SKÝRSLAN: Keflavík engin fyrirstaða fyrir topplið KA
Hvað réði úrslitum?
KA var einfaldlega miklu betra í þessum leik og voru þeirra aðgerðir markvissar og beinskeyttar og til þess fallnar að refsa Keflvíkingum fyrir þau mistök sem þeir gerðu. Gestirnir sóttu hratt og á mörgum mönnum þegar tækifærið gafst og urðu mörkin fjögur þegar upp var staðið en hefðu hæglega getað orðið fleiri.
Bestu leikmenn
1. Ásgeir Sigurgeirsson
Spilaði vissulega bara 52 mínútur en gerði allt sitt upp á 10 á þeim. Skilaði tveimur mörkum á þeim tíma og var lúsiðinn í framlínunni. En það skal tekið fram að KA liðið sem heild átti flottan leik í kvöld og gera margir tilkall til þess að verma þetta sæti.
2. Þorri Mar Þórisson
Hægri bakvörður í kvöld og átti frábæran leik sem slíkur. Varnarvinnsla upp á 10 og tók virkan þátt í sóknarleik KA sömuleiðis. Gerði sitt líka við það að fara í taugarnar á heimamönnum og tókst nokkuð vel til í þeim efnum. Núllaði algjörlega út vinstri væng heimamanna sem komust aldrei í álitlegar stöður og ef þeir á annað borð komust nálægt því var hann mættur í andlitið á þeim um leið.
Atvikið
Vítavarsla Sindra undir lok fyrri hálfleiks. Gestirnir hefðu getað drepið leikinn endanlega þá en Sindri varði annars ágæta vítaspyrnu Hallgríms Mar utarlega í horn og hélt sínum mönnum á lífi fyrir hálfleikinn. Reyndist engu skipta þegar upp var staðið en var virkilega vel gert engu að síður.
Hvað þýða úrslitin?
KA situr í 2.sæti deildarinnar á færri skoruðum mörkum. Hafa þó skorað alls 10 mörk í síðustu 3 leikjum og eru að senda ákveðin skilaboð að þeir ætli sér mögulega að vera með í sumar.
Keflavík situr í 8.sæti deildarinnar með 3 stig að loknum 4 umferðum,
Keflavík situr í 8.sæti deildarinnar með 3 stig að loknum 4 umferðum,
Vondur dagur
Rúnar Þór Sigurgeirsson gekk erfiðlega að munda fótinn sem skilaði svo mörgum fallegum fyrirgjöfum á síðasta tímabili. Virkaði líkt og Keflavíkurliðið í heild frekar pirraður er líða fór á leikinn og hefur oft spilað mun betur. Nýtir sér mótlætið þó pottþétt til að eflast og klínir einum í samskeytin úr aukaspyrnu í næsta leik til að sokka mig. Einnig átti Kian Williams afleitan dag og gekk ansi illa að skila boltanum frá sér.
Dómarinn - 8
Ekkert upp á Jóhann að kvarta. Hafði góð tök á leiknum og stóru atriðin rétt. Leyfði leiknum að fljóta eins og kostur var og átti bara fínan dag.


