Fotbolti.net
Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Mjólkurbikar kvenna
Varmárvöllur - gervigras
Afturelding
Afturelding
5 - 4
Grindavík
Grindavík
0 - 116' Margrét Hulda Þorsteinsdóttir Hafrún Rakel Halldórsdóttir 30'1 - 11 - 244' Shannon SimonEydís Embla Lúðvíksdóttir 49'2 - 22 - 358' Margrét Hulda Þorsteinsdóttir Eydís Embla Lúðvíksdóttir 74'3 - 3Hafrún Rakel Halldórsdóttir 90'4 - 34 - 490' Una Margrét EinarsdóttirHafrún Rakel Halldórsdóttir 120'5 - 4
Dómari: Olgeir Halldórsson
Leik lokið!
Olgeir Halldórsson flautar þetta af!

Ótrúlegur leikur. Skýrsla og viðtöl síðar í kvöld.
Afturelding
120. mín
MAAAARK!

Hafrún Rakel Halldórsdóttir

STÓRGLÆSILEGT MARK!!

Hafrún innsiglar þrennuna sína með fallegu marki beint úr aukaspyrnu. Smurði hann í vinkilinn.
120. mín
Hafrún nær í aukaspyrnu á stórhættulegum stað rétt fyrir utan teiginn.
120. mín
Erum að sigla inn í síðustu mínútu framlengingarinnar. Lítur út fyrir að við séum að fara í vítaspyrnukeppni.
118. mín
Hætta fyrir framan mark Grindavíkur! Fyrirgjöf sem Vilborg grípur en missir síðan frá sér. Þarna vantaði einhvern til að pikka boltanum inn.
117. mín
Afturelding fær hornspyrnu. Ná þær að skora?
115. mín
5 mínútur eftir af venjulegum leiktíma framlengingar. Lítið að gerast.
Grindavík
111. mín
Gult spjald

Unnur Guðrún Þórarinsdóttir

Togar Eydísi niður í baráttunni á miðjunni.
109. mín
Mikil barátta inni á vellinum en engin hætta skapast enn sem komið er.
106. mín
Þá er seinni hálfleikur hafinn í framlengingunni.
105. mín
Það er kominn hálfleikur í framlengingunni.

Aðeins hægst á leiknum og kannski spurning hvort þreyta sé farin að segja til sín. Liðin hafa skipst á að sækja en Grindavíkurkonur hafa átt betra marktækifæri.
104. mín
Samira með skot framhjá eftir ágætis sókn hjá heimakonum.
103. mín
Shannon Simon tekur aukaspyrnuna sjálf en skotið hennar langt yfir markið.
Afturelding
102. mín
InnGuðrún Elísabet Björgvinsdóttir
ÚtElena Brynjarsdóttir
Heimakonur gera sína síðustu skiptingu.
102. mín
Grindavík að fá aukaspyrnu á hættulegum stað. Eydís brýtur á Shannon.
100. mín
Shannon með fast skot að löngu færi sem Íris ver örugglega. Grindavíkurkonur sækja grimmt þessa stundina.
99. mín
Eydís Embla búin að fá aðhlynningu og kemur aftur inn á völlinn. Gott mál.
97. mín
Grindavík með skalla í stöngina! Stórhættuleg fyrirgjöf hjá Shannon Simon sem endar með skalla í stöngina.

Eydís Embla liggur eftir og virðist hafa fengið högg á höfuðið, vonandi að þetta sé ekki alvarlegt.
97. mín
Mikil barátta inn á vellinum og það sést langar leiðir að báðum liðum langar mikið að komast áfram.
96. mín
Hættuleg sókn hjá Aftureldingu. Samira með sprett upp kantinn og kemur með hættulegt skot sem fer rétt framhjá markinu.
95. mín
Hætta fyrir framan mark Aftureldingar. Mikil barátta um boltann en þær ná að koma þessu fram.
91. mín
Framlengingin er hafin!
Grindavík
90. mín
MAAAARK!

Una Margrét Einarsdóttir

+3

Þær jafna!!

Grindavíkurkonur fá aukaspyrnu á hættulegum stað rétt við hornfánann. Það er klafs í teignum og Una Margrét kemur boltanum yfir línuna. Ótrúlegar lokamínútur hérna í Mosfellsbænum!

Við erum að fara í framlengingu.
Afturelding
90. mín
MAAAARK!

Hafrún Rakel Halldórsdóttir (stoðsending: Ólína Sif Hilmarsdóttir)

MARK!!

Hafrún að koma Aftureldingu yfir á síðustu mínútu venjulegs leiktíma!
Frábær sókn, Ólína fer upp kantinn og kemur með góða fyrirgjöf sem Hafrún klárar meistaralega.
Afturelding
89. mín
Gult spjald

Anna Pálína Sigurðardóttir

Aðeins of áköf í tæklingu þarna.
88. mín
Hafrún með hættulega fyrirgjöf en Samira rennur til og nær ekki til boltans. Þarna munaði litlu að Afturelding kæmist yfir.
Afturelding
85. mín
InnÓlína Sif Hilmarsdóttir
ÚtSara Dögg Ásþórsdóttir
85. mín
Um það bil 5 mínútur eftir af venjulegum leiktíma. Fáum við mark í þetta eða verður framlengt?
Grindavík
80. mín
InnUnnur Guðrún Þórarinsdóttir
ÚtBirgitta Hallgrímsdóttir
79. mín
Hafrún með sprett upp kantinn en Grindavíkurkonur koma þessu í horn. Hornspyrnan endar aftur fyrir markið.
77. mín
Mkill kraftur í heimakonum eftir jöfnunarmarkið. Sara Dögg geysist upp hægri kantinn og kemur boltanum fyrir en Grindavíkurkonur koma boltanum frá.
Afturelding
74. mín
MAAAARK!

Eydís Embla Lúðvíksdóttir (stoðsending: Margrét Regína Grétarsdóttir)

Það er orðið jafnt á ný!

Margrét tekur hornspyrnu og það er aftur mikil barátta inn í teig sem endar með að Eydís nær að koma boltanum í netið í annað skiptið í dag!

Frábær innkoma hjá Eydísi í seinni hálfleikinn.
71. mín
Samira með góðan bolta fyrir sem Hafrún nær ekki til, ágætis sókn hjá Aftureldingu.
68. mín
Leikurinn hefur aðeins róast og lítið gerst síðustu mínútur. Grindavík legið aðeins til baka og Afturelding verið meira með boltann.
62. mín
Þorbjörg Jóna á fínt skot yfir markið eftir góðan undirbúning frá Shannon Simon. Grindavíkurkonur hættulegri sem stendur.
Grindavík
59. mín
InnÍrena Björk Gestsdóttir
ÚtTinna Hrönn Einarsdóttir
Grindavík
58. mín
MAAAARK!

Margrét Hulda Þorsteinsdóttir

Margrét Hulda fylgir eftir skoti sem Íris hafði varið. Vel gert hjá Margréti sem er búin að eiga góðan leik.
57. mín
Þarna mátti litlu muna! Íris missir frá sér boltann eftir fyrirvörn og Birgitta var nálægt því að koma tánni í boltann og koma honum inn.
56. mín
Grindavík fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Aftureldingar, ná góðu skoti á markið en Íris ver vel í horn.

Það er mikil barátta í teignum eftir hornspyrnuna, en Aftureldingarkonur ná að koma boltanum frá.
53. mín
Liðin beita skyndisóknum sitt á hvað, þetta er hraður leikur!
Afturelding
49. mín
MAAAARK!

Eydís Embla Lúðvíksdóttir (stoðsending: Margrét Regína Grétarsdóttir)

Kemur boltanum inn eftir barning í teignum.

Hún kom inn á í hálfleik og er fljót að setja svip sinn á leikinn!
Afturelding
46. mín
InnEydís Embla Lúðvíksdóttir
ÚtMargrét Selma Steingrímsdóttir
46. mín
Leikur hafinn
Grindavík taka miðju, keyra upp og eru nálægt því að skora! En rangstaða dæmd.

Hef það á tilfinningunni að þessi leikur haldi áfram að vera fjörugur!
45. mín
Hálfleikur
Mikið líf og fjör í þessum fyrrihálfleik!

Leikurinn fór að vera jafnari eftir jöfnunarmark Aftureldingar og liðin skiptust á að sækja.

Mörk Grindavíkur bæði komið á óvæntum tímapunktum í leiknum á meðan mark Aftureldingar hafði legið í loftinu.

Spennandi seinnihálfleikur framundan hér að Varmá!
Grindavík
44. mín
MAAAARK!

Shannon Simon

Slæm mistök hjá Írisi í markinu.

Shannon tekur aukaspyrnu vel fyrir utan teig sem er beint í fangið á Írisi sem missir boltann og hann lekur í netið.

Afturelding 1 - Grindavík 2!
39. mín
Þorbjörg Jóna nær góðu skoti á rammann en Íris vel á verði og ver þetta í horn!

