Fotbolti.net
Baldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Inkasso deild kvenna
Extra völlurinn
Fjölnir
Fjölnir
1 - 3
ÍA
ÍA
0 - 160' Erla Karitas Jóhannesdóttir 0 - 264' Ólöf Sigríður KristinsdóttirHjördís Erla Björnsdóttir 78'1 - 21 - 390' Veronica Líf Þórðardóttir
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Færi og fjör í Grafarvoginum

Hvað réði úrslitum?

Færanýting FJölnisliðsins var hreinlega til skammar hér í dag, að fá 6 dauðafæri og svo fleiri fína sénsa ofan á það en skora bara 1 mark er alveg hrikalega lélegt!

Bestu leikmenn

1. Tori Ornela (ÍA)

Tori var hrikalega góð í markinu, varði þrjú dauðafæri og var virkilega örugg í marki Skagastúlkna.

2. Sara Montoro (Fjölnir)

Skrýtið að setja leikmann í tapliði hér, en Sara bjó til færi eftir færi fyrir liðsfélaga sína og var allt í öllu í sóknarleik Fjölnis.

Atvikið

Dauðafæri Ástrósar í byrjun seinni hálfleiks í stöðunni 0-0 hefði getað verið vendipunktur í leiknum en hún hitti ekki á markið.
Má líka nefna það þegar Ástrós nánast hélt í stöngina og skaut í stöngina og framhjá með markið galopið fyrir framan sig í fyrri hálfleik.

Hvað þýða úrslitin?

Fjölnir er með 1 stig eftir tvær umferðir en Skagastúlkur eru með 4 stig.

Vondur dagur

Ástrós Eiðsdóttir verður að taka þennan stimpil á sig, það er jákvætt að hún sé að koma sér í fjögur dauðafæri en það er alveg skelfilega lélegt að skora ekki úr neinu þeirra, því miður!

Dómarinn - 7

Dómararnir voru solid í dag, ekkert erfiður leikur að dæma.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.