Fotbolti.net
@saevarolafsSævar Ólafsson
Sævar Ólafsson
Þróttur R.
Þróttur R.
Pepsi-deild karla 2016
Þróttarvöllur
Góðar aðstæður miðað við árstíma. Stillt og hiti 6°
1 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 122' Arnþór Ingi KristinssonBjörgvin Stefánsson 47'1 - 11 - 257' Ívar Örn Jónsson
Dómari: Pétur Guðmundsson
90. mín
Þúsund þakkir fyrir samveruna. Hér með lýkur þessari textalýsingu. Viðtöl og skýrsla dettur hingað inn fljótlega. Takk fyrir mig
90. mín
Í leikslok er verið að afhenda hér viðurkenningu. Efnilegasti leikmaður Pepsideildarinnar 2016 er Óttar Magnús Karlsson. Óskum við honum að sjálfsögðu til hamingju með þá nafnbót.
Leik lokið!
+3 Óttar Magnús ágengur og sækir aukaspyrnu á vítateigslínunni hér um bil. Óttar skýtur að marki í markmannshornið en Trausti ver og í því flautar Pétur til leiksloka.
90. mín
+2 Var þetta síðasti sénsinn? Þróttarar reyna fyrirgjöf en hún siglir aftur fyrir endamörk.
90. mín
+1 Barningur og Þróttarar sækja. Hægja svo á sókninni og rennur hún út í sandinn
90. mín
Viðbótartími er að minnsta kosti 3 mínútur
89. mín
Óttar Magnús gerir vel en skotið hátt yfir. Sólar einn, sólar tvo og hleður svo í skot sem flýgur í átt að Blómaval Sigtúni
85. mín
Pétur Guðmundsson færði Halli að gjöf gult og rautt spjald með ritaðri kveðju er hann yfirgaf völlinn. Skemmtilegt þar sem Hallur nældi sér í jú í 134 gul spjöld og 11 rauð spjöld á ferlinum. Slatti
85. mín
Þróttarar vinna aukaspyrnu á vinstri kantinum. Aron sendir boltann inn í en Víkingar bægja hættunni frá. Þróttur heldur pressunni og á endanum er leikurinn stöðvaður vegna höfuðmeiðsla Brynjars
Þróttur R.
84. mín
InnViktor Unnar Illugason
ÚtHallur Hallsson
78. mín
Þarna voru Þróttarar líklegir. Guðmundur Friðriksson sendir fyrir og Björgvin er í barningnum. Brynjar fellur í teignum eftir viðskipti sín við en Kristófer Karl en ekkert dæmt. Hefði mögulega verið ódýrt líka
76. mín
Smá líf eftir doða síðustu mínútna. Sorensen með laglega skiptingu á Guðmund sem vinnur hornspyrnu sem síðan verður ekkert úr. Já ég var að skrifa þetta
74. mín
Fátt að gerast þessa stundina. Víkingarnir beittari en Þróttarar reyna að sækja hratt en án árangurs.
Víkingur R.
69. mín
InnStefán Bjarni Hjaltested
ÚtArnþór Ingi Kristinsson
68. mín
Hætta við mark Víkinga. Guðmundur Friðriksson fær boltann á fjær eftir langt innkast. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum kýs hann að nota hægri fótinn þarna og boltinn hátt yfir markið.
Þróttur R.
66. mín
Gult spjald

Björgvin Stefánsson

Alan Lowing gerir vel í að stöðva sókn Þróttara. Siglir svo úr höfn upp völlinn með Björgvin á hælunum. Björgvin brotlegur og Pétur veifar réttilega gulu spjaldi
60. mín
Trausti er að vinna baki brotnu hérna í markinu. Fyrst var það frá Bjarna Páli sem hlóð í stórgott skot af 25m sem Trausti varði stórkostlega í horn. Uppúr horninu berst svo boltinn á Viktor sem stimplar sig strax inn. Trausti hinsvegar kemur vel út á móti og lokar rammanum
Víkingur R.
57. mín
MAAAARK!

