarsson og Björn Berg Bryde eru í banni og þá tekur Bjarni Gunnarsson sér sæti á bekknum.
Jóhannes Karl, þjálfari ÍA, gerir tvær breytingar á sínu liði. Jón Gísli Eyland og Viktor Jónsson koma inn fyrir þá Hall Flosason og Tryggva Hrafn Haraldsson sem eru á bekknum. Þá er Gonzalo Zamorano í leikbanni í dag.

HK hefur krækt í fimm stig í síðustu fimm leikjum og ÍA hefur unnið sér inn fjögur.
Liðin gerðu bæði 1-1 jafntefli í síðustu umferð. ÍA gerði 1-1 jafntefli við Grindavík. Stefán Teitur Þórðarson gerði mark Skagamanna í leiknum.
HK bjargaði stigi fyrir norðan með flautu-jöfnunarmarki. Emil Atlason skoraði jöfnunarmark HK gegn KA þegar vel var komið inn í uppbótartíma.

Tryggvi Hrafn Haraldsson er markahæstur Skagamanna með sex mörk í deildinni, þar af tvö úr vítum. Viktor Jónsson er næstmarkahæstur með fjögur.
Hjá HK eru Ásgeir Marteinsson og Atli Arnarsson markahæstir með fimm deildarmörk hvor.
Hjá HK eru Ásgeir Marteinsson og Atli Arnarsson markahæstir með fimm deildarmörk hvor.
Fyrir leik
Liðin eru örugg með sæti sitt í deildinni og hvorugt liðið á möguleika á Evrópusæti.
HK er í 6. sæti og ÍA er í 7. sæti. HK er með tvö mörk í plús og ÍA er með -1 mark.
Liðin eru nýliðar í deildinni og hefur árangur liðanna komið talsvert á óvart. ÍA byrjaði sérstaklega vel á leiktíðinni en gengið eftir það ekki upp á marga fiska. HK var spáð falli á flestum- ef ekki öllum miðlum.
HK vann fyrri leik liðanna, 0-2 á Akranesvellinum í 10. umferð. Bjarni Gunnarsson og Valgeir Valgeirsson skoruðu mörk HK.

Góðan daginn lesendur góðir og veriði velkomnir í beina textalýsingu frá eina leiknum sem skiptir einhverju máli* í næstsíðustu umferð Pepsi Max-deildar karla.
HK tekur á móti ÍA í Kórnum í Kópavogi klukkan 14:00.
Smellið hér til að lesa um aðra leiki í umferðinni.
Ef hlekkurinn beinir ykkur beint aftur hingað þá veistu að þú ert á réttum stað!
*Persónuleg skoðun textalýsara.

12. Árni Snær Ólafsson (m)
Einar Logi Einarsson
('46)
2. Hörður Ingi Gunnarsson
3. Óttar Bjarni Guðmundsson (f)
7. Sindri Snær Magnússon
9. Viktor Jónsson (f)
10. Steinar Þorsteinsson
18. Stefán Teitur Þórðarson
('74)
19. Bjarki Steinn Bjarkason
('63)
66. Jón Gísli Eyland Gíslason
93. Marcus Johansson
Varamenn:
31. Dino Hodzic (m)
4. Aron Kristófer Lárusson
8. Hallur Flosason
8. Albert Hafsteinsson
10. Tryggvi Hrafn Haraldsson
('63)
20. Sigurður Hrannar Þorsteinsson
('74)
Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Guðjónsson (Þ)
Páll Gísli Jónsson
Arnór Snær Guðmundsson
Hlini Baldursson
Gunnar Smári Jónbjörnsson
Daníel Þór Heimisson
Sigurður Jónsson
Kjartan Guðbrandsson
Gul spjöld:
Marcus Johansson ('29)
Hörður Ingi Gunnarsson ('45)
Bjarki Steinn Bjarkason ('45)
Óttar Bjarni Guðmundsson ('60)
Rauð spjöld: