Fotbolti.net
Baldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Lengjudeild karla
Grindavíkurvöllur
Grindavík
Grindavík
1 - 1
Leiknir R.
Leiknir R.
0 - 111' Sævar Atli Magnússon Guðmundur Magnússon 17'1 - 1Alexander Veigar Þórarinsson 91'
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Jafntefli í stórskemmtilegum leik

Hvað réði úrslitum?

Bæði lið skoruðu einungis eitt mark þrátt fyrir haug af færum til að skora meira.

Bestu leikmenn

1. Guy Smit (Leiknir R.)

Smit varði hvað eftir annað í marki Leiknis, þrisvar góð færi eftir horn meðal annars og dauðafæri frá Oddi í lokin.

2. Vladan Djogatovic (Grindavík)

Vladan þurfti líka að vinna fyrir laununum sínum í dag en þó aðeins auðveldara hjá honum en Smit, var gríðarlega öruggur í sínum aðgerðum og bjargaði stórkostlega þegar Danni lyfti boltanum næstum snyrtilega yfir hann.

Atvikið

Það er af nægu að taka en sem dæmi fannst mér Sigurjón stálheppinn að fá ekki seinna gula á 72. mín, Leiknir vildi víti snemma í leiknum eftir horn þegar Grindavík fékk aukaspyrnu og við það myndaðist mikill hiti á vellinum, Oddur klikkar á dauðafæri undir lokin, þetta var alvöru leikur!

Hvað þýða úrslitin?

Jafnteflið gerir ekki mikið fyrir liðin, Leiknir er enn í 3 sæti á eftir Keflavík og Fram, Grindavík fór uppfyrir Vestra í 6. sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Færanýting liðanna fær vondan dag, mér fannst Vuk einnig ekki upp á sitt besta, hann getur gert mikið betur en hann gerði í dag. Sindri Björnsson fékk tvö dauðafæri svo eitthvað sé nefnt.

Dómarinn - 8

Ívar Orri var flottur í dag, hefði mátt henda Sigurjóni útaf en annars hélt hann línunni vel og hafði góð tök á erfiðum leik að dæma.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.