SKÝRSLAN: Hafrún Rakel skaut Aftureldingu áfram
Hvað réði úrslitum?
Mikil barátta og karakter heimakvenna skilaði þeim þessum sigri. Þær gáfust aldrei upp, sama þótt þær lentu þrisvar undir í leiknum. Komu alltaf til baka.
Bestu leikmenn
1. Hafrún Rakel Halldórsdóttir (Afturelding)
Skoraði þrennu í kvöld og var alltaf hættuleg þegar hún var með boltann. Tryggði Aftureldingu sigurinn með frábæru marki á síðustu mínútu framlengingarinnar.
2. Shannon Simon (Grindavík)
Var mjög öflug allan leikinn og vann flesta bolta sem hún fór í. Skoraði líka gott mark.
Atvikið
Það er ekki annað hægt en að velja sigurmark Hafrúnar. Nær í þessa aukaspyrnu sjálf, beint fyrir utan teig Grindavíkur á síðustu mínútu framlengingarinnar. Tók spyrnuna sjálf og smurði honum upp í vinkilinn. Geggjað!
Hvað þýða úrslitin?
Afturelding verður í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslitum Mjólkurbikar kvenna en Grindavík eru úr leik.
Vondur dagur
Erfitt að taka einhvern út hérna. Fjörugur leikur þar sem var hart barist og allir voru að leggja sig 150% fram.
Dómarinn - 6,5
Hefði stundum mátt leyfa leiknum að fljóta betur. Hann virtist stundum láta leikmenn og þjálfara hafa áhrif á ákvarðanir sínar. Þó engir stórir vafadómar og hallaði ekki á annað liðið. Ágætur á heildina litið.


