Fotbolti.net
@DanelGeirMoritzDaníel Geir Moritz
Daníel Geir Moritz
FH
FH
Pepsi-deild karla 2016
Kaplakrikavöllur
Frábærar aðstæður í október. Smá gola, úrkomulaust og grænn völlur.
1 - 1
ÍBV
ÍBV
0 - 153' Devon Már Griffin Steven Lennon (víti) 83'1 - 1
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.
Leik lokið!
Þá er Íslandsmótinu lokið! FH gera jafntefli við ÍBV hér í lokaumferðinni og geta bæði lið brosað eftir þennan leik. ÍBV enda í 9. sæti á meðan FH verða Íslandsmeistarar. Til hamingju bæði lið!
ÍBV
90. mín
InnSigurður Arnar Magnússon
ÚtMikkel Maigaard Jakobsen
90. mín
Pablo með skalla fram hjá eftir hornið.
90. mín
Sören með skot sem Gunnar ver og missir boltann í horn.
88. mín
FH-ingar farnir að pressa all verulega.
86. mín
Simon með skot af löngu færi en rétt fram hjá markinu!
ÍBV
84. mín
InnSören Andreasen
ÚtAron Bjarnason
FH
83. mín
MAAAARK!

Steven Lennon

Öruggt! Setti boltann til vinstri en Halldór Páll fór til hægri. 1-1!
83. mín
Vítaspyrna!!!! Boltinn berst inn á teig og fer í höndina á Avni Pepa. Grátlegt fyrir Eyjamenn!!!
80. mín
Boltinn berst á Bödda fyrir utan teig og hann skýtur yfir, með rangri löpp.
FH
75. mín
InnJeremy Serwy
ÚtSam Hewson
74. mín
Hornspyrna hjá FH og Kassim mætir á fleygiferð og straujar þarna tvo Eyjamenn í baráttu um boltann.
71. mín
Góð hornspyrna frá Hendrickx sem Halldór Páll greip mjög vel! Sýndi þarna sterkar hendur.
69. mín
Elvar fær frábæra sendingu innfyrir og sendir á Aron Bjarna sem nær ekki að búa sér til mat úr þessu. Þarna fór góður séns.
FH
64. mín
Gult spjald

Emil Pálsson

Brýtur á leikmanni ÍBV sem hugðist sækja hratt.
62. mín
Heeeewson!!! Boltinn skaust af Seers inn fyrir á Hewson sem teygði sig í boltann og náði lausu skoti sem Halldór Páll varði vel.
FH
61. mín
InnKaj Leo í Bartalsstovu
ÚtAtli Viðar Björnsson
FH
61. mín
InnSteven Lennon
ÚtAtli Guðnason
60. mín
Kassim!!! Af öllum mönnum tekur hann spyrnuna og var ekki langt frá því að skora!
57. mín
Seers fær dæmt á sig brot á ákjósanlegum stað fyrir FH. Hann fór beint í boltann og full harkalega að mati Vilhjálms Alvars.
54. mín
Ég er nokkuð viss um að Pablo hafi tekið aukaspyrnuna.
ÍBV
53. mín
MAAAARK!

Devon Már Griffin

Frábært mark!!! Aukaspyrna frá hægri og skallaði Devon boltann í slána og inn! 0-1!!!
52. mín
Atli Guðna fær boltann vinstra megin í teignum og tekur skot í fyrstu snertingu. Yfir fór hann.
47. mín
Kassim liggur eftir samstuð við Elvar Inga. Virtist ekki mikið en Kassim heldur um andlitið. Fékk greinilega smá högg á nefið.
46. mín
Þetta er byrjað á ný!
45. mín
Botnleðju Heiðar er kominn út á völl með Daða Lár og spilar sá fyrrnefndi undir söng steggsins. Líf og fjör.
45. mín
Miðverðirnir voru ansi ósáttir hvor við annan og uppskáru sitt hvort spjaldið. Hasar eftir að flautað var til hálfleiks en nú ættu allir að geta fengið sér te og róað sig niður. Heldur dapur fyrri hálfleikur á enda.
ÍBV
45. mín
Gult spjald

Avni Pepa

FH
45. mín
Gult spjald

Kassim Doumbia

45. mín
Hér er hasar. Kassom brjálaður og mikill atgangur á vellinum. Hvað er að ske?
45. mín
Hewson með góðan sprett og sendir stórhættulega sendingu fyrir en Jón bombar í horn.
44. mín
Hewson með skot í bakið á Pepa. Dálítið stutt bil þeirra á milli en hefði verið stórhættulegt ef ekki hefði verið fyrir Pepa.
40. mín
FH fær horn. Hendrickx tekur.
FH
37. mín
Gult spjald

