SKÝRSLAN: Cloé sökkti Keflavík
Hvað réði úrslitum?
Cloé Lacasse réði úrslitum í dag. Gjörsamlega frábær leikmaður sem vörn Keflavíkur átti í stökustu vandræðum með. Leikmaður sem líklega myndi labba inn í öll lið deildarinnar.
Bestu leikmenn
1. Cloé Lacasse
Mark og eins og fyrr sagði tætti hún vörn heimakvenna í sig trekk í trekk og hefði auðveldlega geta skorað mun fleiri mörk.
2. Sigríður Lára Garðarsdóttir
Þvílík vél á miðjunni hjá ÍBV. Vinnsluhestur sem hættir aldrei og gaf heimakonum aldrei frið með boltann.
Atvikið
Eftir um 25 mínútur í fyrri hálfleik varð mikill darraðadans í teig eyjakvenna eftir hornspyrnu. Heimakonur vildu meina að boltinn hefði farið inn fyrir línuna en dómarinn flautaði ekki né gaf línuvörðurinn merki um mark. Ansi margir sem sáu atvikið betur en ég voru handvissir um að boltinn hefði verið inni.
Hvað þýða úrslitin?
Eyjakonur sækja sér sín fyrstu þrjú stig og koma sér þar með á blað. Keflavík situr eftir stigalaust og þarf að fara að plokka stig.
Vondur dagur
Erfiður reitur að fylla út eftir leik kvöldsins þar sem flestir leikmenn voru bara að eiga þokkalegan leik í heildina. En varnarlínu Keflavíkur er vorkunn að hafa þurft að eiga við Clóe og verða bakverðir Keflavíkur eflaust með harðsperrur eftir eltingarleik við hana allan leikinn.
Dómarinn - 6,5
Allt í lagi leikur hjá Gunnari en ef hann missti af marki er það ansi dýrt,


