SKÝRSLAN: Selfoss nánast felldi bitlausa Gróttu menn
Hvað réði úrslitum?
Selfyssingar voru einfaldlega grimmari og betri í dag. Virtust hafa mun meiri vilja til að vinna leikinn. Sigurinn var fyllilega verðskuldaður hjá þeim.
Bestu leikmenn
1. Elton Barros
Skoraði fyrsta markið og skapaði mikinn usla í vörn Gróttu.
2. Arnar Logi Sveinsson
Skilaði flottri frammistöðu á miðjunni.
Atvikið
Fyrra markið hjá Selfyssingum. Eftir það var eiginlega aldrei spurning um það hvernig leikurinn myndi fara.
Hvað þýða úrslitin?
Selfyssingar eru komnir langt með að bjarga sér á meðan 2. deildin blasir við Gróttu. Fimm stig skilja liðin að fyrir tvær síðustu umferðirnar. Grótta þarf að vinna bæði Þrótt og BÍ/Bolungarvík og treysta á að Selfoss tapi fyrir Þór og Þrótti ef að staðan á að breytast.
Vondur dagur
Hjá sóknarmönnum Gróttu. Liðið fékk ekki færi nánast allan leikinn í þessum sex stiga leik og sóknarleikurinn var mjög stirður eins og svo oft áður í sumar en Seltirningar hafa einungis skorað níu mörk í 1. deildinni.
Dómarinn - 8,7
Frábærlega dæmdur leikur. Völlurinn var blautur og bauð upp á tæklingar en Garðar hélt tökujm á leiknum allan tímann.



