

Laugardalsvöllur
Þjóðadeildin
Aðstæður: Alvöru íslenskt haustkvöld. Rignir inná milli og hitinn um 4 gráður.
Dómari: Andreas Ekberg (Svíþjóð)
Áhorfendur: 8663






Íslenska liðið lá í sókn síðustu mínúturnar en náði ekki að jafna leikinn. Fall úr Þjóðadeildinni staðreynd.
Takk fyrir mig í kvöld.

Raggi brýtur á leikmanni Sviss en neitar að tala við dómarann en á endanum gefur hann sig og labbar til hans. Gult á Ragga.
Íslendingar svoleiðis legið í sókn síðustu 10 mínútur og nú er það Birkir Bjarnason sem skýtur RÉTT yfir marki eftir sendingu frá Gylfa.
Þetta er svo nálægt!
Hvað er að gerast!!! Íslendingar liggja þungt á gestunum. Rúrik með skot réttframhjá.
GESTIRNIR BJARGA Á LÍNU!
Íslendingar vilja að meina að þessi hafi verið kominn innfyrir. Kom eftir hornspyrnu frá Gylfa en sá ekki hver átti skallann. Það eru SEEEEEENUR!
Það lifnaði líf í íslenska liðinu við þetta mark!


VÁVÁVÁVÁ!
Alfreð Finnbogason fær boltann á 25 metrunum og HAMRAR hann í hornið! Ég skal segja ykkur það!!! Ísland er á lífi í þessu!
Mvogo átti ekki breik! ÞVÍLÍKT OG ANNAÐ EINS!
Jæja Big Berg, kominn tÃmi þrennuna à andlitið á Sviss👊ðŸ»
— gulligull1 (@GGunnleifsson) October 15, 2018
Ef liðið ætlar að fá eitthvað útur þessum leik þá þarf að fara að byrja þetta.

Á hér glórulausa sendingu meðfram jörðinni sem endar hjá Rúnari Má sem tekur á rás og Schar sér enga aðra leið en að brjóta á Rúnari.
Laugardalsvöllur er þekktur fyrir það að sé erfitt að ná à punkta þar. Að meiri segja Ãslenska landsliðið er à vandræðum með það #fotboltinet
— Magnús (@maggividis) October 15, 2018



Birkir Bjarnason með geggjaðan bolta inná teig, Alfreð lúrir á fjærstönginni en nær að skalla boltann af svona meters færi, Mvogo er hinsvegar mættur og ver þetta frábærlega!
Þarna bjargaði Mvogo gestunum. Markvarsla í heimsklassa.
Illa farið með gott tækifæri.
Höfum við unnið fótboltaleik à þessum HM búningum? Hlýtur að vera vandamálið #fotboltinet
— magnus bodvarsson (@zicknut) October 15, 2018
Mér líst ekkert á Svisslendingana þessa stundina. Shaqiri tekur á rás og kemur með fyrirgjöf inná teig ætlaða Gavranovic sem fær boltann beint fyrir framan sig en skýtur rétt framhjá.
Íslendingar heppnir.
Arnór tekur á rás og fer fram hjá einum, tvemur, ÞREMUR varnarmönnum Sviss og nær skotið sem er ekki nógu gott og Mvogo handsamar boltann.
Frábærlega gert hjá Arnóri.

Granit Xhaka á hér stórbrotna sendingu inn á teig og Seferovic nær að stökkva mun hærra en Hörður Björgvin og stangar boltann í netið. Þetta eru gæði.
Hannes vel staðsettur og nær að grípa boltann. Fín tilraun en þú þarft meiri gæði til þess að koma boltanum framhjá Hannesi.

