SKÝRSLAN: Sam Hewson erfiðari en Landeyjahöfn
Hvað réði úrslitum?
Fylkir nýtti sín færi en ÍBV ekki. Þetta var skrýtinn leikur þar sem ÍBV spilaði vel á köflum og fékk fín færi en Fylkir pakkaði leiknum síðan saman á korters kafla.
Bestu leikmenn
1. Sam Hewson
kom inn á eftir hálftíma leik og breytti leiknum. Tók leikinn bara yfir og skoraði svo þriðja markið með draumaskoti. Frábær leikur hjá Sam sem reyndir Eyjamönnum erfiðari í dag en Landeyjahöfn.
2. Daði Ólafsson
Daði var frábær í vinstri bakverðinum í dag. Varðist vel og var mjög mikilvægur í sóknarleik liðsins.
Atvikið
ÍBV átti að öllum líkindum að fá vítaspyrnu á 15. mínútu þegar boltinn fór í höndina á Ásgeiri Eyþórssyni. ÍBV var þarna með undirtökin í leiknum og hefði hann getað þróast allt öðruvísi ef víti hefði verið dæmt.
Hvað þýða úrslitin?
Draumabyrjun hjá Fylki og martröð hjá ÍBV. Það er svo einfalt. Eins glaðir og gestirnir fara heim eru heimamenn jafn svekktir.
Vondur dagur
Þetta verður að fara á Sigurð Arnar. Barðist allan leikinn en allt gekk upp hjá Fylki og svo skoraði hann sjálfsmark. Ekki vondur leikur þannig séð en klárlega vondur dagur.
Dómarinn - 6
Þetta var vel dæmdur leikur en klikkað á stóru atviki, eins og fram kemur í Atvikinu. Maður á eftir að sjá þetta í sjónvarpinu en ef hann dæmdi rétt þar á hann hærri einkunn skilið. Góð stjórn á leiknum en stóru hlutirnir verða að vera í lagi.



