Fotbolti.net
@alexander_freyrAlexander Freyr Tamimi
Alexander Freyr Tamimi
Undankeppni EM 2017 (U21)
Kópavogsvöllur
Blautt
Ísland U21
Ísland U21
3 - 2
Frakkland U21
Frakkland U21
Oliver Sigurjónsson (f) 10'1 - 01 - 139' Aymeric LaporteHjörtur Hermannsson 47'2 - 1Oliver Sigurjónsson (f) (víti) 85'3 - 13 - 290' Grejohn Kyei
Dómari: Jesús Gil Manzano (Spánn)
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Stórkostlegur sigur gegn Frökkum

Hvað réði úrslitum?

Strákarnir okkar börðust gríðarlega vel og héldu Frökkum í skefjum með góðum varnarleik. Vissulega hjálpaði það til að fá rautt spjald og víti á upphafsmínútunum en Íslendingarnir voru bara svo miklu grimmari og ákveðnari. Þessir frábæru leikmenn Frakklands náðu engan veginn að sýna sitt rétta andlit.

Bestu leikmenn

1. Ævar Jóhannesson

Gríðarlega duglegur fram á við. Fiskaði víti snemma leiks eftir að hafa rúllað upp varnarmanni Frakklands og síðan markverðinum. Átti svo stoðsendinguna þegar Ísland fékk víti númer tvö. Mjög ógnandi og flottur í leiknum.

2. Aron Elís Þrándarson

Ótrúlegur á boltanum þessi drengur. Var virkilega flottur í dag og lagði upp eitt mark og átti nokkrar stórhættulegar sendingar. Þó skal taka fram að það er hægt að nefna fjölmarga leikmenn til viðbótar sem áttu frábæran leik, eiginlega allt liðið.

Atvikið

Rauða spjaldið á markvörð Frakka. Gerbreytti auðvitað leiknum, hefði verið erfiðara að spila 11 gegn 11 á móti sterkum Frökkum.

Hvað þýða úrslitin?

Ísland fer frábærlega af stað í riðlinum og er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki sína. Liðið getur komið sér í afar góða stöðu með heimasigri gegn Norður-Írlandi á þriðjudaginn. Ljóst er að riðillinn er gífurlega erfiður og að taka níu stig úr fyrstu þremur leikjunum væri hreinlega frábært, enda mikilvægt að nýta sér það vel að byrja mótið á heimavelli.

Vondur dagur

Paul Nardi, markvörður Frakklands, vill gleyma þessum degi sem fyrst. Var fokinn af velli eftir einhverjar sjö mínútur, en hann felldi Ævar Jóhannesson í teignum og víti og rautt var dæmt.

Dómarinn - 8

Kvörtum ekki.. gaf okkur tvö víti og rautt spjald.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.