Fotbolti.net
@mattimattMatthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Víkingur R.
Víkingur R.
Pepsi-deild karla 2017
Víkingsvöllur
Fínar aðstæður, smá vindur og skýjað en bjart
0 - 3
KR
KR
0 - 115' Tobias Thomsen0 - 227' André Bjerregaard0 - 384' Tobias Thomsen
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Danskir dagar.....hjá KR

Hvað réði úrslitum?

Spilamennska KR var klassanum betri en hjá Víkingum. Sennilega besti leikur KR í sumar, allavegana með þeim betri. Virkilega þéttir og ákafir í sínum aðgerðum. Víkingar áttu fá svör spilamennsku vesturbæjarliðsins.

Bestu leikmenn

1. Tobias Thomsen

Skorar tvö mörk og var fjörugur í dag.

2. André Bjerregaard

Kom með góða innkomu inn í lið KR og skoraði í sínum fyrsta leik.

Atvikið

Fyrsta mark KR. Ívar Örn ætlaði að hreinsa frá í teignum en sendi boltann beint á Tobias sem skoraði örugglega.

Hvað þýða úrslitin?

KR kemur sér frá fallbaráttunni með þessum sigri og upp í 8 sæti deildarinnar. Víkingar eru aftur á móti bara á sama róli eða um miðja deild.

Vondur dagur

Varnamenn Víkinga áttu ekki góðan leik, voru óöryggir í sínum aðgerðum sem skilaði því að KR skorar tvö marka sinna.

Dómarinn - 7

Solid leikur hjá dómara leiksins Helga Mikael.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.