SKÝRSLAN: KR-ingar vildu ekki sjá fallsætið
Hvað réði úrslitum?
KR-ingar mættu mikið, mikið betur til leiks og voru komnir í 2-0 eftir aðeins tíu mínútur. Eftir það var róðurinn þungur hjá Fylki sem náðu þó að minnka muninn í 2-1. Þá tóku KR-ingar aftur öll völd á leiknum
Bestu leikmenn
1. Óskar Örn Hauksson
Skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Ekkert að því dagsverki. Hann var þess fyrir utan mjög ógnandi allan leikinn.
2. Morten Beck
Morten Beck er búinn að vera með betri mönnum KR í sumar og hann sýndi enn og aftur góðan leik í kvöld. Hann lagði upp fyrsta markið, var öruggur varnarlega og alltaf stórhættulegur með hlaupum sínum upp völlinn.
Atvikið
Staðan var 3-1 í hálfleik en KR-ingar skoruðu fjórða markið sitt í upphafi seinni hálfleiks. Eftir það slökknaði algjörlega í Fylkismönnum.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkir hefði með sigri, sent KR-inga í fallsæti, þeir voru hins vegar aldrei nærri því. Þess í stað fer KR upp í 13 stig og eru með fimm stigum meira en Fylkir sem er í basli í fall sæti, fjórum stigum frá öruggu sæti.
Vondur dagur
Ásgeir Eyþórsson var mögulega eitthvað tæpur en hann spilaði fyrri hálfleikinn. Liðið fékk á sig þrjú mörk og leit hann ekki sérstaklega vel út.
Dómarinn - 8
Þóroddur Hjaltalín dæmdi þennan leik virkilega vel. Dómgæslan er búin að vera mjög góð undanfarið og í kvöld var engin breyting á.


