SKÝRSLAN: Meistararnir áttu í erfiðleikum með nýliðana
Hvað réði úrslitum?
Yfirburðir Blikakvenna í spili og fótboltagetu var það sem réði úrslitum í dag. Eins sterkar og Tindastóll voru í þessum leik sást munurinn á fótboltagetunni vel en hjartað risastórt í norðankonum í kvöld eins og alltaf.
Bestu leikmenn
1. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir
Áslaug var virkilega sterk í leiknum og nældi sér í góða stoðsendingu í sigurmarki Blika.
2. Kristín Dís Árnadóttir
Spilaði mjög vel í vörn Breiðabliks. Hélt Murielle í skefjum og átti flotta bolta fram á við ásamt því að stjórna varnarlínunni vel.
Atvikið
Rosalega lítið um atvik að ræða í þessum leik þannig að atvikið er hreinlega bara eina mark leiksins. Flott mark og eina atvik leiksins þannig séð.
Hvað þýða úrslitin?
Tindastóll eru ekki lengur taplausar en sitja í 4. sæti deildarinnar eftir þrjá leiki með 4 stig. Þær eiga þó leik inni gegn Fylki eftir að honum var frestað vegna smits á Sauðárkróki.
Blikar hefðu getað misst af topplestinni mjög snemma ef þær hefðu ekki unnið í dag en með sigri eru þær í 3. sæti, 3 stigum á eftir Selfossi á toppi deildarinnar en fullt eftir af þessari deild.
Blikar hefðu getað misst af topplestinni mjög snemma ef þær hefðu ekki unnið í dag en með sigri eru þær í 3. sæti, 3 stigum á eftir Selfossi á toppi deildarinnar en fullt eftir af þessari deild.
Vondur dagur
Engin, ég get ekki hugsað mér einn leikmann á vellinum sem átti vondan dag. Mjög flottur leikur hjá báðum liðum og allir leikmenn flottir.
Dómarinn - 9
Guðmundur dæmdi leikinn vel en samt lítið til að dæma á. Smá vafi með brot á Murielle í lok leiks en yfir allt vel dæmt hjá tríóinu.


