Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Pepsi Max-deild karla
Eimskipsvöllurinn
Létt rigning og smá gustur
Víkingur R.
Víkingur R.
3 - 4
Stjarnan
Stjarnan
0 - 130' Hilmar Árni Halldórsson0 - 238' Guðjón Baldvinsson 0 - 348' Guðjón Baldvinsson Ágúst Eðvald Hlynsson 53'1 - 31 - 465' Alex Þór Hauksson Júlíus Magnússon 73'2 - 4Sölvi Ottesen 89'3 - 4
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 673
Leik lokið!
STJARNAN TEKUR ÖLL STIGIN!
94. mín
Guðjón Baldvinsson með marktilraun. Skýtur framhjá.
93. mín
Smá óðagot á mönnum hérna í lokin...
92. mín
Halli Björns tekur markspyrnu. Fylgjumst grannt með lokasekúndunum.
91. mín
VÍKINGAR FÁ AUKASPYRNU...

Ágúst Hlynsson með FLOTTA spyrnu en rétt yfir markið.
90. mín
Víkingar halda áfram að setja pressu á Stjörnumenn! Þetta verður æsispenanndi uppbótartími! 4 mínútur í uppbótartíma.
Víkingur R.
89. mín
MAAAARK!

Sölvi Ottesen (stoðsending: Logi Tómasson )

ÞAÐ ER VON FYRIR VÍKINGA!!!

Sölvi er á fjærstönginni og nær að skora eftir hornspyrnu!
88. mín
Víkingar halda áfram að sækja og stuðningsmenn liðsins láta í sér heyra í stúkunni. Fólk trúir!
84. mín
Guðmundur Steinn skallar yfir úr erfiðri stöðu.
83. mín
Logi Tómasson með hörkuskot á markið úr aukaspyrnu! Halli Björns kýlir boltann frá.
80. mín
Víkingar virðast hafa bullandi trú á þessu. Líf og fjör þessar mínútur. Víkingar með horn en Nikolaj skallar yfir. Þurfti að teygja sig vel í þennan bolta.
Stjarnan
76. mín
Gult spjald

Heiðar Ægisson

Víkingur R.
76. mín
InnLogi Tómasson
ÚtDofri Snorrason
Dofri átt erfiðan leik. Luigi leysir hann af.
Stjarnan
76. mín
InnÞorri Geir Rúnarsson
ÚtAlex Þór Hauksson
Víkingur R.
73. mín
MAAAARK!

Júlíus Magnússon

Julíus Aghahowa!

Miðjumaðurinn ungi skorar sitt fyrsta mark fyrir meistaraflokk Víkings.

Viðurkenni að ég var límdur við tölvuskjáinn þegar markið kom en Andri Yrkill á mbl.is segir að Haraldur Björnsson hafi átt furðulegt úthlaup, misst af boltanum og júlíus rennt boltanum í tómt markið.
Víkingur R.
70. mín
InnJames Charles Mack
ÚtAtli Hrafn Andrason
69. mín
673 áhorfendur í kvöld. Ekki merkilegt það.
68. mín
Þorsteinn Már fær áfram að leika lausum hala! Nálægt því að leggja upp annað mark en Guðmundur Steinn var stöðvaður á síðustu stundu.
Stjarnan
65. mín
MAAAARK!

Alex Þór Hauksson (stoðsending: Þorsteinn Már Ragnarsson )