Böðvar Böðvarsson

Tók Felix niður eftir að ÍBV geystust fram eftir slaka hornspyrnu FH. Dálítið gróft hjá Bödda en aldrei meira en gult.
34. mín
Simon með aukaspyrnu frá hægri sem var arfa arfaslök! Þetta verða Eyjamenn að nýta betur.
32. mín
Hendrickx með skot fyrir utan teig og vel frá því að hitta á markið. Hann fékk að hlaupa lengi áður en hann síðan skaut.
30. mín
Elvar Ingi með hlaup sem lítið kom út úr og skaut Simon fram hjá af löngu færi.
27. mín
Uxinn fær hér högg og leikurinn stöðvaðist í smá stund. Allt farið af stað aftur. Fyrir þau sem ekki vita að þá er Elvar Ingi Vignisson kallaður Uxinn. Höldum því hér til haga.
23. mín
Simon með langt innkast sem orsakaði klafs í teignum en heimamenn hreinsa.
21. mín
Aron Bjarna með hornspyrnu og Simon skallar yfir.
19. mín
Mikill fögnuður er í stúkunni þar sem steggur gengur inn á svæðið. Steggurinn er enginn annar en Daði Lárusson, fyrrum markmaður FH.
17. mín
Aron Bjarna með aukaspyrnu frá vinstri sem skilaði engu.
14. mín
DAUÐAFÆRI!!!!!! Atli Viðar fær frábæra sendingu frá Hewson og tekur boltann á markteig og ÞRUMAR honum yfir! Ja, hérna hér. Ef einhver hefði viljað fá þetta færi...
11. mín
ÍBV með svokallað senda mikið sókn sem rann út í sandinn. Datt einhvern veginn ekki fyrir neinn í teig heimamanna.
ÍBV
10. mín
InnElvar Ingi Vignisson
ÚtGunnar Heiðar Þorvaldsson
9. mín
MAAAAAAAARRKKKK!!!! Eða nei!! Hendrickx með frábærar fyrirgjöf og Kassim gat ekki annað en skorað. Rangstaða dæmd og enn 0-0.
6. mín
Hewson með flotta sendingu inn á Flóka. Hann vissi eiginlega ekki alveg hvað hann ætlaði að gera og átti misheppnaða gabbhreyfingu sem endaði í fangi Halldórs í marki Eyjamanna.
5. mín
ÍBV stilla upp í 5-3-2 Halldór Simon - Devon- Pepa- Jón - Felix Seers - Pablo Mikkel Gunnar Heiðar og Aron Bjarna
4. mín
Maigaard með skot í STÖNGINA!!! Frábær sending hjá Aroni á Mikkel sem lét vaða rétt fyrir utan teig og í stöngina.
1. mín
FH stilla upp í 4-4-2 Gunnar Hendricks - Beggi - Kassim - Þórarinn Ingi Atli G - Emil - Böddi - Hewson Atli V og Kristján Flóki
1. mín
Þetta er farið af stað!
Fyrir leik
Atli Viðar er fyrirliði FH í dag.
Fyrir leik
ÍBV klappa til heiðurs FH er Íslandsmeistararnir labba inn á völlinn.
Fyrir leik
Jón Rúnar og Ingi Sig spjalla hér við endalínuna. Blítt á milli þeirra eins og þeirra er von og vísa.
Fyrir leik
FH-ingar eiga síðan haug af lögum. T.d. þetta hér: https://www.youtube.com/watch?v=zCD_6h14uGM
Fyrir leik
Eyjamenn luma alltaf á góðu stuðningslagi: https://www.youtube.com/watch?v=3JwqycgJ-BI
Fyrir leik
Það er aðeins farið að fjölga í stúkunni, enda innan við 20 mín í leik.
Fyrir leik
Kristján Finnbogason, varamarkvörður FH, er 23 árum eldri en Halldór Páll Geirsson, markvörður ÍBV.
Fyrir leik
Fáum spekingana í fjölmiðlastúkunni til að spá. Stefán Árni Pálsson Vísi: 2-0. Benedikt Grétarsson, Mbl: 2-1. Hörður Snævar Jónsson, 433: 1-1. Sjálfur ætla ég að henda í 4-1 og að bæði lið geti samt brosað að leikslokum.
Fyrir leik
Eyjamann farnir að hita.
Fyrir leik
FH-ingar eru mættur út á völl að hita upp.
Fyrir leik
Ég vil minna á myllumerkið #fotboltinet til að taka þátt í leikjum dagsins. Aldrei að vita nema tístið þitt rati í lýsinguna.
Fyrir leik
Eyjamaðurinn Devon Már Griffin er yngstur í byrjunarliðum dagsins en hann er fæddur 1997.
Fyrir leik
FH byrjar bæði með Atla Viðar og Kristján Flóka hér í dag. Þá kemur Bergsveinn Ólafs inn í liðið eftir að hafa verið á bekknum í síðasta leik.
Fyrir leik
Athygli vekur að Hafsteinn Briem er ekki í hóp Eyjamanna í dag en hann fór meiddur af velli gegn Val í síðustu umferð.
Fyrir leik
Völlurinn lítur glæsilega út og er sleginn í hringi.
Fyrir leik
Ef þú ert á ferðinni, stilltu þá inn á X-ið 97,7 þar sem Fótbolti.net fylgist með lokaumferðinni allt til klukkan 16:00 í dag. Umræða í kringum lokaumferðina verður lifandi undir #fotboltinet
Fyrir leik
Maggi Gylfa spáir í umferðina. FH 1 - 0 ÍBV Þetta er nokkuð tilgangslaus leikur. FH er Íslandsmeistari og mínum huga er öruggt að ÍBV heldur sér.
Fyrir leik
Góðan daginn. Hér verður bein textalýsing frá leik FH og ÍBV í lokaumferð Pepsi-deildarinnar. - FH-ingar eru búnir að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn og fá bikarinn eftir leikinn. - ÍBV er svo gott sem öruggt með sæti sitt í deildinni þó tölfræðilegur möguleiki sé á falli. Önnur úrslit þurfa þá að falla gegn Eyjamönnum og þeir að tapa niður markatölu sinni. Ansi langsótt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.