Fotbolti.net
@arnarmagnussonArnar Helgi Magnússon
Arnar Helgi Magnússon
Pepsi-Max deild kvenna
JÁVERK-völlurinn
Glæsilegur JÁVERK-völlur. Einn sá flottasti. Lítur vel út í kvöld.
Selfoss
Selfoss
1 - 4
Breiðablik
Breiðablik
0 - 18' Berglind Björg Þorvaldsdóttir0 - 227' Alexandra Jóhannsdóttir Darian Elizabeth Powell 34'1 - 21 - 342' Hildur Antonsdóttir 1 - 482' Agla María Albertsdóttir (víti)
Dómari: Bríet Bragadóttir
Myndir: Anna Þonn - fotbolti.net

SKÝRSLAN: Gjafmildir Selfyssingar engin fyrirstaða fyrir Íslandsmeistarana

Hvað réði úrslitum?

Blikar komust yfir snemma í leiknum sem að gerði þeim klárlega auðveldara fyrir. Í leiknum sást klár gæðamunur á liðunum tveimur þó svo að mörkin sem að Selfyssingar gáfu hafi verið ansi ódýr. Blikarnir gerðu nákvæmlega það sem að þær þurftu að gera og sigurinn var aldrei í hættu.

Bestu leikmenn

1. Berglind Björg Þorvaldsdóttir

Berglind Björg skoraði mark og lagði upp annað í leiknum í kvöld. Fékk nokkur fín færi og hefði auðveldlega getað skorað að minnsta kosti eitt mark í viðbót. Alltaf hættuleg þegar boltinn er nálægt henni.

2. Hildur Antonssdóttir

Algjör baráttuhundur á miðjunni. Vann gífurlega marga bolta fyrir Blika og leikmenn Selfyssinga réðu lítið sem ekkert við hana. Kórónaði síðan frábæra frammistöðu sína með marki.

Atvikið

Ekki mikið af risa atvikum í leiknum. Vítaspyrnan sem að Agla María skoraði úr á 82. mínútu fær þennan titil. Kláraði leikinn endanlega fyrir gestina úr Kópavogi.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða einfaldlega það að Blikar eru komnir í toppsæti deildarinnar með fullt hús stiga. Selfyssingar hinsvegar án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Vondur dagur

Varnarleikur Selfyssinga var ansi dapur í leiknum og liðið gaf mörk sem að auðveldlega er hægt að koma í veg fyrir. Brynja Valgeirsdóttir, þessi frábæri varnarmaður Selfyssinga, hefur oft spilað betur en hún gerði slæm mistök í öðru marki Blika ásamt því að fá dæmda á sig vítaspyrnu undir lok leiksins.

Dómarinn - 8,5

Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfyssinga, er líklega ekki sammála mér enda talaði hann við hana í dágóða stund eftir leikinn. Fannst Bríet hafa flott tök á leiknum, hélt línu og var með stóru ákvarðanirnar hárréttar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.