Dofri Snorrason hefur verið í tómu basli með Þorstein Má og nú leggur Þorsteinn upp mark fyrir Alex Þór Hauksson.
64. mín
VÍKINGAR NÁLÆGT ÖÐRU MARKI! Eftir hörkuflotta sókn rennir Atli Hrafn boltanum á Davíð Atla og bakvörðurinn á hörkuskot sem Haraldur Björnsson nær að verja. Mark þarna hefði galopnað þennan leik!
Stjarnan
62. mín
InnNimo Gribenco
ÚtHilmar Árni Halldórsson
61. mín
Guðjón Baldvinsson með marktilraun eftir hornið. Þórður ver. Annað horn. Ekkert kemur úr því horni.
60. mín
Stjarnan fékk aukaspyrnu á hættulegum stað. Hilmar Árni skaut í varnarvegginn og framhjá. Horn.
Víkingur R.
59. mín
InnRick Ten Voorde
ÚtGuðmundur Andri Tryggvason
Sjúkraþjálfari fylgir Guðmundi Andra af velli.
55. mín
Guðmundur Andri með lipur tilþrif í teig Stjörnunnar en missir boltann svo frá sér. Skemmtilega gert hjá honum.
Víkingur R.
53. mín
MAAAARK!

Ágúst Eðvald Hlynsson

ÞAÐ ER VON FYRIR VÍKINGA!

Nikolaj Hansen með skalla sem Halli Björns ver en boltinn dettur fyrir Ágúst Hlynsson sem fær mark á silfurfati. Hans fyrsta mark fyrir Víking.
Stjarnan
51. mín
InnGuðmundur Steinn Hafsteinsson
ÚtBaldur Sigurðsson
Baldur fær hér hvíld.

Guðmundur Steinn kominn inn. Valur gerði víst tilboð í hann sem Stjörnumenn höfnuðu.
50. mín
Atli Hrafn með skalla. Laus og auðvelt verkefni fyrir Harald Björnsson.
Stjarnan
48. mín
MAAAARK!

Guðjón Baldvinsson (stoðsending: Þorsteinn Már Ragnarsson )

VESEN Á VÍKINGUM!!!

Þorsteinn Már fer HRIKALEGA illa með vörn Víkings og gefur á Guðjón sem klárar með frábæru skoti meðfram jörðinni í bláhornið.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Gylfi Þór Orrason, fyrrum formaður dómaranefndar KSÍ, notar hálfleikinn í að spjalla við núverandi formann dómaranefndar, Þórodd Hjaltalín. Tveir miklir gleðipinnar þar á ferð.
45. mín
Maggi, útvarpsmaðurinn vinsæli á Útvarpi Sögu, er mættur í fréttamannastúkuna til að prófa kaffivél Þróttar. Hann ákveður að fá sér kakó. Maggi er vallarþulur á handboltaleikjum Stjörnunnar og þykir einstaklega fær í sínu starfi.
45. mín
Hálfleikur
Furðulegur fyrri hálfleikur!

Víkingar töluvert betri fram að því að Stjarnan komst yfir. Garðabæjarliðið tveimur mörkum yfir í hálfleik!
42. mín
Dofri Snorrason með fyrirgjöf sem fer yfir allt og alla. Þessi sókn Víkinga rennur út í sandinn.
Stjarnan
38. mín
MAAAARK!

Guðjón Baldvinsson (stoðsending: Hilmar Árni Halldórsson)

GLÆSILEGT MARK!!!

Hilmar Árni kemur boltanum á Guðjón Baldvinsson sem skorar með flottu 'karate' skoti! Stjarnan í góðri stöðu.
35. mín
Atli Hrafn Andrason skallar yfir markið. Skalli af nokkuð löngu færi.
Stjarnan
30. mín
MAAAARK!

Hilmar Árni Halldórsson (stoðsending: Guðjón Baldvinsson )

FRÁBÆRT SPIL HJÁ STJÖRNUNNI!

Þeir hafa verið frekar þungir í leiknum hingað til en skyndilega hentu þeir sér í næsta gír!

