SKÝRSLAN: Furðulegur fótboltaleikur í Laugardal
Hvað réði úrslitum?
Fram að fyrsta marki Stjörnunnar voru Víkingar mun betri í leiknum. En tómatsósuáhrifin voru skyndilega mætt til Garðbæinga. Allir voru búnir að afskrifa Víkinga í stöðunni 1-4 en þeir sjálfir héldu í trúna og þeir bláu virkuðu hræddir, en héldu út!
Bestu leikmenn
1. Þorsteinn Már Ragnarsson - Stjarnan
Ofboðslega er gaman að horfa á Þorstein spila fótbolta þegar hann er á sínum bestu dögum. Einn af þeim dögum var í dag. Fór illa með vörn Víkings.
2. Hilmar Árni Halldórsson - Stjarnan
Mark og stoðsending frá Hilmari kom Stjörnunni á beinu brautina. Hann var tekinn af velli í seinni halfleik, hvíldur þar sem hann hefur verið að glíma við ökklameiðsli.
Atvikið
Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar, gerði skelfileg mistök sem komu Víkingum á bragðið. Júlíus Magnússon skoraði og minnkaði muninn í 2-4 sem gerði leikinn skyndilega æsispennandi. Meðbyr kom með Víkingum en hann dugði ekki alla leið.
Hvað þýða úrslitin?
Stjörnumenn eru aðeins tveimur stigum frá efstu liðum. Þrátt fyrir skemmtilega spilamennsku hafa Víkingar aðeins krækt í tvö stig. Framundan í næsta leik hjá þeim er ÍBV, sá leikur verður stórt próf fyrir liðið eftir erfiða andstæðinga í byrjun.
Vondur dagur
Öll varnarlína Víkings var léleg í þessum leik en daprastur var þó Dofri Snorrason. Þorsteinn Már Ragnarsson hreinlega lék sér að honum.
Dómarinn - 9
Vilhjálmur Alvar er besti dómari Íslands í dag.



