Fotbolti.net
@ElvarMagnssonElvar Magnússon
Elvar Magnússon
Valur
Valur
Pepsi-deild karla 2016
Valsvöllur
1 - 0
ÍA
ÍA
Sigurður Egill Lárusson 60'1 - 0
Dómari: Þorvaldur Árnason
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
Sannfærandi sigur hjá Valsmönnum.
90. mín
tvær mínutur í uppbótartíma
Valur
85. mín
InnDaði Bergsson
ÚtKristinn Ingi Halldórsson
82. mín
Kristinn Freyr skorar en rangstæða dæmd. Kristinn og Hansen voru sloppnir einir í gegn Hansen óeigingjarn og gefur á Kristinn sem var fyrir innan þegar sendinginn kom.
78. mín
Sigurður og Albech með skemmtilegt samspil upp hægri kanntinn sem endar með ágætis skoti hjá Sigurði en Árni Snær sem fyrr vel á verði í marki skagamanna.
72. mín
Kristinn Freyr í fínu skotfæri en Hafþór kemst fyrir boltann og Valur fær hornspyrnu.
Valur
70. mín
InnNikolaj Andreas Hansen
ÚtAndri Adolphsson
69. mín
Sigurður Egill með skot frammhjá.
67. mín
Kristinn Freyr með skot fyrir utan teig en Árni snær ver.
65. mín
Garðar fór á punktinn en Anton Ari ver glæsilega..!!!
65. mín
Skagamenn fá hér Vítaspyrnu..!!!
64. mín
Guðmundur Böðvar með gott skot sem fer rétt yfir mark valsmanna.
Valur
60. mín
MAAAARK!

Sigurður Egill Lárusson (stoðsending: Bjarni Ólafur Eiríksson)

glæsilegur fyrirgjöf hjá Bjarna á fjærstöngina sem Sigurður Egill skallar í netið.
58. mín
Ian Williamson með gott skot af 30 metrunum en boltinn rétt frammhjá, ágætis tilraun.
54. mín
Garðar með fyrirgjöf á Þórð sem nær góðum skalla að marki en Anton Ari ver glæsilega í horn.
53. mín
Valur fær hér sína tíundu hornspyrnu í leiknum sem Gaarde skallar yfir.
51. mín
Valsmenn byrja Seinni hálfleikinn að krafti.
50. mín
Sigurður Egill í góðu færi reynir að skrúfa boltann uppi nær en Árni ver í horn.
46. mín
Gaarde með skot fyrir utan teig en Árni grípur boltann.
45. mín
Skagamenn hefja hér leik.
45. mín
Valsmenn hafa verið mun öflugari hér í fyrri hálfleik og verið mun meira með boltann. Skagamenn hafa hinsvegar verið þéttir til baka.
44. mín
Garðar fær hér boltann inní teig og er kominn í góða stöðu en Orri Sigurður með góða tæklingu og Valsmenn ná að hreinsa frá.
41. mín
Orri Sigurður með fínan skalla en Árni Snær ver.
40. mín
Þórður Þorsteinn reynir hér skot frá miðju Anton ekki í neinum vandræðum og grípur boltann.
39. mín
Kristinn Freyr reynir hér skot fyrir utan teig en Guðmundur Böðvar kemst fyrir skotið og Valsmenn fá hornspyrnu.
34. mín
Kristinn Ingi í duðafæri eftir góða sendingu frá nafna sínum en Árni snær nær að verja.
30. mín
Garðar fær sendingu inní teig og nær skoti á markið en Anton Ari ver í hornspyrnu.
Valur
28. mín
InnGuðjón Pétur Lýðsson
ÚtHaukur Páll Sigurðsson
27. mín
Gaarde fær sendingu á fjærstöng og skallar í hliðarnetið fín sókn hjá valsmönnum
25. mín
Sigurður aftur með frábæra sendingu fyrir á Kristinn Frey en Árni snær nær að komast inní sendinguna og hreinsa burt.
17. mín
Sigurður Egill með góða sendingu fyrir en aðeins of framarlega fyrir Andra sem nær ekki til boltans og boltinn endar afturfyrir.
11. mín
Haukur páll vinnur boltann á miðjunni og lætur svo vaða á markið en Árni Snær ver í horn
10. mín
Valsmenn hafa verið mun líklegri
7. mín
Kristinn Freyr með fastan skalla að marki eftir fyrirgjöf frá Gaarde en Darren lough kemst fyrir og Skagamenn ná að hreinsa.
5. mín
Þórður með skot fyrir utan teig sem endar í varnarmanni og skagamenn fá hornspyrnu.
3. mín
Kristian Gaarde með skot inní teig sem Hafþór Pétursson kemst fyrir og hreinsar burt.
1. mín
Valsmenn hefja leik.
Fyrir leik
Leikmenn ganga hér inná völlinn.
Fyrir leik
Valur stillir upp sínu hefðbundna byrjunarliði í dag.
Fyrir leik
Hafþór Pétursson hefur verið að spila miðvörð hjá skagamönnum eftir að Ármann meiddist.
Fyrir leik
Þeir Stefán Teitur Þórðarson, Aron Ingi Kristinsson og Steinar Þorsteinsson koma inní byrjunarliðið í dag og greinilegt að Gunnlaugur ætlar að gefa ungu strákunum tækifæri í dag.
Fyrir leik
ÍA gefur mörgum ungum leikmönnum tækifærið hér í dag og eru níu leikmenn í byrjunarliðinu uppaldir skagamenn.
Fyrir leik
Tveir markahæstu mennirnir í deildinni, Garðar Gunnlaugsson og Kristinn Freyr Sigurðsson eigast við í dag. Gull og silfurskórnir verða afhentir á Hlíðarenda eftir leik. Garðar er með 14 mörk í sumar Kristinn er með 13 mörk í sumar Ef þeir enda jafnir þá vinnur Kristinn gullskóinn. Hann hefur spilað færri leiki.
Fyrir leik
Ef þú ert á ferðinni, stilltu þá inn á X-ið 97,7 þar sem Fótbolti.net fylgist með lokaumferðinni allt til klukkan 16:00 í dag. Umræða í kringum lokaumferðina verður lifandi undir #fotboltinet
Fyrir leik
Maggi Gylfa spáir í umferðina. Valur 3 - 0 ÍA Valsarar rífa sig upp eftir ótrúlegt tap í Vestmanneyjum. Þeir vinna nokkuð sannfærandi og Kiddi tekur gullskóinn með því að setja tvö mörk.
Fyrir leik
Bæði lið eru fyrir miðri töflu Valur er í sjötta með 32 stig og ÍA í því sjöunda með 31 stig.
Fyrir leik
Komiði sæl og verið velkominn í beina textalýsingu af leik Vals og ÍA.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.