Ívar Örn Jónsson

Boltinn berst á Ívar og hann gerir sér lítið fyrir og hleður í glæsilegt mark af 30 metrunum. Leggur bara boltann í bláhornið framhjá Trausta. Stórglæsilegt og afar smekklegt líka hjá Ívari
Víkingur R.
55. mín
InnViktor Jónsson
ÚtIgor Taskovic
55. mín
Dauðafæri! Víkingar heldur betur nálægt því að komast yfir en Trausti gerði vel í að verja.
53. mín
Marktilraun hjá Þrótturum en skot Arons verulega slakt. Tilraun engu að síður
48. mín
Víkingar halda áfram að þjarma að heimamönnum sem standast áhlaupin sem stendur. Hasar í leiknum þessa stundina!
Þróttur R.
47. mín
MAAAARK!

Björgvin Stefánsson (stoðsending: Brynjar Jónasson )

Mark! Lagleg skyndisókn hjá heimamönnum. Þróttarar finna Christian Sorensen sem gerir vel í að finna Brynjar sem kom boltanum fyrir markið þar sem Björgvin var einn með létta klárun fyrir opnu marki.
Þróttur R.
46. mín
InnAron Lloyd Green
ÚtBaldvin Sturluson
46. mín
Pétur hefur blásið til síðari hálfleiks
Víkingur R.
45. mín
InnKristófer Karl Jensson
ÚtRóbert Örn Óskarsson
45. mín
Jæja leikmenn í óðaönn að ganga inn á völlinn á nýjan leik. Búið að fara yfir málin reikna ég með. Þróttarar þurfa að girða sig í brók og stíga upp ef ekki á illa að fara í þessum síðasta leik þeirra í Pepsideildinni í bili
45. mín
Pétur Guðmundsson hefur blásið til leikhlés. Víkingar mikið sterkari aðilinn það sem af er. Þróttarar í raun heppnir að fara inn í hléið aðeins marki undir
Víkingur R.
44. mín
Gult spjald

Bjarni Páll Linnet Runólfsson

Christian Sorensen með góðan sprett. Hendir í skæri og allt saman. Endar ferðalag sitt hinsvegar í jörðinni þar sem Bjarni Páll rennir sér og tekur hann niður. Pétur með allt klárt og lyftir gulu korti
43. mín
Taskovic með skottilraun úr teignum. Þróttarar í tjóni varnarlega og Igor hleður í skot en það vantar nákvæmni og fer beint á Trausta sem verður að kýla boltann. Fast en ónákvæmt hjá Taskovic
42. mín
Fínt spil hjá Víkingum. Leika sér fyrir utan teiginn þar sem Ívar Örn finnur Óttar Magnús sem verndar boltann vel, snýr en skotið varið af Trausta
Þróttur R.
41. mín
InnBjörgvin Stefánsson
ÚtAron Dagur Heiðarsson
40. mín
Arnþór Ingi í færi! Ívar Örn les vel sendingu Halls af miðsvæðinu og geysist upp í hornið og sendir flottan bolta fyrir á Arnþór sem kom á hvínandi siglingu en Arnþór miðlaði boltanum rétt framhjá fjærstönginni.
35. mín
Tufa með góðan sprett og fiskar aukaspyrnu hægra megin, sirka 3 metra fyrir utan teig. Fullkomið spyrnufæri fyrir Ívar. Spyrnan hjá honum hinsvegar slök og beint í vegginn.
34. mín
Afleitt Brynjar! Boltinn dettur fyrir hann beint á móti marki Víkinga og hleður hann í skotið en boltinn nær því að hitta hornfánann.
33. mín
Halldór Smári með góða tilraun eftir fyrirgjöf frá hægri. Tekur boltann laglega á lofti en skotið beint á Trausta sem slær boltann yfir með tilþrifum
32. mín
Víkingar vilja vítaspyrnu. Arnþór Ingi fellur eftir snertingu en Pétur vel staðsettur og gefur merki um að ekkert hafi verið að þessu
30. mín
Fyrsta hornspyrna Þróttar. Davíð Örn Atlason ætlar að skalla til baka á Róbert en nær ekki að stilla miðið og boltinn í horn. Hornspyrnan inn á markteig en Víkingar koma boltanum frá. Þróttarar farnir að sækja í sig veðrið hér í Laugardalnum
29. mín
Besta hingað til frá heimamönnum. Vilhjálmur bindur enda á fína sókn Þróttara en Róbert Örn varði örugglega. Þetta er mögulega eitthvað til að byggja á fyrir heimamenn
24. mín
Víkingarnir eru með tökin. Þróttarar eiga í stökustu vandræðum með að ná einhverju taki á þessum leik. Tufa með góðan sprett og uppsker hornspyrnu.
Víkingur R.
22. mín
MAAAARK!

