Fotbolti.net
Benjamín Þórðarson
Benjamín Þórðarson
Pepsi Max-deild karla
Norðurálsvöllurinn
ÍA
ÍA
2 - 0
FH
FH
Bjarki Steinn Bjarkason 3'1 - 0Bjarki Steinn Bjarkason 68'2 - 071' Pétur Viðarsson
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Leik lokið!
Leiknum er lokið með sigri heimamanna. Viðtöl og skýrsla á leiðinni.
93. mín
Skagamenn með skyndisókn í restina og Bjarki með skot en Vignir ver vel. Langði í þrennuna strákinn .
90. mín
Stefán Teitur með skot en Vignir ver vel.
90. mín
90 komnar á klukkuna. Þrem mínútum bætt við.
88. mín
FH-ingar halda boltanum þessa stundina án þess að skapa sér færi.
ÍA
84. mín
Gult spjald

Steinar Þorsteinsson

82. mín
Jónatan með rosalegan sprett upp hægri kantinn og sendingu fyrir en Brandur með agalega slakt skot og Árni ver.
81. mín
Brandur með skot úr aukaspyrnu en vel yfir markið.
ÍA
80. mín
InnAlbert Hafsteinsson
ÚtTryggvi Hrafn Haraldsson
79. mín
Jákup kemst einn í gegn en dæmdur rangstæður.
78. mín
Höddi Löpp með skot með hægri fyrir utan teig en vel yfir
FH
77. mín
Gult spjald

Cedric Stephane Alfred D´ulivo

FH
75. mín
InnCedric Stephane Alfred D´ulivo
ÚtKristinn Steindórsson
75. mín
Skagamenn með flotta sókn og Hörður með fyrirgjöf en bara enginn mættur til að pota honum yfir línuna.
FH
71. mín
Rautt spjald

Pétur Viðarsson

FH-ingar vildu hornspyrnu en fengu ekki og Pétur fær beint rautt! Ekki hugmynd fyrir hvað.
ÍA
68. mín
MAAAARK!

Bjarki Steinn Bjarkason (stoðsending: Steinar Þorsteinsson )

Skagamenn skora!!! Ég var varla búinn að sleppa orðinu að það lægi FH mark í loftinu þegar Steinar Þorsteins labbar framhjá Kidda Steindórsk, gefur fyrir og Bjarki setur hann í slánna og inn!
66. mín
FH-ingar vilja fá vítaspyrnu eftir að Halldór Orri fer niður í teignum en Pétur dæmir ekkert. Liggur nánast mark í loftinu frá gestunum.
ÍA
64. mín
InnSteinar Þorsteinsson
ÚtGonzalo Zamorano Leon
FH
62. mín
InnBrandur Hendriksson Olsen
ÚtÞórir Jóhann Helgason
Tvöfaldur Færeyingur hjá Óla Kri.
FH
62. mín
InnJákup Ludvig Thomsen
ÚtAtli Guðnason
FH
61. mín
Gult spjald

Guðmundur Kristjánsson

Gummi Kristjáns fær stundarbrjálæði og brýtur af sér! Þetta var rúmlega gult.
56. mín
Frábær sókn hjá FH-ingum sem endar með fyrirgjöf frá Atla en Halldór Orri setur boltann yfir markið.
53. mín
FH-ingar að byrja seinni hálfleikinn mikið betur en Skagamenn. Halda boltanum vel.
ÍA
52. mín
Gult spjald

Gonzalo Zamorano Leon

49. mín
Kiddi Steindórs með skot eftir horn en framhjá.
48. mín
Skagamenn með hörku skyndisókn sem endar með skoti frá Bjarka Steini en Vignir bjargar vel.
46. mín
Þá er seinni hálfleikur hafinn og það eru Skagamenn sem byrja með boltann og sækja í átt að höllinni.
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur á Akranesi. FH-ingar lágu á Skagamönnum hérna undir restina óheppnir að jafna ekki leikinn.
ÍA
45. mín
Gult spjald

Óttar Bjarni Guðmundsson

45. mín
Það er einni mínútu bætt við fyrri hálfleikinn.
44. mín
Björn Daníel með geggjaða takta fyrir framan vítateig Skagamenn og sendir á Pétur sem kemur með slaka fyrirgjöf sem Árni grípur.
39. mín
Bjarki Steinn við það sleppa framhjá Vigni en Vignir gerði frábærlega og náði boltanum.
36. mín
Álitleg sókn hjá FH-ingum sem endar með skalla frá Pétri en Árni Snær grípur vel.
32. mín
Skagamenn með snögga sókn sem endar með skoti frá Tryggva en rétt framhjá markinu.
29. mín
FH-ingar sækja meira þessa stundina án þess að skapa sér færi samt ennþá. Smá töf á leiknum vegna höfuðmeiðsla.
23. mín
FH-ingar að sækja í sig veðrið eftir því sem líður á hálfleikinn og voru við það prjóna sig í gegn en Skagamenn bjarga á síðustu stundu.
FH
20. mín
Gult spjald

