Fotbolti.net
Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Pepsi-Max deild kvenna
Würth völlurinn
Fylkir
Fylkir
1 - 1
Keflavík
Keflavík
0 - 131' Dröfn EinarsdóttirBryndís Arna Níelsdóttir (misnotað víti) 59'Valgerður Ósk Valsdóttir 60'1 - 1
Dómari: Helgi Ólafsson
Áhorfendur: 137

SKÝRSLAN: Harka í Árbænum

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn hefði eflaust endað öðruvísi ef liðin hefðu nýtt færin sín betur. Það var hart barist og mikið af færum og hornspyrnum, en erfiðlega gekk að koma boltanum í netið.

Fylkir voru betri fyrsta hálftímann en þá skoruðu Keflavík mark svolítið gegn gangi leiksins. Síðari hálfleikur var fjörugur en Fylkiskonur náðu að jafna leikinn eftir umdeildan vítaspyrnudóm. Jafntefli sennilega bara sanngjörn úrslit.

Bestu leikmenn

1. Tiffany Sornpao

Var frábær í marki Keflavíkur í kvöld. Varði ófá færi Fylkis í leiknum og var bara gríðarlega solid. Varði einnig vítaspyrnu frá Bryndísi Örnu.

2. Valgerður Ósk Valsdóttir

Valgerður var grjóthörð í kvöld, bæði í vörn og sókn. Kórónaði það með jöfnunarmarkinu sem hún skoraði eftir að Tiffany varði vítaspyrnu frá Bryndísi.

Atvikið

Klárlega vítaspyrnudómurinn. Frá blaðamannastúkunnu séð sást ekki alveg hvað gerðist en Fylkismenn vilja meina að það hafi verið augljós snerting. Þó svo að Bryndís hafi ekki skorað úr vítinu þá kom jöfnunarmarkið út frá því.

Hvað þýða úrslitin?

Eitt stig á hvort lið. Ekki mikið flóknara en það. Deildin er jöfn og þetta er þéttur pakki.

Vondur dagur

Ég ætla að setja þetta á sóknarleik Fylkis. Þær voru meira með boltann og voru að koma sér í góðar stöður en sendingar og skot fremst á vellinum voru alls ekki nógu góð.

Dómarinn - 4

Helgi var ekki sannfærandi í kvöld. Þó nokkrir furðulegir dómar og svo set ég spurningarmerki við vítaspyrnuna. Þarf að sjá þetta endursýnt áður en ég segi að sá dómur hafi verið rangur hjá honum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.