Arnþór Ingi Kristinsson (stoðsending: Óttar Magnús Karlsson )

Fyrsta markið. Óttar Magnús gerir vel fyrir framan teiginn. Skýtur að marki en Trausti ver flöktandi skotið en þar mætir til að hreinsa upp frákastið Arnþór Ingi sem gerir vel í að koma boltanum í markið framhjá Trausta sem var liggjandi
20. mín
Fyrsta marktækifæri Þróttara. Aron Þórður sendir fyrir og þar mætir Brynjar Jónasar á nærstöngina en er aðþrengdur og skotið fer framhjá á nærstönginni
16. mín
Deddari! Arnþór fær boltann eftir laglegt stutt spil fyrir framan teig Þróttara. Nær ekki nógu góðri snertingu á boltann og aðvífandi Trausti nær að verja skotið með fótunum.
15. mín
Fátt að frétta þessa stundina. Bæði lið að reyna að ná fótfestu en gengur erfiðlega að ná flæði í sóknaraðgerðir sínar.
8. mín
Önnur marktilraun frá gestunum. Aftur var það Arnþór Ingi sem fékk boltann hægra megin í teignum en skot hans yfir og framhjá. Góður séns. Þróttarar þurfa að vakna
7. mín
Dauðafæri! Óttar Magnús keyrir á nærstöng og mætir fyrirgjöf Ívars en leggur boltann rétt framhjá nærhorninu. Þarna voru heimamenn stálheppnir!!
6. mín
Hætta eftir vandræðagang hjá Þrótturum. Glopra frá sér boltanum á eigin vallarhelmingi sem endar með skoti Arnþórs Inga en skotið í horn. Halldór Smári skallar svo hornspyrnu Taskovic framhjá
2. mín
Vandræðagangur. Trausti skellir sér í úthlaup eftir hornspyrnu Vikinga. Lendir í árekstri og missir boltann sem dettur fyrir Víking sem skýtur að marki en boltinn fer af varnarmanni og Þróttarar hreinsa
2. mín
Fyrsta aukaspyrnan er Víkinga. Brotið á Bjarna Páli. Ákjósanlegt skotfæri
1. mín
Leikar eru hafnir hér í Laugardalanum. Gestirnir í Víking byrja með knöttinn og sækja í átt að Húsdýragarðinum
Fyrir leik
Hallur Hallsson leikmaður Þróttar er í hinsta sinn á skýrslu sem leikmaður. Ferðalag Halls með félaginu hefur verið viðburðaríkt. Hallur ber fyrirliðabandið í dag í fjarveru Karls Brynjars sem er í leikbanni
Fyrir leik
Jæja liðin tvö eru í óðaönn að hita upp hér í Laugardalnun. Allt klárt og tónlistin ómar
Fyrir leik
Magnús Gylfason þúsundþjalasmiður hjá Knattspyrnusambandi Íslands spáði í umferðina um daginn Þróttur - Víkingur 1 - 1 \"Leikur sem skiptir litlu máli fyrir bæði lið. Þeir leyfa örugglega leikmönnum að spila sem hafa komið minna við sögu\". sagði Maggi Gylfa um leik dagsins hér í Laugardalnum.
Fyrir leik
Miðvörðurinn geðþekki Karl Brynjar Björnsson er meðal áhorfenda hér í dag en Karl Brynjar tekur út leikbann. Hjá Víkingum vantar hinsvegar Alex Frey Hilmarsson sem tekur út sína refsingu fyrir fjórar áminningar
Fyrir leik
Síðasti leikur þessara liða á Víkingsvelli endaði með dramatískum 2-0 sigri Víkinga. Mörkin skoruðu Óttar Magnús Karlsson á 90+2 og Gary Martin á 90+4
Fyrir leik
Dómari leiksins er Pétur Guðmundsson. Honum til halds og traust eru Eðvarð Eðvarðsson og Óli Njáll Ingólfsson. Varadómari er Tómas Orri Hreinsson og eftirlitsmaður KSÍ er Guðmundur Stefán Maríasson.