Guðmann Þórisson

17. mín
Skagamenn brjálaðir og vilja víti. Boltinn virtis fara í hendi FH-ings en ekkert dæmt.
16. mín
Enn skapast hætt í teignum hjá FH eftir hornspyrnu Skagamanna. Boltinn berst á ednanum á Hödda löpp sem tekur skotið með hægri en framhjá.
14. mín
Fín sókn hjá FH sem endar með skoti frá BDS en það er vel yfir.
11. mín
Aftur ná Skagamenn skalla eftir horn en framhjá. Einar Logi átti að setja þennan á rammann!
7. mín
Skagamenn fengu hornpspyrnu og ná skallanum en framhjá markinu.
6. mín
Líf og fjör! Árni með glórulaust úthlaup og Jóntan með skot en Lars bjargar. Árni stálheppinn!!
ÍA
3. mín
MAAAARK!

Bjarki Steinn Bjarkason (stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson )

Skagamenn komast strax yfir!! Árni Snær með sendingu í genum allt eftir að hafa gripið fyrirgjöf og Tryggvi stingur alla af og sendir fyrir á Bjarka sem klárar vel. 1-0!!
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn og það eru FH sem byrja með boltann og sækja í átt a[ höllinni.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og það er fátt sem kemur á óvart þar. Skagamenn stilla upp sama liði og vann val um seinustu helgi. Hjá FH er Vignir í markinu og Jákup og Brandur á bekknum.
Fyrir leik


Fyrir leik
Það eru tveir aðrir leikir á dagskrá í 4.umferð Pepsi-Max deildarinnar í kvöld og hefjast þeir einnig báðir kl 19:15. Víkingur R. fær Stjörnuna í heimsókn á meðan Breiðablik skellir sér norður yfir heiðar og mætir KA. Umferðin klárast svo á morgun þegar HK fær ÍBV í heimsókn, Fylkir mætir Val í Árbænum og Grindavík tekur á móti KR suður með sjó.
Fyrir leik
Dómari leiksin er Pétur Guðmundsson og honum til aðstoðar verða þeir Oddur Helgi Guðmundsson og Eysteinn Hrafnkelsson. Varadómari er svo Helgi Mikael Jónasson. Eftirlitsmaður KSÍ er Björn Guðbjörnsson.
Fyrir leik
Liðin hafa spila alls 80 leiki á vegum KSÍ og þar hafa FH-ingar vinninginn. Þeir hafa unnið 36 en ÍA hefur unnið 28. 16 sinnum hafa liðin skipst á jafnan hlut. Skagamenn unnu síðustu viðureign þessara liða í sem var í Fótbolta.net mótinu í vetur 4-2. Það þarf hins vegar að fara aftur til ársins 2005 til að finna síðasta sigur ÍA á FH í efstu deild.
Fyrir leik
Oliver Sigurjónsson leikmaður Bodo/Glimt í Noregi er spámaður 4.Umferðar Pepsi Max deildarinnar hjá okkur á fotbolti.net og hann hafði þetta að segja um þennan leik:

ÍA 1-3 FH

Tvö best spilandi liðin í upphafi móts. Þetta ræðst á því hversu vel FH nær að ráða við pressuna og föst leikatriði hjá ÍA. Óli Kri verður búinn að greina ÍA í döðlur og uppsker taktískan sigur.
Fyrir leik
FH-ingar fengu hins vegar KA menn í heimskókn í síðasta leik og höfður þar betur 3-2 í hörkuleik þar sem Halldór Orri Björnsson skoraði tvívegis og Björn Daníel skoraði eitt mark.
Fyrir leik
Skagamenn gerðu sér lítið fyrir og sóttu þrjú stig á Origo völlinn í síðustu umferð þegar þeir unnu Val 1-2 í hörkuleik þar sem Óttar Bjarni Guðmundsson og Arnar Már Guðjónsson skoruðu mörk ÍA.
Fyrir leik
Bæði lið hafa byrjað tímabilið virkilega vel og sitja hlið við hlið í 2-3 sæti í deildinni með sjö stig eftir 2 sigra og eitt jafntefli. Því má búast við hörkuleik hérna í kvöld.

Skagamenn hafa unnið KA og Val og gerðu jafntefli við Fylki á meðan FH-ingar hafa sigrað HK og KA og gert jafntefli við Víking R.
Fyrir leik
Heilir og sælir lesendur .net og verið velkomin í beina textalýsingu frá Norðurálsvellinum á Akranesi þar sem við ætlum að fylgjast með leik ÍA og FH.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.