SKÝRSLAN: Fjórði sigur ÍA í röð.
Hvað réði úrslitum?
Léleg færanýting Valsmanna. Valsmenn fengu haug af efnilegum sóknum og slatta af fínum færum í þessum leik en gátu bara ekki nýtt færin almennilega.
Bestu leikmenn
1. Andri Adolphsson(Valur)
Andri var virkilega góður í þessum leik. Skapaði gríðarlegan usla í vörn Skagamanna og var allt í öllu í sóknarleik Vals. Skapaði nokkur færi og skoraði mark Vals. Var óheppinn að jafna ekki leikinn í lokin.
2. Ármann Smári Björnsson(ÍA)
Ekki annað hægt en að velja Ármann. Var eins og vengjulega klettur í vörninni hjá Skaganum og kom heimamönnum á bragðið með fyrra marki Skagamanna.
Atvikið
Markið hjá Garðari Gunnlaugs. Búinn að skora mikið í sumar en ekki oft sem hann skorar beint úr aukaspyrnu. Gullfallegt mark hjá Garðari sem bara hreinlega getur ekki hætt að skora.
Hvað þýða úrslitin?
ÍA lyftir sér ennþá lengra frá fallsvæðinu og spurning hvort þeir ætli bara hreinlega að vera í baráttu um sæti í Evrópukeppni. Valsmenn hins misstu Skagamenn upp fyrir sig í deildinni en eru nú samt ekki langt frá þeim.
Vondur dagur
Sigurður Egill Lárusson var alveg rosalega dapur í dag. Þrátt fyrir að Valsmenn hafa verið mikið í sókn þá sást Sigurður varla í þessum leik. Menn í blaðamannastúkunni voru á tímabili að velta fyrir sér hvort hann væri inná.
Dómarinn - 6
Valdimar Pálsson átti ekki sinn besta dag í dag. Sleppti fullt af augljósum brotum hjá báðum liðum og var svo að dæma á algjöran óþarfa.