Fyrir leik
Tölfræðihornið - Víkingur Reykjavík Gestirnir í Víkingi hafa átt köflótt tímabil og finna sig í dag í 8.sæti. Víkingar geta slegið stigamet sitt í Pepsideidinni sigri þeir leikinn í dag en metið settu þeir tímabilið Stigasöfnun Víkingur hefur safnað alls 29 stigum af þeim 63 sem í boði hafa verið. Víkingar uppskera að meðaltali 1,4 stig í leik. Sigrar - Jafntefli - Töp 8 sigrar 5 jafntefli 8 töp --- Vikingar sigra að meðaltali í Gera jafntefli í tæplega fjórða hverjum leik. Víkingar tapa að meðaltali Liðið Víkingur R. hefur notað 25 leikmenn í sumar. Liðið skorar að meðaltali tæp 1,3 mörk í leik Liðið fær á sig að meðaltali rétt tæp 1,5 mörk í leik Markahæsti leikmaður liðsins er hinn ungi Óttar Magnús Karlsson með 7.mörk í 19 leikjum Útivöllurinn Víkingar hafa sótt í sumar 6 stig á útivöll Síðasti sigurleikur þeirra á útivelli leit dagsins ljós 22.maí gegn ÍBV --- 1 sigur 3. jafntefli 5 töp --- Skora að meðaltali 0,7 mörk á útivelli. Fá á sig að meðaltali 1,9 mörk í leik. Agamál Víkingar hafa fengið í sumar 38 gul spjöld. Að meðaltali gerir það 1,8 gul spjöld í leik
Fyrir leik
Tölfræðihornið - Þróttur Reykjavík Heimamenn í Þrótti eru eina liðið í Pepsi sem er nú þegar fallið. Með jafntefli í Árbænum um síðustu helgi varð það endanlega ljóst að þeir gætu ekki bjargað sér frá falli og Inkasso deildin hlutskipti þeirra að ári. Stigasöfnun Eins og öðrum liðum í Pepsi deildinni hefur Þrótti staðið til boða 63 stig. Þróttur hefur safnað alls 14 stigum af þeim 63. stigum sem í pottinum voru. Að meðaltali nær Þróttur í tæplega 0,7 stig að meðaltali í leik. Sigrar - Jafntefli - Töp 3 sigrar 5 jafntefli 13 töp --- Þróttur vinnur að meðaltali 7. hvern leik Þróttur gerir jafntefli í tæplega fjórða hverjum leik. Þróttur tapar að meðaltali tæplega tveimur af hverjum þremur leikjum. Liðið Þróttur hefur alls notað 30 leikmenn í sumar. Ekkert lið í deildinni hefur notað fleiri leikmenn. Liðið skorar að meðaltali 0,9 mörk að meðaltali í leik Liðið fær á sig að meðaltali 2,3 mörk í hverjum leik Markahæstir eru Vilhjálmur Pálmason og Brynjar Jónasson með 3. mörk hvor. Heimavöllurinn Gervigrasið í Laugardal hefur skilað Þrótti í sumar: 9 stigum alls --- 2 sigrar 3. jafntefli 5 töp --- Skora að meðaltali 1 mark í leik. Fá á sig að meðaltali 2,2 mörk í leik Agamál Þróttarar hafa fengið í sumar 56 gul spjöld. Að meðaltali gerir það 2,7 gul spjöld í leik Þrisvar sinnum hefur Þróttara verið vikið af velli í sumar. Sekir eru Aron Þórður Albertsson, Tonny Mawejjie og reynsluboiltinn Hallur Hallsson
Fyrir leik
Jú verið þið margblessaðir landsmenn góðir í sprelllifandi textalýsingu úr Laugardalanum þar sem Þróttur og Víkingur Reykjavík mu mætast klukkan 1400.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.