Hárrétt hjá Svíanum.
Við fáum vonandi meiri læti og skemmtun í þetta í síðari hálfleik.
Býð fólk velkomið á Rúnars Más vagninn. Hann stefnir à að vera cult hetja eins og Helgi Kolviðs #fotboltinet
— DanÃel Geir Moritz (@DanelGeirMoritz) October 15, 2018
Flott frammistaða hjá íslenska liðinu en mikið jafnræði hefur verið með liðinum í þessum fyrri hálfleik.
Ég ætla að hvíla mig á rigningunni og fá mér einn kaffibolla. Sjáumst í síðari hálfleik.
Kári og Raggi eru okkar besta miðvarðarpar. Um það verður ekki deilt.
Gylfi tekur stutt á Jóa sem kemur með boltann inní teig beint á kollinn á Kára sem er með varnarmann Sviss í bakinu og nær ekki nægilega góðum skalla. Boltinn berst aftur til Gylfa sem er dæmdur rangstæður.
Ísland nær ekki að búa sér til mat úr aukaspyrnunni.
Birkir Bjarnason lætur mig öskra á sjònvarpiđ meira en nokkur annar leikmađur #KSà #fyririsland #ISLSUI #Fotboltinet
— Tommi Sigurbjorns (@dontomasini) October 15, 2018
Ekki einu sinni hætta.
Þarna er Gylfi okkar langbestur. Fær boltann rétt fyrir utan teig og tekur skotið viðstöðulaust en Mvogo ver boltann frábærlega!
Þarna mátti ENGU muna! Geggjaður Gylfi.
Varnarmenn Sviss koma boltanum burt. Frábær tilraun og pjúra gæði í þessum bolta frá Jóa.
Þetta eru rosalegar framfarir!
Hamren er hálf kuldalegur þarna á hliðarlÃnunni spurning að splæsa à KSà úlpu á karlinn. #fotboltinet #ISLSUI #fyririsland
— Einar Guðberg Jónsson (@einsijons) October 15, 2018
Þar er Jóhann Berg mættur og nær skotinu á lofti en beint í Nico Elvedi. Fín tilraun og áhorfendur klappa þessu lof í lófa.
Ég er kannski smá seinn að setja inn spá en þessi leikur fer 1-1, Xhaka jafnar à seinni hálfleik eftir að Alfreð kemur Ãslandi à forystu eftir stoðsendingu Rúnars! #fotboltinet
— Eyþór Oddsson (@eythore91) October 15, 2018
Boltinn kemur inní teig og flýgur yfir allan pakkann og alveg yfir á fjærstöngina þar sem að Kári Árnason er en hann virtist ekki alveg tilbúinn að taka á móti boltanum og missir hann útfyrir.
Vel gert hjá íslensku vörninni sem var samstillt og steig upp á sama tíma.
Ísland á fyrsta skot leiksins á markið og það er enginn annar en Gylfi Þór eftir frábæra sendingu frá Arnóri Ingva. Skotið hinsvegar ekki nógu kraftmikið og beint í fangið á Mvogo, markverði Sviss.
Þetta var flott sókn Íslendinga.
Hannes kemur út og grípur boltann.
Getur Shaqiri það á köldu og blautu mánudagskvöldi à ReykjavÃk?#Fotboltinet
— Ãrni Jóhannsson (@arnijo) October 15, 2018
Shaqiri tekur fyrstu hornspyrnu leiksins.
Góða skemmtun!
Fyrirliðar liðanna ákveða nú með dómara leiksins hver skuli byrja með boltann og á hvaða vallarhelmingi hvaða lið á að vera á.
Óðinn Valdimarsson með lagið "Ég er kominn heim" hefur lokið sér af.
Bæði lið í sínum aðalbúningum. Íslendingar bláir sem merkir að sjálfsögðu hafið. Gestirnir rauðir en það merkir einkennislit "Lindor" súkkulaðsins góða. Það súkkulaði á að sjálfsögðu uppruna sinn að rekja til Sviss.
Byrjað á gestunum áður en það er farið í það íslenska.
Stúkan er langt frá því að vera full eins og staðan er núna en við höfum ekki fengið neinar upplýsingar um það hvort að það sé uppselt á leikinn eða ekki.
Fan Zone-ið er í fullum gangi fyrir utan leikvanginn. Fólk er byrjað að tínast í stúkuna en það hefur verið að rigna svolítið undanfarnar mínútur.
Það ætti bara að gera leikinn enn fjörugri.
Allt klárt à klefanum.👇 Ãsland - Sviss à kvöld. Eruð þið klár? ðŸ‘
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) October 15, 2018
