Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Pepsi-deild karla 2016
Extra völlurinn
Fjölnir
Fjölnir
0 - 3
Breiðablik
Breiðablik
0 - 118' Daniel Bamberg0 - 223' Gísli EyjólfssonÞórir Guðjónsson (misnotað víti) 55'0 - 374' Andri Rafn Yeoman
Dómari: Þorvaldur Árnason
Áhorfendur: 1.051
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Árni Vill stimplaði sig inn af snilld

Hvað réði úrslitum?

Breiðabliksliðið mætti ákveðið til leiks og takturinn í sóknarleik liðsins var allt annar með tilkomu Árna Vilhjálmssonar. Breiðablik hefur frábæran markvörð og býr yfir öflugum varnarleik. Það telst ansi gott að halda hreinu gegn Fjölni. Þegar hlutirnir fara að smella sóknarlega líka eru Blikarnir ansi góðir!

Bestu leikmenn

1. Árni Vilhjálmsson - Breiðablik

Lagði upp öll þrjú mörkin, spilaði ákaflega vel fyrir liðið og var gríðarlega vinnusamur. Glæsileg frammistaða hjá Árna.

2. Damir Muminovic - Breiðablik

Miðverðirnir báðir og markvörðurinn áttu afskaplega góðan leik hjá Breiðabliki. Fjölni haldið í núllinu sem er vel gert.

Atvikið

Í stöðunni 2-0 fyrir Breiðabliki tók Þórir Guðjónsson vítaspyrnu og hefði getað opnað leikinn upp á gátt. Gunnleifur varði spyrnuna vel.

Hvað þýða úrslitin?

Spennan í deildinni heldur áfram. Skyndilega eru Blikar komnir upp að hlið Fjölnis, bæði lið með 19 stig í 3. - 4. sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Margir hjá heimamönnum sem ekki náðu sér á strik í kvöld en þennan titil fær bakvörðurinn Mario Tadejevic. Hann var fíflaður upp úr skónum í fyrsta marki leiksins, Arnór Sveinn Aðalsteinsson fór illa með hann. Viðvörunarbjöllur höfðu hringt nokkru áður þegar Arnór hafði leikið sama leik.

Dómarinn - 9

Þorvaldur Árnason með öll tök á þessum leik. Dómarinn í aukahlutverki og það er gott. Hárréttur vítaspyrnudómur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.