SKÝRSLAN: BÍ/Bol og Fjarðarbyggð skildu jöfn á Ísafirði
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í dag, er sennilega að heimamenn virtust ekki vera í formi, en það dró verulega af þeim um miðbik seinni hálfleik og ekki hjálpaði það til að Nigel Quashie var einfaldlega hættur að verjast. Gestirnir tóku þá á skarið og jöfnuðu.
Bestu leikmenn
1. Pape Mamadou Faye
Engin einn leikmaður sem bar af í dag, en Pape átti frábæran fyrri hálfleik þar sem hann var sí ógnandi og lagði upp markið fyrir Nigel. Það dróg þó af honum í seinni hálfleik, en hann var stundum að taka alltof margar snertingar á boltann.
2. Elmar Atli Garðarsson
Elmar átti flottan leik í dag og lagði upp fyrra mark heimamanna, Elmar barðist eins og vejulega allan leikin eins og gremjandi ljón og gerði nánast engin mistök.
Atvikið
Aðdragandinn að marki Nigels Quashie og markið sjálft. Nigel átti stórkostlega sendingu innfyrir á Pape sem hélt boltanum vel þrátt fyrir að vera einn á móti um það bil sex Fjarðarbyggðar mönnum, lagði síðan boltann út á Nigel sem afgreiddi boltann snyrtilega í fjær hornið. Virkilega fallegt mark.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að BÍ/Bolungarvík eru einfaldlega áfram á botni deildarinnar með sex stig. Fjarðarbyggð eru áfram í sjötta sætinu og sigla lygnan sjó í deildinni.
Vondur dagur
Andri Þór Magnússon átti mjög slæman fyrri hálfleik, en Pape Mamadou Faye fór oft illa með hann. Einnig átti Nigel Quashie mjög slæman seinni hálfleik, en hann hætti einfaldlega að verjast og liðið fór eiginlega að spila 4-4-2 þó svo engin hafi gefið það til kynna.
Dómarinn - 7
Dómari leiksins átti ágætan leik, byrjaði ekki sérstaklega vel og virtist ætla að missa leikinn í eitthvað rugl, en reif sig þá í gang og dæmdi leikinn virkilega vel, hann átti það þó til að taka ekki efitr því að aðstoðarmenn hans flögguðu rangstæðu leið oft langur tíma frá því að það var flaggað og hann flautaði.



