Fotbolti.net
Egill Sigfússon
Egill Sigfússon
Pepsi Max-deild karla
Samsung völlurinn
Góður hiti og létt gola
Stjarnan
Stjarnan
0 - 2
KA
KA
0 - 150' Ólafur Aron Pétursson 0 - 255' Elfar Árni Aðalsteinsson
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 712

SKÝRSLAN: KA svæfðu Stjörnuna í upphafi seinni hálfleiks

Hvað réði úrslitum?

Byrjunin á seinni hálfleik. Stjarnan mættu ekki til leiks og KA bara kaffærði þá í byrjun seinni, skora tvö mörk og halda svo markinu hreinu.

Bestu leikmenn

1. Elfar Árni Aðalsteinsson

Elfar var óþolandi fyrir miðverði Stjörnunnar í dag, vann endalaust þarna frammi og skoraði gott mark. Frábær leikur hjá Elfari.

2. Ólafur Aron Pétursson

Fyrstu mínútur hans í sumar og hann var frábær, skoraði í byrjun seinni hálfleiks og var að vinna allar tæklingar varnarlega. Þvílík innkoma.

Atvikið

Markið sem dæmt var af Guðmundi. Aðstoðardómarann flaggaði að boltinn væri kominn aftur fyrir og Rúnar var ekki sammála því en erfitt var að sjá héðan hvort það var réttur dómur. Hefði komið Stjörnunni yfir og eflaust breytt leiknum.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan er áfram með 8 stig á meðan KA koma sér upp í 6 stig með sigrinum hér, hrikalega mikilvæg stig fyrir KA.

Vondur dagur

Haraldur Björnsson.
Gaf fyrsta markið, kemur í vont úthlaup út í fyrirgjöfina og boltinn dettur fyrir Ólaf Aron sem getur ekki annað en skorað. Kemur KA á bragðið.

Dómarinn - 7.5

Var með góð tök á leiknum, spjöldin rétt en hefði mögulega getað gefið fleiri auk þess sem ég er ekki viss um markið sem dæmt var af Guðmundi. Heilt yfir góð frammistaða.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.