We are ready for #ISLSUI in the @UEFAEURO tonight. Are you ready?👀 #NationsLeague #fyririsland pic.twitter.com/MIPQrCW09Z
Dómari leiksins er Andreas Ekberg en honum til aðstoðar á línunum verða Mehmet Culum og Stefan Hallberg.
Sprotadómarar eru Kaspar Sjöberg og Magnus Lindgregn.
Eftirlitsmaður UEFA er enginn annar en Styrbjörn Oskarsson frá Finnlandi. Ansi skemmtilegt nafn.
Stjörnurnar tvær úr ensku úrvalsdeildinni, Granit Xhaka og Xherdan Shaqiri leikmenn Liverpoool og Arsenal eru báðir í byrjunarliði Sviss.
Það má sjá hér að neðan en þetta er nákvæmlega það lið sem við spáðum sem líklegu byrjunarliði.
👇 Our starting lineup for the game against Switzerland!#fyririsland pic.twitter.com/bQghxsqZ25
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) October 15, 2018
Xherdan Shaqiri ein stærsta stjarna Sviss og leikmaður Liverpool svaraði spurningum blaðamanna í gær fyrir leikinn.
Hann var spurður að því hvort að Svissneska liðið þyrfti ekki framherja sem myndi skora fleiri mörk en Haris Seferovic og Mario Gavranovic hafa ekki verið að sinna því hlutverki nægilega vel.
,,Við erum með marga góða sóknarmenn og sóknarsinnaða leikmenn, við erum með mikil gæði í liðinu og það geta allir skorað mörk. Framtíðin er björt. Þið fjölmiðlar þið þurfið ekki að hafa áhyggjur," sagði Shaqiri.
🎫 Innan við þúsund miðar eftir á leikinn à kvöld!
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) October 15, 2018
🌞 Veðrið er frábært!
╠Allir á völlinn!
💪 Styðjum strákana til sigurs!#fyririsland https://t.co/wSMNjWlXM2
Ef marka má það þá kemur Hannes inn fyrir Rúnar Alex sem er meiddur og Hörður Björgvin kemur inn fyrir Birki Má sem einnig er ekki alveg heill heilsu.
Arnór Ingvi og Rúnar Már halda báðir sínum sætum eftir fína frammistöðu í Frakklandi.
Klukkan 14:00 í dag var ekki uppselt á leikinn en þá voru um 1400 miðar eftir.
Þetta er í fyrsta skipti síðan 2013 að ekki selst upp á leik um leið og miðasala hefst. Miðasala fer fram á tix.is
,,Það verður ekki hægt að endurtaka þennan leik, allir leikir eru mismunandi. Það er erfitt að meta það hversu sterkir við vorum og hversu slakir Íslendingar voru. Við erum meðvitaðir um það að það vantaði fjóra lykilmenn í íslenska liðið."
,,Við verðum að spila þannig á morgun að við verðskuldum að vinna leikinn."
Ásamt því rýndu þeir í frammistöðuna góðu úti í Frakklandi. Mikilvægi leiksins í kvöld er meira en flestum grunar.
Sigur á Sviss gæti fleytt íslenska liðinu í efsta styrkleikaflokk þegar dregið verður í riðla fyrir undankeppni EM allstaðar 2020. Þeir félagar fóru yfir mikilvægið í þættinum og mæli ég eindregið með hlustun. Þetta eru gæði.
Leikurinn gegn Sviss er mikilvægari en margir gera sér grein fyrir. Hvernig verður byrjunarliðið? Elvar og Tom fóru yfir þetta allt og margt fleira àútvarpsþættinum #Fotboltinet àgærhttps://t.co/h5nNQGGSjX
 Fotbolti.net (@Fotboltinet) October 14, 2018
Sviss 6 - 0 Ísland
Landsliðmenn Íslands hafa haft orð á því í viðtölum fyrir þennan leik að nú sé komið að hefndarstund og þeir ætli að sýna þjóðinni að þetta hafi einungis verið slys.
Hamrén fór yfir stöðu leikmannahópsins á fundinum og staðfesti það að Emil Hallfreðsson og Guðlaugur Victor munu ekki koma við sögu hér í dag vegna meiðsla. Samúel Kári var því kallaður inn í hópinn.
Birkir Már og Rúnar Alex tóku ekki þátt á fyrstu æfingu liðsins eftir að þeir lentu frá Frakklandi og á blaðamannafundinum var staða þeirra beggja óljós, að sögn Hamrén.
Hér má hlusta á blaðamannafundinn í heild sinni.







