Fotbolti.net
Hafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
Pepsi Max-deild karla
Norðurálsvöllurinn
ÍA
ÍA
0 - 0
Stjarnan
Stjarnan
Dómari: Erlendur Eiríksson

SKÝRSLAN: Botnliðin í vandræðum með að finna markið á Akranesi

Hvað réði úrslitum?

Bæði lið fengu aldeilis færi til að skora mörk í kvöld og eru með leikmenn sem geta skorað mörk. Það virðist vera eitthvað óöryggi í gæða leikmönnum og þegar svo er verða ekki skoruð mörk. Menn þurfa að rífa sig í gang og fara að skora mörk.

Bestu leikmenn

1. Haraldur Björnsson, Stjarnan

Halli þurfti að taka á honum stóra sínum í tvigang þegar Gísli Laxdal og Viktor Jónsson komust einir gegn honum. Hann varði virkilega vel, sér í lagi í síðara skiptið og skipti sköpum í dag.

2. Gísli Laxdal, ÍA

Var hættulegastur hjá Skagamönnum í kvöld, komst í dauðafæri og átti góðar sendingar sem sköpuðu hættu.

Atvikið

Þegar 12 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma fengu heimamenn í ÍA dauðafæri til að gera út um leikinn. Heiðar Ægisson sendi boltann í fæturna á Viktori Jónssyni sem slapp einn í gegn, skaut að Haraldi Björnssyni sem varði frábærlega, í kjölfarið var Einar Karl Ingvarsson mættur til að hreinsa boltann í horn. Þarna hefði verið hægt að gera út um leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin eru ekki góð fyrir liðin. Bæði hefðu þau þurft á sigri að halda til að koma þessu móti í gang svo ég tali nú ekki um að skora mörk. Eftir fjórar umferðir eru liðin nú með 2 stig og hafa bara skorað tvö mörk. Komandi umferðir verða þau að komast á skrið ef ekki á illa að fara í sumar.

Vondur dagur

Heiðar Ægisson spilaði á kantinum hjá Stjörnunni í kvöld. Hann var næstum búinn að gefa skagamönnum leikinn þegar hann sendi Viktori Jónssyni boltann í fæturna og fyrir snilli Haraldar Björnssonar markvarðar Stjörnunnar kom ekki mark úr því. Beint í kjölfarið tók Þorvaldur Örlygsson þjálfari Heiðar af velli.

Dómarinn - 7

Þetta var solid frammistaða hjá Erlendi Eiríkssyni í kvöld en þar á móti var þetta alls ekki erfiður leikur að dæma. Liðin voru ekkert í neinum fljúgandi tæklingum að reyna að sína að það ætti að berjast fyrir öllu sínu enda bæði með aðeins eitt stig fyrir umferðina, og tvö eftir hana.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.