SKÝRSLAN: Jana Sól hetja Stjörnunnar
Hvað réði úrslitum?
Gott skot innan teigs frá Jönu Sól skildi liðin að í annars rólegum leik.
Bestu leikmenn
1. Sóley Guðmundsdóttir
Virkilega örugg í sínum aðgerðum og átti öflugar fyrirgjafir í leiknum. Ein af þeim skilaði marki í kjölfarið.
2. Jana Sól Valdimarsdóttir
Markaskorarinn gerði það sem hún þurfti eftir að hún kom inná. Skoraði mark og tryggði Stjörnunni sigurinn í leiknum.
Atvikið
Edda María Birgisdóttir kom inn í byrjunarlið Stjörnunnar fyrir Önnu Maríu Baldursdóttur. Edda hafði ekki spilað frá vetrinum 2014-15 þegar hún lék með Anderlecht í Belgíu en hún á að baki 99 leiki í efstu deild með Stjörnunni, Aftureldingu, ÍBV og Fjölni og hefur orðið bæði Íslands- og bikarmeistari með Garðabæjarliðinu. Elsti leikmaður Stjörnunnar í dag.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar með markatöluna 2-0. HK/Víkingur þarf hinsvegar að sætta sig við fyrsta tap sumarsins.
Vondur dagur
Renae Nicole Cuellar. Miklar vonir voru bundnar við Cuellar fyrir tímabilið en hún hefur ekkert sýnt fyrstu tvo leiki sumarsins og var tekin útaf eftir rúmlega klukkutíma leik í stöðunni 0-0. Hún var fengin til að skora mörk.
Dómarinn - 7
Auðveldur leikur að dæma. Sleppti Maríu Evu með spjald sem var ótrúleg ákvörðun.



