SKÝRSLAN: Gæðaleysi á Hásteinsvelli
Hvað réði úrslitum?
Einbeitingarleysi Víkings réði í raun úrslitum. Liðið var í dauðafæri að landa þremur stigum en kláraði ekki leikinn. Frábært mark þegar Jonathan Glenn jafnaði í lokin.
Bestu leikmenn
1. Ágúst Hlynsson
Sýndi gæði sín í dag og á milli þess sem hann var sparkaður niður skóp hann hættu.
2. Víðir Þorvarðar
Var fyrirliði í dag og lang ljósasti punktur heimamanna.
Atvikið
Þegar Helgi Mikael gaf Felix rautt spjald. Enginn er að efast um að Helgi hefði átt að dæma víti en margir efast um hvort þetta hafi átt að verðskulda rautt. Fyrir mér var þetta réttur dómur þar sem Felix reynir ekki að ná boltanum og rænir Guðmund Andra upplögðu marktækifæri.
Hvað þýða úrslitin?
Hvorugt liðið er með sigur í deildinni og eru enn í botnbaráttu.
Vondur dagur
Evariste Ngolok átti dapran dag og setja margir spurningarmerki við að hann hafi spilað leikinn því allt bendir til þess að hann sé meiddur.
Dómarinn - 8
Vel dæmdur og nokkuð snúinn leikur hjá Helga Mikael. Fannst hann stundum dæma rangt og voru þjálfarar beggja liða ósáttir með ákvarðanir sem höfðu mikil áhrif á leikinn.