Afturelding nær að hreinsa boltanum aftur fyrir í aðra hornspyrnu, sem Grindavíkurkonur ná ekki að gera sér mat úr.
39. mín
Grindavík fær aukaspyrnu á stórhættulegum stað, beint fyrir utan teig, alveg á mörkunum að vera inn í teig.
37. mín
Það er komin hellidemba!
34. mín
Grindavík heldur áfram að sækja og nú vilja þær fá vítaspyrnu þegar Margrét Hulda fellur í teignum. Dómarinn hins vegar ekki sammála og ég held að þetta sé réttur dómur.
33. mín
Grindavík með hættulega skyndisókn en Margrét Hulda fær dæmda á sig aukaspyrnu þegar hún stjakar við varnarmanni Aftureldingar. Frekar ódýrt, Grindavíkurkonur vildu hornspyrnuna og ég skil þær vel.
Afturelding
30. mín
MAAAARK!

Hafrún Rakel Halldórsdóttir (stoðsending: Margrét Selma Steingrímsdóttir)

Þarna kom það! 1-1.

Hafrún með frábæran skalla sem endar í netinu eftir frábæra sendingu Margrétar Selmu.

Hafrún hefur verið langhættulegust hér í kvöld.
29. mín
Stórhættuleg sókn hjá Aftureldingu. Hafrún kemst upp að endalínu og leggur hann út í teiginn en sem betur fer fyrir Grindavík var engin mætt til að leggja hann í netið.

Afturelding halda áfram að sækja
24. mín
Það er farið að bætast í stúkuna á Varmárvelli, fínasta mæting.
23. mín
Margrét Regína tekur aukaspyrnuna og setur hann beint í varnarvegginn.
22. mín
Brotið á Hafrúnu rétt fyrir utan teig. Aukaspyrna
22. mín
Aftureldingarkonur sækja grimmt að marki Grindavíkur. Einstefna eins og staðan er núna.
20. mín
Fyrsta góða færið hjá Aftureldingu. Sara Dögg fær boltann inn í teig en setur hann yfir markið. Þarna hefði hún getað jafnað þetta!
Afturelding
18. mín
Gult spjald

Margrét Regína Grétarsdóttir

Barátta á miðjunni.
Grindavík
16. mín
MAAAARK!

Margrét Hulda Þorsteinsdóttir

Keyrir upp kantinn og sendir boltann fyrir en hann svífur í netið í fjær!

Óvænt mark!
10. mín
Hafrún með fínt skot utan af velli en Vilborg Rós ver vel.

Afturelding hafa sótt meira hingað til.
8. mín
Ansi mikið af innköstum á upphafsmínútunum. Aðeins farið að rigna sem gæti verið að hafa áhrif.
5. mín
Grindavík tekst að koma boltanum í markið en rangstaða réttilega dæmd.
4. mín
Afturelding fær hornspyrnu en ná ekki að gera sér mat úr henni. Markspyrna frá marki Grindavíkur.
1. mín
Leikur hafinn
Það eru heimakonur sem hefja leik.
Fyrir leik
Þrír aðrir leikir í Mjólkurbikar kvenna hefjast klukkan 19:00. Tindastóll tekur á móti Hömrunum, Grótta mætir Augnabliki og Völsungur og Sindri eigast við á Húsavík.
Fyrir leik
Veðrið í Mosó er hreint ágætt, smá blautt en það rignir ekki í augnablikinu. Léttur vindur en fínar aðstæður fyrir fótboltaleik!
Fyrir leik
Nú eru 20 mínútur í leik og bæði lið eru að hita upp með sendingaræfingum.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn og má sjá þau hér til hliðanna.


Afturelding gerir nokkrar breytingar á sínu liði frá því í síðasta leik en Íris Dögg byrjar í markinu í stað Birgittu og svo koma Ólína Sif og Elena einnig inn í byrjunarliðið.

Grindavík gerir einnig breytingar á sínu liði, Vilborg Rós byrjar í markinu í stað Nicole C. Maher og síðan koma Brynja Pálmadóttir og Una Margrét Einarsdóttir inn í byrjunarliðið frá því í síðasta leik.
Fyrir leik
Fótbolti.net spáir þessum liðum botnbaráttu í Inkasso-deildinni, Aftureldingu í 8.sæti og Grindavík í 9.sæti. Ein umferð er búin í deildinni en þar náði Afturelding sér í stig eftir markalaust jafntefli við Fjölni en Grindavík tapaði 3-1 gegn Augnabliki og eru því enn án stiga.
Fyrir leik
Góðan daginn og velkomin í beina textalýsingu frá Varmárvelli í Mosfellsbæ. Klukkan 19:00 fer fram leikur Aftureldingar og Grindavíkur í 2.umferð Mjólkurbikars kvenna.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.