SKÝRSLAN: Meistararnir sigruðu á Meistaravöllum
Hvað réði úrslitum?
Valsarar mættu hrikalega öflugir út í seinni hálfleikinn og skoruðu tvö góð mörk, það var dýr kafli fyrir KR-inga sem voru annars betri aðilinn lungað af leiknum og verðskulduðu efluast meira en 0 stig úr leiknum.
Bestu leikmenn
1. Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur)
Kristinn Freyr var frábær í dag, leggur upp tvö og sífellt ógnandi, öflugur á miðju Vals í dag.
2. Sebastian Hedlund (Valur)
Skorar mikilvægt mark fyrir Val undir lok fyrri hálfleiks og var öflugur í vörninni, var svo færður á miðjuna þegar Orri kom inná og var flottur þar líka.
Atvikið
Sturlaða markvarslan frá Hannesi eftir skalla frá Kjartan Henry eftir hornspyrnu, þá hefði Kjartan getað minnkað muninn fyrr fyrir KR þá en í kjölfarið er Stefán í færi og mér hefur verið sagt að Johannes Vall hafi togað í Stefán þá og brotið á honum, KR-ingar hafi heimtað víti en Pétur varðstjóri dæmdi ekkert.
Hvað þýða úrslitin?
Valsarar skella sér í 10 stig í þéttan toppslaginn með Víking, FH og KA, KR situr eftir um miðja deild með 4 stig.
Vondur dagur
Grétar Snær gerir ansi dýr mistök sem kosta þriðja mark Vals þegar hann reynir að sóla Kaj Leó á miðjum vellinum en tapar boltanum.
Dómarinn - 9,5
Varðstjórinn og félagar dæmdu þennan leik einkar vel! Spurning með þetta vafaatriði hjá Stefáni Árna þar sem KR-ingar vildu víti, annað ómótstæðilegt í hrikalega erfiðum leik!



