SKÝRSLAN: Vítaspyrnan sem ekki var dæmd og Valur náði fram hefndum
Hvað réði úrslitum?
Þetta var hörkuleikur á Akranesi og í raun leikur tveggja gjörólíkra hálfleika. Valsmenn mikið sterkari í fyrri hálfleik og komust í 0-3 en Skagamenn ívið sterkari í seinni hálfleik og voru ansi nálægt því að jafna. En slakur fyrri hálfleikur og klaufaleg mistök urðu þeim að falli.
Bestu leikmenn
1. Patrick Pedersen(Valur)
Patrick sýndi í þessum leik hvað hann er geggjaður framherji. Alltaf vinnandi, alltaf klár og þess vegna skoraði hann tvö mörk.
2. Ísak Snær Þorvaldsson(ÍA)
Ísak var lang besti maður ÍA í þessum leik. Sýndi það í þessum leik og sérstaklega í síðari hálfleik að hann á ekki heima í þessari deild.
Atvikið
Vítaspyrnan sem ekki var dæmd! Skagamenn voru brjálðir þegar botlinn fór í hendina á Rasmus í teignum á 90 mínútu og var ekki annað að sjá en þetta væri augljóst víti. En ekkert dæmt og Valsmenn skora fjórða markið stuttu seinna. Hefði getað breytt öllu.
Hvað þýða úrslitin?
Valsmenn styrkja stöðu sína á toppnum og eru núna með 8 stiga forystu á FH sem situr í öðru sæti. Skagamenn hins vegar fara niður í 10 sæti á markatölu og verða bara að fara að vinna leiki.
Vondur dagur
Steinar Þorsteinsson hjá ÍA átti alls ekki góðan dag. Hann er einn af mikilvægari leikmönnunum í þessu ÍA liði og verður að sýna meira en hann gerði í dag.
Dómarinn - 5
Fram á 90 mínútu átti Guðmundur bara fínan dag en svona stórt atriði eins og vítið sem átti að dæma dregur hann niður.