Sóttu upp hægra megin, Þorsteinn á Guðjón sem renndi knetinnum á Hilmar sem var rétt fyrir utan markteiginn og kláraði örugglega með fastri afgreiðslu!
29. mín
Víkingar eru hættulegri hér í upphafi leiksins.
26. mín
Guðmundur Andri með skot fyrir utan teig. Um að gera. Beint í fangið á Haraldi Björnssyni.
25. mín
Guðmundur Andri með boltann rétt fyrir utan teig, Stjörnumaður nær að pota í knöttinn og hann fellur á Júlíus Magnússon sem á skot. Vel yfir markið.
21. mín
Ágúst Hlynsson nær að koma sér í vænlega stöðu en þessi ungi leikmaður Víkings hittir boltann mjög illa, vel framhjá.
18. mín
Nikolaj Hansen kemur sér inn i teig en flaggaður rangstæður. Hinumegin á Guðjón Baldvinsson skot úr erfiðri stöðu. Hátt yfir markið.
15. mín
Guðjón Baldvinsson með fínt skot! Þórður Ingason í vandræðum með það en ver á endanum.
13. mín
Atli Hrafn Andrason með skottilraun hjá Víkingum. Framhjá markinu.
8. mín
Stjarnan með horn. Eftir hornspyrnuna er dæmt sóknarbrot.
7. mín
Davíð Atla með fyrirgjöf. Halli Björns í marki Stjörnunnar handsamar boltann af öryggi.
5. mín
Barátta hér í upphafi. Ekki fallegar upphafsmínútur.
1. mín
Leikur hafinn
Stjarnan byrjaði með knöttinn. Hilmar Árni átti upphafssparkið.
Fyrir leik
Liðin er mætt út á völlinn og klappa til áhorfenda.
Fyrir leik
Oliver Sigurjónsson spáir 1-2 í kvöld:
Þessi leikur ræðst á föstum leikatriðum. Erfitt að mæta Stjörnunni því þeir eru líklegast með líkamlega sterkasta liðið í deildinni. Halldór og Sölvi eru góðir í loftinu og liggja oftast aftarlega. Það hentar Stjörnunni illa ef þeir ætla að setja mikið að löngum boltum.
Elska þetta project hjá Arnari Gunnlaugs með leikmannakaup og spilastíl.
Fyrir leik
Nánar um uppstillingar kvöldsins. Ekki bara Jósef Kristinn sem kemur inn í byrjunarlið Stjörnunnar. Eyjólfur Héðinsson og Baldur Sigurðsson koma inn fyrir Þorra Geir Rúnarsson og Nimo Gribenco.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn.

Sóknarmaðurinn ungi Guðmundur Andri Tryggvason kemur beint inn í byrjunarlið Víkings. Logi Tómasson er á bekknum.

Jósef Kristinn Jósefsson byrjar hjá Stjörnunni en hann hefur verið að glíma við meiðsli. Þórarinn Ingi Valdimarsson er meðal varamanna.
Fyrir leik
Sóknarmaðurinn Guðmundur Andri Tryggvason fékk í vikunni leikheimild með Víkingum en hann var lánaður frá Start út tímabilið.

Guðmundur Andri er fæddur 1999 og á að baki 26 leiki fyrir U21, U19 og U17 ára landslið Íslands. Hann spilaði með meistaraflokki KR á árunum 2015-2017 og spilaði alls 22 leiki og skoraði 2 mörk fyrir félagið.
Fyrir leik
Dómari leiksins í kvöld er besti dómari Íslands í dag, Vilhjálmur Alvar Þórarinsson. Gunnar Helgason (ekki leikarinn) og Adolf Þ. Andersen eru aðstoðardómarar.
Fyrir leik
Víkingar eru með tvö stig; liðið gerði jafntefli í leikjum sínum gegn Val og FH en tapaði í síðustu umferð á sannfærandi hátt gegn Breiðabliki.

Stjarnan er með fimm stig, jafntefli gegn KR og Grindavík og svo sigur gegn HK í síðasta leik 1-0 þar sem Hilmar Árni Halldórsson skoraði glæsimark.
Fyrir leik
Heil og sæl og verið velkomin með okkur í Laugardalinn þar sem Víkingur Reykjavík og Stjarnan eigast við í 3. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Það er verið að klára gervigraslögn og framkvæmdir á Víkingsvellinum og á meðan spilar liðið heimaleiki sína á Eimskipsvellinum, heimavelli Þróttar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.