SKÝRSLAN: Guðjón skaut Grindvíkinga í kaf
Hvað réði úrslitum?
Sóknarleikur Stjörnumanna og opið spil þeirra. Auðvitað komst liðið yfir með umdeildu marki en það hafði lítið að segja, því Grindvíkingar voru bara á eftir í öllum atriðum. Það var lítil hætta í teig Stjörnumanna og þegar liðið keyrði í sókn þá gerðust hlutirnir það hratt að gestirnir voru of lengi að átta sig. Grindavík hefur verið öflugt varnarlega í föstu leikatriðunum en það vantaði í dag. Flestir bjuggust við að Grindavík myndi rífa sig í gang eftir fjögurra marka tap gegn Fjölni en liðið sýndi engan karakter og úrslitin í dag segja alla söguna. Óttar Bjarni leysti Brynjar Gauta vel af í vörninni og var afar yfirvegaður í sínum aðgerðum. Heiðar Ægisson átti góða innkomu. Guðjón var augljós yfirburðamaður á vellinum en Hilmar Árni fylgdi fast á eftir með magnaðri spilamennsku. Hann náði að opna svæðin vel, vinna aukaspyrnur og magnaður í föstu leikatriðunum.
Bestu leikmenn
1. Guðjón Baldvinsson (Stjarnan)
Alltaf hættulegur í teignum og djöflaðist allan tímann. Skoraði þrennu á tólf mínútum og átti stoðsendingu að fyrsta markinu.
2. Hilmar Árni Halldórsson (Stjarnan)
Magnaður í dag. Bæði í föstu leikatriðunum, vinna aukaspyrnur og opna miðjuna. Frábært sumar hjá honum. Náði svo í eitt mark í lokin.
Atvikið
Þegar Baldur Sigurðsson skoraði á 47 sekúndu. Hann fer með sólann í lærið á Jajalo í markinu áður en hann skoraði og átti ekki að vera mark. Það er þó ekki það sem varð Grindvíkingum að falli í kvöld.
Hvað þýða úrslitin?
Þetta er mikið áfall fyrir Grindavík sem ætlar að vera í toppbaráttu. Þetta er lið sem er í öðru sæti en síðustu tveir leikir er mikið áhyggjuefni fyrir nýliðana sem voru ekki líkir sjálfum sér í dag, né í síðasta leik. Stjörnumenn eru búnir að finna taktinn á ný, eru að fylgja eftir góðum sigrum og allir leikmenn eru að skila sínum hlutverkum vel.
Vondur dagur
Andri Rúnar Bjarnason sást varla. Átti nokkur ágæt færi en klúðraði þeim og tvær aukaspyrnu sem fóru himinhátt yfir. Ólíkur sér.
Eduardo Cruz átti ekkert draumabyrjun með Grindvíkingum og var afar slakur sem og öll vörn liðsins í dag.
Jajalo var líka í basli í markinu eftir viðskipti sín við Baldur í byrjun leiks.
Dómarinn - 6
Leyfði leiknum að fljóta ágætlega. Hann var ekki spjaldaglaður í dag og sleppti því að nýta gula kortið. Ein ákvörðun í byrjun leiks sem truflaði hans frammistöðu en annars fínn.



