SKÝRSLAN: Fyrsta tap Víkinga í Ólafsvík í 2 ár
Hvað réði úrslitum?
Sofandiháttur í vörn heimamanna varð þeim að falli. Fá tvö mörk á sig úr horni í fyrri hálfleik og svo var Arnar aleinn í boxinu í sigurmarkinu.
Bestu leikmenn
1. Hilmar Árni Halldórsson
Maður leiksins by far. Lagði upp 3 mörk í 3-2 sigri. Fyrir utan það var hann alla jafna mjög flottur á miðjunni. Skapaði mikla hættu og braut niður margar sóknir.
2. Þorsteinn Már Ragnarsson
Var í raunini enginn annar framúrskarandi þannig séð. Þorsteinn barðist allan tímann og hljóp úr sér lungun
Atvikið
Erfitt að velja á milli þess þegar Víkingar vildu fá vítaspyrnu og rauða spjaldsins en..vegna þess að ég hef ekki séð vítaspyrnuatvikið á vídeó líkt og rauða spjaldið þá vel ég rauða spjaldið. Setti Víkingana úr jafnvægi restina af leiknum. Erfitt að kyngja því að Tokic verði í banni gegn Blikum.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan kemst upp í annað sæti deildarinnar, 2 stigum frá toppliði FH. Víkingar falla niður í það 5. eftir að missa Stjörnuna og Blika upp fyrir sig sem eru að vinna Fjölni 3-0 í þessum skrifuðu orðum. Tokic er í banni þegar Víkingar fá Blika í heimsókn í næstu umferð
Vondur dagur
Vörn Víkings Ólafsvíkur.
Fengu þrjú mörk á sig vegna sofandihátts. 2 þeirra úr hornspyrnu og það þriðja mjög stuttu eftir að hafa jafnað í 2-2. Söknuðu kannski Emir of mikið. Emir rifbeinsbrotinn og ekki með í dag.
Fengu þrjú mörk á sig vegna sofandihátts. 2 þeirra úr hornspyrnu og það þriðja mjög stuttu eftir að hafa jafnað í 2-2. Söknuðu kannski Emir of mikið. Emir rifbeinsbrotinn og ekki með í dag.
Dómarinn - 3
Hélt ekki línu. Gerði hárrétt í rauða spjaldinu en á undan því var Baldur Sig búinn að stíga á Tokic viljandi og hrinda honum þegar boltinn var ekki nærri. Baldur braut á Tokic sekúndum fyrir rauða spjaldið og hann dæmdi ekki. Kom út í seinni hálfleik með allt öðruvísi dómgæslu. Dæmdi þá á brot sem hann dæmdi ekki í fyrri hálfleik.


