SKÝRSLAN: Dramatískt sigurmark eftir lokaðan leik í Boganum
Hvað réði úrslitum?
Hildigunnur Ýr var tilbúin í teignum eftir að hafa sést lítið í leiknum og skoraði með skoti eftir að boltinn féll vel fyrir hana í teignum, gerði vel að vera á tánum og á hárréttum stað. Leikurinn var algjör 0-0 leikur og gerðist fátt markvert í honum.
Bestu leikmenn
1. Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA)
Best á vellinum að mínu mati. Vann alla skallabolta og mikið öryggi sem kemur inn í lið Þór/KA með hennar innkomu.
2. Chante Sandiford (Stjarnan)
Talandi um öryggi, Chante gefur Stjörnunni mikið með sínum talanda og var ekki í neinum vandræðum í leiknum. Greip vel inn í og varði það sem þurfti að verja. Anna María var nálægt því að vera nafnið í boxinu hér að ofan.
Atvikið
Sigurmarkið á lokaandartökunum. Stjarnan hafði verið í vörn nær allan seinni hálfleik en svo á liðið flottan spilkafla alveg í blálokin. Heiða Ragney á flott hlaup út á kantinn, fær sendinguna og gefur fyrir. Boltinn hrekkur sýndist mér af Ölmu og Hildigunnur þrumaði boltanum í netið af stuttu færi. Gott að bæta við tveimur stigum á töfluna undir blálokin.
Hvað þýða úrslitin?
Fyrsti sigur Stjörnunnar í deildinni staðreynd og á sama tíma þriðja tap Þór/KA í röð. Þór/KA á í erfiðleikum með að skora en varnarleikur beggja liða var nokkuð góður á móti.
Vondur dagur
Enginn leikmaður sem á þetta skilið finnst mér. Sóknarleikur beggja liða fær þessa nafnbót.
Dómarinn - 7
Alls ekki erfiður leikur að dæma, kannski einhver peysutog sem hefði verið hægt að flauta á en ekkert sem skipti máli í stóru myndinni. Öll spjöld hárrétt og missti ekki af neinum spjöldum.



