SKÝRSLAN: Gæði FH yfirstigu HK í Kórnum
Hvað réði úrslitum?
Eins og Brynar Björn Gunnarsson þjálfari HK orðaði það - ,,FH nýtti færin og við ekki".
Það var mikið jafnræði með liðunum og skiptust liðin á því að sækja en á endanum voru gæði FH meiri og því fór sem fór.
Það var mikið jafnræði með liðunum og skiptust liðin á því að sækja en á endanum voru gæði FH meiri og því fór sem fór.
Bestu leikmenn
1. Ágúst Eðvald Hlynsson
Kláraði leikinn fyrir FH. Kom að öllum mörkum FH, skoraði tvö og lagði upp eitt. Var þess utan virkilega öflugur og áttu HK í töluverðu basli með hann.
2. Gunnar Nielsen
Varði nokkrum sinnum mjög vel og tók að auki vítaspyrnu.
Atvikið
Vítaspyrnan hjá Stefan Ljubicic.
Gullið tækifæri fyrir HK að fara með forystu inn í hlé en arfarslöpp vítaspyrna kom í veg fyrir það.
Gullið tækifæri fyrir HK að fara með forystu inn í hlé en arfarslöpp vítaspyrna kom í veg fyrir það.
Hvað þýða úrslitin?
FH skellir sér á toppinn með KA, Valsmönnum og Víkingum eftir 4 umferðir.
HK leitar enn af fyrsta sigri sumarsins.
HK leitar enn af fyrsta sigri sumarsins.
Vondur dagur
Stefan Ljubicic hitti ekki á sinn dag og kórónaði það með arfaslappri vítaspyrnu sem Gunnar Nielsen greip nánast. Vítið var eins og æfingarskot fyrir Gunna.
Dómarinn - 5
Stúkan var ekki sátt með dómgæsluna í dag og voru nokkur atriði sem þóttu heldur furðuleg.



