Fotbolti.net
@YearmanEagleÁrmann Örn Guðbjörnsson
1. deild karla 2015
Ólafsvíkurvöllur
Vel blautur völlurinn og örlítil gola.
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
0 - 0
KA
KA
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: KA menn þeir fyrstu til að ná í stig á Ólafsvíkurvelli

Hvað réði úrslitum?

Mikill baráttuleikur frá fyrstu mínútu og hvorugt liðið náði að brjóta varnarmúr andstæðinga sinna niður.

Bestu leikmenn

1. Björn Pálsson (víkingur Ó)

Var hreint út sagt magnaður á miðju Víkinga. Bjargaði frábærlega í fyrri hálfleik þegar hann hennti sér fyrir skot Elfars. Vann flesta bolta sem þurfti að vinna og var alltaf á sínum stað.

2. Archange Nkumu (KA)

Sama er hægt að segja um Nkumu og Bjössa. Nkumu vann vel allan leikinn og lét sífellt vel finna fyrir sér. Var kletturinn í liði KA manna.

Atvikið

Markvarsla Cristian frá skoti Jóhanns Helga í síðari hálfleik var mögnuð og skilaði stigi í dag. Einnig varði hann vel gegn Elfari í fyrri hálfleik

Hvað þýða úrslitin?

KA menn þurftu á þrem stigum að halda í dag. Það er svo sannarlegt. KA fara upp í 38 stig með eitt stig á Þróttara sem sitja í þriðja sætinu. Þróttur á hins vegar leik til góða gegn Haukamönnum.

Vondur dagur

Í rauninni enginn sem átti vondan dag í dag. Það væri hægt að segja sóknir beggja liða og þá sérstaklega Kristófer Eggerts og Elfar en þeir spiluðu báðir mjög vel í dag. Vörnin var bara betri

Dómarinn - 9

Dæmdi þennan leik afskaplega vel. Ekkert gult spjald leit dagsins ljós í dag þrátt fyrir margar tæklingar og blautt gras. Tæklingarnar voru reyndar langflestar löglegar
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.